Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tara Margrét hættir í stjórn: „Ég er að lenda harkalega á vegg núna“

Tara Margrét hættir í stjórn: „Ég er að lenda harkalega á vegg núna“
Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir

Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir hefur ákveðið að segja sig úr stjórn Samtaka um lík­ams­virð­ingu. Þessu greinir hún frá í færslu á Facebook.

Tara Margrét hefur gegnt stjórn­ar­störfum í sam­tök­unum frá stofnun þeirra, um tíu ára skeið. Hún hefur lengi verið fremst í flokki í bar­áttu gegn fitu­for­dómum og hefur vakið mikla athygli á mik­il­vægi lík­ams­virð­ingar.

„Þetta er ein erf­ið­asta ákvörðun sem ég hef tekið en ég finn að ég þarf að gera það fyrir eigin heilsu og vel­ferð. Stjórn­ar­störfin hafa verið gef­andi og stór­kost­leg en þau hafa líka tekið mikið frá mér og ég er að lenda harka­lega á vegg núna. Ég finn mig knúna til að hlusta á þau merki sem lík­am­inn gefur mér um örmögnun og kulnun og hlýða þeim.“

Tara Margrét áréttar að þrátt fyrir að hún segi sig frá stjórn­ar­störfum sam­tak­anna þýði það ekki að hún ætli sér að hætta að tala fyrir lík­ams­virð­ingu og gegn fitu­for­dómum, eða hætta að tjá skoð­anir sínar á hinum ýmsu víg­stöðvum.

„Þið losnið ekki svo auð­veld­lega við mig,“ segir hún.

Tara Margrét segir mikla hug­sjón og kraft í lík­ams­virð­ing­ar­sam­fé­lag­inu á Íslandi og hún segir það krist­all­ast í núver­andi stjórn Samtaka um lík­ams­virð­ingu.

„Ég er ótrú­lega spennt að fylgj­ast með og klappa fyrir áfram­hald­andi stjórn og störfum þeirra í fram­tíð­inni. Efst í huga und­an­farna daga er líka þakk­læti fyrir allt peppið, hug­ul­sem­ina og stuðn­ing­inn sem ég hef fengið frá vinum, fjöl­skyldu og sam­fé­lag­inu öllu sl. 10 ár. Ótelj­andi komment og skila­boð frá alls­konar fólki sem þakk­aði fyrir sig og hvatti mig til dáða. Allt kraft­mikla og ynd­is­lega fólkið sem ég hef kynnst, átt sam­starf með og eign­ast ævi­langa vini í. Ég ætla að halda fastar í það en mót­lætið sem ég hef mætt.“

Hún lætur í ljós að hugs­an­lega sé hún ekki búin að kveðja sam­tökin fyrir fullt og allt.

„Og hver veit? Kannski sný ég aftur til stjórn­ar­starfa þegar ég hef náð meira jafn­vægi og fyllt á tank­inn. Fram­tíðin er enn óráðin. En fyrst ég er að taka mér þessa pásu lang­aði mig að nýta tæki­færið og segja takk. Fyrir allt.“

Færsluna má sjá hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi