Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórdís Sigurðardóttir vill 1. sæti hjá Viðreisn í Reykjavík: „Það er í mér einhver brimbrjótur“

Þórdís Sigurðardóttir vill 1. sæti hjá Viðreisn í Reykjavík: „Það er í mér einhver brimbrjótur“

„Ég brenn fyrir sýn Við­reisnar um rétt­látt sam­fé­lag þar sem almanna­hags­munir ganga alltaf framar sér­hags­munum og allar mann­eskjur, heim­ili og fyr­ir­tæki njóti jafn­ræðis. Það er fram­tíð­ar­sýnin sem ég vil vinna að sem leið­togi og er sann­færð um að eigi að vera leið­ar­ljós far­sæls sam­fé­lags,“ segir Þórdís Sig­urð­ar­dóttir sem sæk­ist eftir 1. sæti í próf­kjöri Við­reisnar í Reykja­vík sem fer fram 4. og 5. mars.

Þórdís er eig­andi Man­i­festo ráð­gjafa­fyr­ir­tækis og hefur víða komið við í störfum sínum og öðl­ast mikla reynslu af rekstri og stjórnun fyr­ir­tækja, bæði sem stjórn­ar­maður, ráð­gjafi og fram­kvæmda­stjóri. Hún var lektor í stefnu­mótun og stjórnun í Háskól­anum í Reykja­vík og jafn­framt gegndi hún for­stöðu yfir MBA-nám­inu og sat í háskóla­ráði skól­ans. Þórdís var einnig fram­kvæmda­stjóri Hjalla­stefn­unnar sem á og rekur 18 skóla á land­inu. Í störfum sínum hefur Þórdís þótt einkar far­sæll leið­togi þegar kemur að breyt­inga­stjórnun og umbreyt­ing­ar­verk­efnum, en nefna má sem dæmi að árið 2019 hlaut Hjalla­stefnan verð­laun fyrir „Byltingu í stjórnun“ frá Við­skipta­ráði Íslands. Þórdís leiddi verk­efnið og mið­aði það að vald­efl­ingu starfs­fólks sem leiddi til auk­inna gæða í þjón­ustu við börn og fjöl­skyldur þeirra. Þórdís segir að sú stjórnun sem hún aðhyllist miði að því að auka völd og áhrif starfs­fólks sem raun­veru­lega vinnur verk­efnin sem ætl­ast sé til að unnin séu og fækka milli­liðum – allt með mik­illi aðkomu starfs­fólks­ins sjálfs. „Þetta kallar á virð­ingu gagn­vart öllum störfum í kerf­inu og fyrir þeim sem þiggur þjón­ust­una og er því ekki síst mik­il­vægt þegar um er að ræða þjón­ustu sem snýr að vel­ferð­ar­þjón­ustu, svo sem við börn, aldr­aða og fatlað fólk,“ segir Þórdís. Þannig fáist bestu hug­mynd­irnar og séu þær virkj­aðar fáist bestu lausn­irnar. Slíkar áherslur þurfi að auka í stjórnun og rekstri borg­ar­innar.

„Það þarf að draga úr sóun og þar fel­ast tæki­færi til að end­ur­hugsa fjár­málin og tíma auk þess sem þjón­usta batnar, starfs­á­nægja eykst og kerfið verður skil­virkara. Þetta kallar á virð­ingu gagn­vart öllum störfum í kerf­inu og fyrir þeim sem þiggur þjón­ust­una.“

Innviðir verða að styðja við þá upp­bygg­ingu því þetta er hluti af grænum lausnum og vellíðan borg­ar­búa

Þórdís segir að sér þyki einnig brýnt að bregð­ast við ákalli atvinnu­lífs­ins um að stytta boð­leiðir og styðja við starf­semi í borg­inni með mark­vissum hætti. „Blómlegt atvinnu­líf er lyk­il­þáttur í að mynda sjálf­bær og líf­leg hverfi þar sem fólk þarf ekki not­ast við einka­bíl til að sinna öllum verk­efnum dag­legs lífs. Innviðir verða að styðja við þá upp­bygg­ingu því þetta er hluti af grænum lausnum og vellíðan borg­ar­búa. Hið opin­bera getur gert margt til að örva sköp­un­ar­kraft fólks og efla heil­brigða sam­keppni sem svo leiðir af sér nýjar lausnir fyrir dag­legt líf fólks,“ segir Þórdís sem segir að ekki eigi að horfa á atvinnu­líf og opin­bera þjón­ustu sem and­stæða póla því hvort tveggja sé mik­il­vægur þáttur góðs sam­fé­lags.

Allt hið smáa

Þórdís seg­ist hafa aðhyllst Viðreisn frá því að flokk­ur­inn var stofn­aður. „Ég á sam­leið með frjáls­lyndri stefnu og sterkum gildum auk þess sem mér finnst mark­mið flokks­ins um jafn­rétti, rétt­lát­ara sam­fé­lag, krafa hans um kröft­ugt efna­hags­líf og ábyrga fjár­mála­stjórnun í takt við það sem ég hef talað fyrir. Í mínum störfum hef ég ítrekað séð hve mikil verð­mæti eru í hverju einu og ein­asta starfi sem unnið er. Sé virð­ing borin fyrir hverju starfi og sá sem það vinnur fái að hafa eitt­hvað um það að segja, þá fæst besta útkoman,“ segir Þórdís og tekur þátt­inn Ver­búð­ina sem nýlegt dæmi sem mörgum sé hug­leikið um þessar mundir. Hver ein­asti rammi og hljóð­mynd beri vott um aðkomu fjölda fólks en ekki eins snill­ings. Fókusinn sé ekki aðeins á að það sem sé mest áber­andi eða á fræg­asta leik­ar­ann heldur sýni heild­ar­myndin mikla vinnu fjölda ólíkra ein­stak­linga sem vinna að sama mark­miði – það er að búa til inni­halds­ríkt og áhrifa­mikið verk. Þessum augum megi einnig líta öfl­uga leik­skóla sem skila ham­ingju­sömum og for­vitnum börnum út í grunn­skól­ana, tóm­stunda­starf sem byggir upp sjálfs­traust og lífs­gleði þeirra sem það stunda eða vel rekna hverf­is­verslun eða fyr­ir­tæki sem skipti nágrenni sitt og sam­fé­lag miklu máli, skapi góðan brag og umtal. „Hver ein­stak­lingur og verk hans skiptir máli en sam­vinna og gagn­kvæm virð­ing getur skilað sam­fé­lag­inu ein­hverju stór­kost­legu þótt ávinn­ing­ur­inn sjá­ist ef til vill ekki strax og stundum skortir næmni í sam­fé­lag­inu til að bera skyn­bragð á raun­veru­legt mik­il­vægi þess.“

Nunnurnar í Hólminum

Þórdís ólst upp í Stykk­is­hólmi – bænum við fjörð­inn stóra þar sem eyj­arnar eru sagðar ótelj­andi.

Það voru ólýs­an­leg for­rétt­indi að fá að kynn­ast nunn­unum

„Það er ekki hægt að segja annað en að ég hafi fengið trú­ar­legt upp­eldi,“ segir Þórdís og hlær. „Á þeim tíma þegar ég var að vaxa úr grasi fóru börn í leik­skóla hjá nunn­unum og svo fórum við alla sunnu­daga niður í Hvíta­sunnu­söfn­uð­inn; það var öfl­ugur Hvíta­sunnu­söfn­uður í bænum og manni fannst alltaf svo gaman að fara þangað. Það var verið að syngja svo skemmti­leg lög. Ég fór þó alltaf á sunnu­dags­morgnum fyrst í barna­messu klukkan 11 – mér þykir vænt um þennan hluta af barn­æsk­unni og dýr­mætt að kynn­ast fjölda teg­unda trú­ar­iðk­unar,“ segir Þórdís sem minn­ist einkum nunn­anna með miklum kær­leika.

„Það voru ólýs­an­leg for­rétt­indi að fá að kynn­ast nunn­unum; þær ráku þarna spít­ala, prent­smiðju og leik­skóla. Þetta var ótrú­legt. Þær gerðu svo stór­kost­lega hluti fyrir sam­fé­lagið.“

Þórdís er spurð hvað hana hafi dreymt um að verða á þessum tíma. „Ég held að mig hafi alltaf langað til að láta eitt­hvað gott af mér leiða. Kannski var þetta ein­hver „inspíra­sjón“ frá nunn­unum. Ég held að það hafi haft mikil áhrif.“

Þórdís hefur gengið Jak­obs­veg­inn fram og til baka síð­ustu sjö ár bæði ein og líka með allri fjöl­skyld­unni. „Það hefur breytt lífi mínu mikið og veitt mér ró, innri frið og líka stór­kost­legar upp­götv­anir sem ég tengi svo vel við æsk­una og lífið með nunn­unum.“

Mikilvægur lærdómur

Sextán ára gömul flutti Þórdís til Reykja­víkur til að hefja nám við Mennta­skól­ann í Reykja­vík. Hún lauk síðan prófi í stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands og lauk eftir það meist­ara­námi í félags­fræði frá sama háskóla.

„Ég fór í stjórn­mála­fræði vegna þess að ég hafði ein­lægan áhuga á stjórn­málum og byrj­aði í stúd­entapóli­tík­inni sem varð til þess að ég missti áhug­ann á að fara sjálf í póli­tík um langt skeið. En sá áhugi hefur heldur betur vaknað á ný eftir langan dvala.

Ég var í start-up verk­efnum erlendis, sat í stjórnum fyr­ir­tækja hér á landi sem erlendis og var stjórn­ar­for­maður í skráðu fyr­ir­tæki í kaup­höll

Árið 2005 fékk ég svo til­boð frá Baugi um að fara að vinna hjá fyr­ir­tæk­inu. Ég fór í mörg mjög áhuga­verð verk­efni og fannst spenn­andi að vinna hjá fyr­ir­tæki sem þá var svo­lít­ill suðu­pottur sam­fé­lags­um­ræð­unnar. Ég var í start-up verk­efnum erlendis, sat í stjórnum fyr­ir­tækja hér á landi sem erlendis og var stjórn­ar­for­maður í skráðu fyr­ir­tæki í kaup­höll. Þetta er gríð­ar­leg reynsla sem hefur gert mér kleift að ná þeim árangri sem ég hef séð í mínum störfum eins og hvað varðar Hjalla­stefn­una. Þannig að tengslin við atvinnu­lífið finnst mér líka vera svo mik­il­væg fyrir borg­ina; að skilja hvað þarf til þess að auka verð­mæta­sköpun í atvinnu­líf­inu og hvað ber að var­ast.“

Allt breyttist á einni nóttu

Hrunið og það sem á eftir fylgdi var mörgum erfitt sem höfðu tengsl við atvinnu­lífið, svo sem Baug, fyrir utan almenn­ing í land­inu sem sat eftir með sárt ennið. Umræðan snerti ekki aðeins vinnu­stað Þórdísar heldur líka nán­ustu fjöl­skyldu, því Þórdís er systir Hreiðars Más Sig­urðs­sonar sem var for­stjóri Kaup­þings.

„Jú, það má eig­in­lega segja að allt hafi breyst á einni nóttu. Nýr veru­leiki blasti við og margt sem fór á allt annan hátt en maður hefði nokkurn tím­ann geta trúað eða séð fyrir á þeim tíma. Þetta var að sjálf­sögðu mikil lífs­reynsla sem gerir mann auð­mjúk­ari og sterk­ari ef maður nær að vinna úr vel henni.“

Þetta var mikið áfall

Hvað var erf­ið­ast? „Það var skilj­an­lega svo mik­ill sárs­auki í sam­fé­lag­inu og þegar það bein­ist gegn ákveðnum aðilum þá er bara ofsa­lega sárt að vera hluti af því. Þetta var mikið áfall. Ég held það hafi verið erfitt fyrir alla að horfa upp á þetta. Og þegar hlut­irnir hafa svona miklar afleið­ingar þá verða við­brögðin erfið. Staðan var svo flókin og þörfin fyrir að fá útrás fyrir reið­ina var skilj­an­leg. Það var erfitt að takast á við þetta allt saman.“

Brimbrjótur hið innra

Þessi reynsla gerði það að verkum að Þórdís breytti um starfs­vett­vang. „Þetta varð til þess að ég fór að gera allt aðra hluti. Hluti af þessu var að mig lang­aði til að reyna að vinna úr þess­ari reynslu á upp­byggi­legan hátt. Ég fór í heilsu­m­ark­þjálfun í skóla í New York með það að mark­miði að ég gæti hugsað sem best um mig sjálfa og fjöl­skyld­una mína. Ég fór líka í jóga­kenn­ara­nám sem hefur gefið mér mik­inn and­legan og lík­am­legan styrk. Við hjónin elskum að vera úti í nátt­úr­unni og þar fæ ég mína teng­ingu til að mæta líf­inu.

Það er í mér ein­hver brim­brjótur

Ég ætl­aði mér ekk­ert endi­lega að fara út í atvinnu­lífið af fullum krafti á ný, en það er alltaf eitt­hvað þar sem heillar mig og lík­lega þörf fyrir að koma að breyt­ingum og hafa áhrif til góðs. Það er í mér ein­hver brim­brjótur. Ég brenn fyrir umbreyt­inga­verk­efnum og því að fá nýtt sjón­ar­horn á það sem við tökum sem gefnu alla jafna. Það eru þeir kraftar sem drífa mig áfram í dag.

Í dag höfum við hjónin unnið með fyr­ir­tækjum í inn­leið­ingu stefnu­mót­unar sem er helsta áskorun fyr­ir­tækja og stofn­ana. Það eru til stefnur um allt, en minna um að þær raun­ger­ist. Þarna er ég á heima­velli.“

Gæfan birtist í ólíklegustu myndum

Þórdís segir að gæfan birt­ist fólki í ýmsum og jafn­vel ólík­leg­ustu myndum og oft sé erfitt að átta sig á því að mik­ill sárs­auki geti orðið til góðs síðar. „Þetta minnir mig á hvað það er mik­il­vægt að nálg­ast það sem fyrir augu ber í líf­inu af auð­mýkt, for­vitni og gagn­rýni og þannig vil ég mæta líf­inu. Við þurfum að vera opin fyrir því að skilja atburði og fólk á fleiri vegu en aðeins út frá sjálfum okkur.“

Hún líti á stærstu áskor­an­irnar í líf­inu sem gjöf þar sem einmitt þær hafi gert hana að því sem hún er í dag.

Þú getur bara ímyndað þér hvað ég er miklu betur und­ir­búin að fara í þetta verk­efni að bjóða mig fram núna með alla þessa reynslu í fartesk­inu

„Það eru aðrir hlutir í líf­inu sem eru svo miklu erf­ið­ari, en ég hef sem betur fer ekki þurft að takast á við slíkt þannig að það ber að líta á svona verk­efni sem gjöf og tæki­færi. Þá er ég samt ekki að segja að maður biðji um það, en svona verk­efni koma til manns og þá er það tæki­færi til að vaxa og læra af. Þú getur bara ímyndað þér hvað ég er miklu betur und­ir­búin að fara í þetta verk­efni að bjóða mig fram núna með alla þessa reynslu í fartesk­inu. Eins og ég sagði þá þekki ég sjálfa mig betur, ég er búin að vinna úr verk­efn­inu sem ég fékk í hend­urnar og þá leysir maður það sem bíður manns á miklu far­sælli hátt en ella.“

Með flugvöllinn við stofugluggann

Þótt Þórdís segi æsku­stöðvar sínar í Stykk­is­hólmi skipa stóran sess í hjarta hennar hafi hún fyrir löngu áttað sig á því að hún sé Reyk­vík­ingur. Hún hafi notið þess að fylgj­ast með breyt­ingum borg­ar­innar frá því að hún kynnt­ist henni fyrst almenni­lega, þótt ekki hafi hún verið sam­mála öllum ákvörð­unum. Margar mik­il­vægar áskor­anir séu fram undan, þær birt­ist henni meðal ann­ars vel þegar hún horfi út um stofu­glugga heim­il­is­ins en þar blasir við Öskju­hlíðin, Háskól­inn í Reykja­vík og svo flug­völl­ur­inn með öllum þeim áskor­unum sem upp­bygg­ingu á svæð­inu fylgir. Eins sé mik­il­vægt að huga að því að færa aftur líf og þjón­ustu inn í fjölda nýrri og eldri hverfa. Góð heild sé mynduð úr fjölda atriða, ólík en líf­leg hverfi myndi svo góða og heil­steypta borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi