Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Maður þarf að fara í sparidressið og mála sig fyrir Melabúðina – eins og að mæta í kokteilboð“

„Maður þarf að fara í sparidressið og mála sig fyrir Melabúðina – eins og að mæta í kokteilboð“
dag er gula hurðin blá og Anna unir sér vel á Reyni­melnum. Mynd: Róbert Reynisson

Anna er ein af þeim sem þekkja „alla“. „Já, það er bara þannig. Eins og ég sagði ein­hvern tím­ann við vin­konu mína: „Nú er það bara orðið þannig að maður þarf að rigga sig upp, fara í spari­dressið og mála sig þegar maður fer í Mela­búð­ina því það er bara eins og að mæta í kok­teil­boð,“segir Anna í við­tali við Hrund Þórs­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa Ráðhúss Reykja­víkur.

„Ég gleymi öllu sem ég ætla að kaupa. Ég fer bara út með blóm­káls­haus eða eitt­hvað allt annað en ég ætl­aði að kaupa því þetta er bara eins og kok­teil­boð. Lífið er stans­laus kok­teill!“  segir Anna Krist­ins­dóttir.

„Það hefur aldrei hvarflað að mér að búa ann­ars staðar. Ég hef vaknað upp með and­fælum um miðja nótt eftir að hafa dreymt að ég byggi í ein­hverri blokk nálægt Skóla­vörðu­holt­inu. Ég vakn­aði bara kóf­sveitt,“ segir hún og glottir. „Ég hef alltaf haft vinn­una rétt við hlið­ina á mér og getað stokkið örfáa metra hér á milli húsa, það hefur bara aldrei neitt annað komið til greina. Svo eru það Vest­ur­bæj­ar­sund­laugin og Mela­búðin, ég get ekki farið neitt annað. Ég er orðin háð.“

Bræddu kerti á götuna og dönsuðu á gamlárskvöld

„Hugsunin hjá mér á morgn­ana var að klæða mig sem minnst svo ég væri nógu fljót úr og í því ég var alltaf að fara eitt­hvert. Ég nennti ekki að vera í of miklum fötum, það var of flókið,“ segir Anna sem ávallt hefur búið og starfað í Vest­ur­bænum.

Anna ólst upp í húsi á horni Vest­ur­valla­götu og Holts­götu og minn­ist æsk­unnar með sér­stakri hlýju. „Ég elska æsk­una mína og minn­ing­arnar eru mjög sterkar. Það var ekk­ert sjón­varp og eng­inn sími, allir þekkt­ust og mamma stóð bara á tröpp­unum og kall­aði „Lína, Bína og Stína“ til að fá vin­konur sínar í kaffi. Þetta var bara eins og ein stór fjöl­skylda. Svo á gamlárs­kvöld bræddum við kerti á alla göt­una og döns­uðum. Svona var Vest­ur­bær­inn, þetta var geggjað,“ segir Anna.

Síðar flutti hún á Reynimel og þar á eftir Meist­ara­velli þar sem hún kveðst hafa staðið í stofu­glugg­anum og fylgst öskr­andi með heima­leikjum KR. Síðar bjó hún á tveimur stöðum á Hagamel áður en hún lok­aði hringnum og kom aftur á Reyni­mel­inn. Drengirnir hennar tveir voru í KR og sjálf var hún virk í starfi KR-kvenna. Hverf­isand­inn er sterkur en aðspurð seg­ist hún ekki vita nákvæm­lega af hverju.

„Einu sinni Vest­ur­bæ­ingur, alltaf Vest­ur­bæ­ingur.“

Breytti hárgreiðslustofunni í íbúð

Anna er að verða 76 ára og starfar ennþá við fag sitt, hár­greiðslu, tvo daga í viku. Anna er hár­greiðslu­meist­ari og hefur verið að í 61 ár, eða frá árinu 1961, allan tím­ann í Vest­ur­bænum. Hún býr á Reynimel 76, í hús­næði sem áður hýsti hár­greiðslu­stof­una Sóleyju sem Anna vann á frá árinu 1966 og keypti síðar sjálf og rak. Eftir að hún breytti hár­greiðslu­stof­unni í íbúð árið 1992 vann hún um tíma í einu her­bergi í hús­inu en í dag er þar svefn­her­bergi hennar og seinni manns hennar, Þórs Þor­björns­sonar. Anna vinnur nú á hár­greiðslu­stof­unni Grand, við Granda­veg.

Eins og gefur að skilja eru fastakúnn­arnir margir en Anna hefur verið svo lengi í fag­inu að margir þeirra eru fallnir frá.

„Grand er í blokk sem er ætluð íbúum 60 ára og eldri. Margir af mínum kúnnum eru eldri konur en kúnn­arnir skipt­ast þó á milli okkar á stof­unni. Ég fæ alveg karl­menn til mín inn á milli enda tók ég rak­ar­ann líka og er með full­gilt meist­ara­bréf. Ég tek bara eitt ár í einu og finnst rosa­lega gaman í vinn­unni. Ég vinn með góðu fólki, korn­ungu miðað við mig og ég reyni bara að vera smá pæja.“

„Ég tala við eig­anda stof­unnar, hann Hlyn, á hverju ári og segi að ég ætli sko ekki að vera rekin héðan, ég ætli að hætta af sjálfs­dáðum en þá spyr hann bara: „Um hvað ertu eig­in­lega að tala? Þú getur ekk­ert hætt, það er svo mikið að gera hjá þér!“

Fram­tíð­arplön Önnu eru að halda áfram að njóta lífs­ins. „Það er klisja, en ég er hrifin af fra­s­anum „einn dagur í einu“, því maður veit aldrei,“ segir þessi lífs­glaða kona að lokum.

Úr ljósmyndasafni Önnu.

Þarna er Anna, umkringd fjöl­skyldu­með­limum, að sinna starfi sínu í garði for­eldra sinna við Vest­ur­valla­götu 2. Þessi mynd birt­ist á for­síðu Morg­un­blaðs­ins á sínum tíma.
Anna, dökk­hærð, fjærst fyrir miðju, í sveins­próf­inu sínu árið 1965. „Þarna var ég að gera blaut­bylgjur í stúlku úr Vest­ur­bænum.“
Hár­greiðslu­meist­ar­inn að störfum og permanentið á sínum stað.
Hár­greiðslu­stofan Sóley við Reynimel, eins og hún leit út eftir að Anna tók hana í gegn. Í loftið setti hún báru­járns­plötur sem eru þar enn og gefa íbúð Önnu óvenju­legan og flottan blæ.
Hár­greiðslu­stofan Sóley við Reynimel, eins og hún leit út eftir að Anna tók hana í gegn. Í loftið setti hún báru­járns­plötur sem eru þar enn og gefa íbúð Önnu óvenju­legan og flottan blæ.
Eftir að Anna hafði gert breyt­ingar á hár­greiðslu­stof­unni Sóleyju bauð hún við­skipta­vinum sínum til veislu. Þarna er Anna til hægri, en með henni er Elín Sæbjörns­dóttir sem hefur í dag verið kúnni hjá Önnu í 55 ár.
Margir Vest­ur­bæ­ingar muna eflaust eftir gulu hurð­inni og glugg­unum sem mörgum börnum þótti spenn­andi að kíkja inn um.

Hægt er að lesa við­talið heild sinni hér.

Heimild:

Rit­stjórn. 2022, 9 febr­úar. „Einu sinni Vest­ur­bæ­ingur, alltaf Vest­ur­bæ­ingur.“ Reykja­vík­ur­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi