Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hörmulegur atburður í Sydney: Fyrsta árásin í 60 ár

Hörmulegur atburður í Sydney: Fyrsta árásin í 60 ár

Maður lést er hann varð fyrir hákarla­árás í dag, mið­viku­dag­inn 16. febr­úar við Buchan Point nálægt Little Bay Beach í Sydney, Ástralíu. Þetta er talin fyrsta ban­væna árás hákarls í tæp sex­tíu ár við strendur Sydney en síð­ast lést maður af völdum slíkrar árásar árið 1963. Um var að ræða eina þekkt­ustu hákarla­teg­und í heim­inum, teg­und sem iðul­lega bregður fyrir í banda­rískum kvik­myndum undir nafn­inu „The Great White“ en á Íslandi gengur teg­undin undir nafn­inu Hvít­há­karl. 

Maðurinn var við sund í sjónum þegar fjöldi strand­ar­gesta og sjó­menn heyrðu sting­andi öskur koma frá sjónum sem varð rauður af blóði þar sem mað­ur­inn barst fyrir lífi sínu við hákarl­inn. Að sögn vitna hrifs­aði þessi ófrýni­lega skepna bjarg­ar­lausan mann­inn undir yfir­borðið í nokkrar sek­úndur áður en lík­ami manns­ins gaf sig og lið­að­ist í sundur. Hvít­há­karl­inn synti örstutta stund í burtu en kom svo aftur og gerði aðra atlögu að mann­inum á meðan hópur fólks horfði agn­dofa á frá strönd­inni. Hélt svo hákarl­inn sína leið út á opið hafið.

Björg­un­ar­þyrla var send á vett­vang ásamt fjölda ann­arra björg­un­ar­sveita og voru læknar kall­aðir út ásamt öðrum við­bragðs­að­ilum. Það þótti ljóst að ekk­ert var hægt að gera, mað­ur­inn var lát­inn. Það sem eftir var af lík­ams­leifum manns­ins skol­aði svo upp að strönd­inni um klukku­stund síðar ásamt rifnum sjó­gall­anum. Eins og áður segir er talið að þetta sé fyrsta hákarla­árásin í Sydney í tæp sex­tíu ár og því um afar sjald­gæfan atburð að ræða.

Hinn látni átti heima nálægt strönd­inni og var þaul­vanur að synda á svæð­inu og þekkti strönd­ina vel. Sjón­ar­vottar voru skelf­ingu lostnir, og eins og gefur að skilja, slegnir yfir atburð­inum líkt og aðrir íbúar borg­ar­innar.

Svæðinu í kringum strönd­ina var öllu lokað í kjöl­farið þar sem leit að frek­ari lík­ams­leifum manns­ins hélt áfram en sam­kvæmt frétta­miðlum í Ástralíu stendur lok­unin yfir að minnsta kosti næsta sól­ar­hring­inn. 

Hvít­há­karl­inn er lík­leg­astur allra hákarla­teg­unda til að ráð­ast á fólk en hann heldur sig aðal­lega á opnu hafi, til dæmis við Suður-Afríku, Kali­forníu, Ástralíu og Mexíkó. Þeir sjást þó bregða fyrir nær landi og á ströndum en það er þó sjald­gæft að þeir ráð­ist á fólk. Þeir geta orðið allt að 6 metrar á lengd og yfir tonn að þyngd og dæmi eru um stærri og þyngri hvít­há­karla. Talið er að hákarl­inn geti synt á allt að 40 kíló­metra hraða á klukku­stund; hann hefur flug­beittar tennur og er veru­lega ógn­vekj­andi í útliti. Veiði­að­ferðir hans eru ein­stakar en hann syndir undir bráð­ina, ræðst snögg­lega að henni og sökkvir flug­beittum tönn­unum í kvið hennar. Til að valda bráð­inni sem mestum skaða hristir hann haus­inn til hlið­anna, sleppir henni og lætur hana blæða út þar til hann snýr sér aftur að henni og étur hana.

Þessi hörmu­legi dauð­dagi er án efa martröð allra þeirra sem strendur sækja víðs­vegar um heim­inn en kvik­myndir á borð við The Jaws hafa ekki orðið til þess að minnka ótt­ann gagn­vart þessum gríð­ar­stóru skepnum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta