Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hamingjan á erfiðum tímum!

Hamingjan á erfiðum tímum!

Anna Lóa Ólafs­dóttir er eig­andi Ham­ingju­horns­ins, kenn­ari og náms- og starfs­ráð­gjafi með diplóma í sál­gæslu. Hún hefur skrifað pistla í rúm 10 ár og gefið út eina bók; Það sem ég hef lært. Hún er móðir, tengda­móðir og amma, starfar hjá VIRK starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóði og var að klára jóga­kenn­ara­nám hjá Yogavin sem hún segir að hafi gefið henni ótrú­lega mikið. Anna Lóa kom í spjall við Mannlíf um erf­iða reynslu, sorg, sigra og áskor­anir. Hún segir okkur að hún vilji landsá­tak í tengsla­vinnu.

Einfaldir þættir sem geta aukið hamingju okkar

„Ham­ingju­hornið varð til fyrir rúmum 10 árum þegar ég byrj­aði að skrifa pistla í Vík­ur­fréttir í Reykja­nesbæ. Í kjöl­farið fór ég að skrifa á Facebook og les­enda­hóp­ur­inn hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Til­gang­ur­inn frá upp­hafi hefur alltaf verið sá að hvetja les­endur til að líta inn á við til að auka ham­ingj­una, í stað þess að bíða eftir því að ein­hverjir aðrir eða eitt­hvað annað færi okkur hana á silf­ur­fati. Rann­sóknir hafa sýnt að það eru frekar ein­faldir þættir sem geta aukið ham­ingju okkar, eins og að iðka þakk­læti, vinna í sjálfs­traustinu, eiga góða vini, finna til­gang með lífi okkar og upp­lifa að við séum við stjórn en séum ekki að lifa lífi sem aðrir velja fyrir okkur.“

Þurfum að minnka streit­una í lífi okkar eins og við getum, því lík­am­inn er í mik­illi streitu fyrir og við þurfum að virða það

Anna finnur að margir hafi verið að glíma við „Covid-þreytu“. „Þegar við höfum farið í gegnum óvissu­tíma mynd­ast spenna í lík­am­anum. Svo þegar það sér fyrir end­ann á óvissu­tím­anum og við slökum á, er rétt eins og lík­am­inn taki af okkur ráðin og segir; hei, ég er búin að vera til staðar fyrir þig í gegnum þetta tíma­bil, nú þarf ég að fá smá hleðslu! Ráðið sem ég mundi gefa ÖLLUM í dag, er að fólk hugi að því hvernig það ætlar að hlaða batt­er­íin eftir þetta erf­iða tíma­bil. Við þurfum að vanda okkur og velja það sem við vitum að geri okkur gott, þurfum að minnka streitu í lífi okkar eins og við getum, því lík­am­inn er í mik­illi streitu fyrir og við þurfum að virða það. Svo skila­boð mín eru; njótum þess á heil­brigðan hátt að jafna okkur eftir síð­ustu tvö ár. Því skiptir svo miklu máli að við skoðum hvert og eitt okkar, hvernig við getum tekið að móti vetri og vori á góðan en nær­andi hátt, og að við bíðum með að taka stórar ákvarð­anir þar til við erum komin í gott jafn­vægi.“

Ráð til að feta veginn áfram og forvarnarpunktar

Anna talar um að það vanti efni þar sem fjallað er um sjálfs­traust og sam­skipti, and­lega og lík­am­lega líðan, áföll og erf­ið­leika og hvernig best sé að takast á við áskor­anir. „Þegar ég bjó í Reykja­nesbæ voru Suð­ur­nesin að takast á við erf­iða tíma. Varn­ar­liðið fór árið 2006 og mörg hund­ruð manns misstu vinn­una og tveimur árum síðar fylgdi banka­hrunið með þeim afleið­ingum sem allir þekkja.

Ég starf­aði sem ráð­gjafi á þessum tíma og fékk van­líðan og von­leysi fólks­ins beint í æð. Mig lang­aði að leggja eitt­hvað af mörkum og skrifa frá hjart­anu um leiðir til að takast á við áskor­anir lífs­ins. Það sem ger­ist þegar maður skrifar eða talar frá hjart­anu, er að maður áttar sig á því, að það eru allir að fást við eitt­hvað og fólk fagnar því að geta tengt við sögur ann­arra og sjá að það eru fleiri að upp­lifa það sama.

Þá er ég ekk­ert síður að skrifa til mín þegar ég er að skrifa pistl­ana mína

Það er ekki nóg að birta áfalla­sögur ein­stak­linga, við þurfum líka að vera með ein­hver ráð til þeirra um að feta veg­inn áfram og for­varn­ar­punkta um hvernig sé hægt að auka seigl­una og sátt­ina í líf­inu svo ein­stak­lingar séu betur und­ir­búnir þegar þeir mæta áskor­unum. Þar fyrir utan, þá er ég ekk­ert síður að skrifa til mín þegar ég er að skrifa pistl­ana mína, en ég hef sjálf þurft á því að halda að skoða bjarg­ráðin mín í gegnum erfið tíma­bil og deili með með öðrum því sem ég hef lært.“

Líkaminn geymir erfiðar upplifanir

„Þegar ég varð 29 ára var mér ráð­lagt að eign­ast ekki fleiri börn eftir end­ur­tekin fóst­ur­lát og því fylgdi ákveðin sorg sem ég kunni ekki að takast á við. En þar sem lík­am­inn geymir vel allar erf­iðar upp­lif­anir hef ég þurft að fara til baka, skoða áhrifin sem þetta hafði á mig og leyfa mér að finna til, án þess að dæma það. Þetta gerði ég með aðstoð fag­mann­eskju sem bjó til rými þar sem ég við­ur­kenndi að hafa upp­lifað bæði van­mátt og skömm á þessum tíma og þessa óþægi­legu til­finn­ingu að ég væri eitt­hvað gölluð, en líka að ég hefði ekki leyfi til að syrgja þar sem ég átti tvo heil­brigða drengi.“

Anna útskýrir að þegar við upp­lifum skömm gefum við ekki rými fyrir sam­kennd og kær­leika, sem er einmitt það sem við þurfum á erf­iðum tímum. „Það tók mig tíma að huga að því hvernig mér leið og hvaða áhrif þetta hafði á mig, í stað þess að vera föst í því að aðrir hefðu nú lent í því verra og ég ætti því bara að harka af mér. Mín reynsla skiptir hins vegar ekki minna máli vegna þess.“

Ég er ör og lausn­a­miðuð að eðl­is­fari og munstur mitt í líf­inu hefur svo­lítið verið að breyta aðstæðum mínum og gera eitt­hvað þegar ég upp­lifi van­líðan

Þegar Anna var rúm­lega þrí­tug missti hún föður sinn skyndi­lega og hún var rúm­lega fer­tug þegar mamma hennar dó. „Ég skrif­aði mikið á þessum tíma, en bara fyrir mig. Dag­bók­ar­skrif hafa reynst mér vel í gegnum erf­ið­ustu áföllin og þá er það ekki það sem maður skrifar sem skiptir máli, heldur það sem ger­ist innra með manni þegar maður skrifar. Mér fannst erfitt að sitja í sorg­inni og geta ekki breytt neinu. Ég er ör og lausn­a­miðuð að eðl­is­fari og munstur mitt í líf­inu hefur svo­lítið verið að breyta aðstæðum mínum og gera eitt­hvað þegar ég upp­lifi van­líðan. En svo þegar maður missir ein­hvern sem er manni kær þá getur maður engu breytt og ekki getur maður flúið sorg­ina. En maður getur verið góður við sjálfan sig, stigið var­lega til jarðar, beðið um stuðn­ing og reynt að halda áfram án þess að deyfa líðan sína.

Ég mun aldrei halda því fram að mér hafi alltaf tek­ist að fara eftir þessu, en ég gerði mitt besta til að vera til staðar fyrir mig, syni mína og fjöl­skyldu og nota þau bjarg­ráð sem ég hafði á þeim tíma.“

Sleppa takinu og byrja upp á nýtt

Hennar helstu áskor­anir hafa verið að taka U-beygjur í líf­inu þar sem hún hefur sleppt tak­inu og byrjað upp á nýtt. Hún hefur farið gegnum þetta ferli nokkrum sinnum og síð­ast þegar hún varð fimm­tug. Hún upp­lifir sig enn í því ferli. „Þá fylgir maður því sem maður telur vera rétt fyrir sig og þau gildi sem maður vill lifa eftir, án þess að hafa nokkra vissu um hvernig það komi til með að ganga. Þetta hefur oft tekið mik­inn toll af mér og ég man að síð­ast þegar ég tók U-beygju, leit ég í spegil og sagði við sjálfa mig; Anna Lóa, í alvöru, ertu til­búin í þetta einu sinni enn! Ég hef lifað fjöl­breyttu lífi, en hef líka verið dug­leg að taka ábyrgð á því að breyta þegar mér hefur þótt ástæða til. Við getum haft áhrif á fólkið og aðstæður í kringum okkur, en þurfum sjálf að taka ábyrgð á því að velja hvernig lífi við viljum lifa.“

Hugrekkið og hennar helstu sigrar

Anna segir að hennar helstu sigrar teng­ist líka áskor­unum hennar; „og því, segi ég, að hafa hug­rekki til að taka U-beygjur. Ég sagði t.d. upp ágæt­lega laun­uðu starfi, flutti á stúd­enta­garð­ana með syni mína til að fara að mennta mig sem kenn­ari. Það voru margir óvissu­þættir og miklar breyt­ingar fyrir okkur öll, en klár­lega sigur fyrir mig. Að hafa kjark til að birta opin­ber­lega það sem ég skrifa og seiglu til að skrifa pistla í hverri ein­ustu viku í rúm 10 ár þrátt fyrir að fjöl­miðlar lands­ins (nema Vík­ur­fréttir) hafi sagt við mig á sínum tíma að það væri ekki eft­ir­spurn eftir „svona“ efni.

Það var ákveð­inn sigur að gefa sjálf út bók án þess að vita nokkuð um bóka­út­gáfu og selja hana svo í stóru upp­lagi í miðjum Covid-stormi, án þess að hafa dreif­ing­ar­að­ila eða aug­lýsendur á bak við mig. Að hafa vit á að kveðja verk­efni sem eiga ekki lengur við mig og standa með sjálfri mér þegar á bratt­ann hefur verið að sækja. Svo er auð­vitað stærsti sig­ur­inn að eiga syni, tengda­dóttur og barna­barn sem ég elska út af líf­inu, svo ég tali nú ekki um ynd­is­legan systk­ina­hóp, fjöl­skyldur þeirra og góða vini sem gera líf mitt svo inni­halds­ríkt.“

Við deyfum okkur með því að beina reiði fyrir utan okkur

„Ég held að við gætum verið dug­legri að skoða okkur sjálf þegar okkur líður illa, í stað þess að benda á umhverfið eða fólkið í kringum okkur. Þurfum að þora að segja hvernig okkur líður og byggja þannig upp tengsl við aðra, í stað þess að vera svona dóm­hörð á allt og alla. Þegar við erum að fara í gegnum krefj­andi tíma erum við meira að hugsa um okkur sjálf og minna að huga að heild­inni og þá byrjum við að gliðna í sundur. Við deyfum okkur jafn­vel með því að beina reiði okkar gagn­vart ein­hverju eða ein­hverjum fyrir utan okkur. Ekkert sam­tal á sér stað, engin tengsl, bara ásak­anir eða ofbeldi. Öskrum mikið – hlustum lítið. Ég vel að lifa ekki þannig. Með því að við­ur­kenna að líðan okkar er alls konar og við séum oft að upp­lifa van­mátt og óör­yggi, aukum við líkur á tengslum sem við þurfum svo sann­ar­lega á að halda í dag.

Það er erfitt að við­ur­kenna van­mátt sinn, sér­stak­lega þegar dóm­stóll göt­unnar gerir lítið úr honum. Þess vegna eru margir í dag farnir að hugsa sig tvisvar um áður en þeir gefa færi á sér opin­ber­lega. Þeir sem hafa hug­rekki til að deila erf­iðum sögum, þurfa umfram allt að upp­lifa öryggi og tengsl. Við deilum með þeim sem geta veitt okkur örygg­is­til­finn­ingu og hafa burði til að tengj­ast okkur á heil­brigðan hátt.

Ég held að eitt af mik­il­væg­ari „bólu­efn­unum“ í dag sé heil­brigð, jákvæð og upp­byggi­leg tengsl

Ég vildi óska þess að við tækjum okkur saman og værum meira til staðar fyrir hvert annað. Við erum lítið land og höfum alla burði til að hlúa vel að fólk­inu sem hér býr. En við þurfum að gera það saman, það er eng­inn sem gerir þetta fyrir okkur. Ég held að eitt af mik­il­væg­ari „bólu­efn­unum“ í dag sé heil­brigð, jákvæð og upp­byggi­leg tengsl. Við þurfum landsá­tak í tengsla­vinnu segi ég! Þarf ekki að vera flókið að efla tengslin, en það sem ég geri er:“

Góð ráð til að huga að andlegu hliðinni:

  • Minni sjálfa mig á að þegar mig langar ekki að hitta neinn þá þarf ég mest á því að halda.
  • Stunda úti­vist en 15 mín­útur í nátt­úr­unni duga t.d. til að fá fram heil­un­ar­á­hrif. Göngutúr með vini getur gert krafta­verk.
  • Iðka þakk­læti fyrir það sem lífið hefur fært mér – skrifa það jafn­vel í dag­bók­ina.
  • Deili líðan minni með ein­hverjum sem ég treysti og er til í að hlusta og gerir ekki lítið úr því sem ég er að upp­lifa.
  • Afmarka frétta­inn­töku og sam­fé­lags­miðla­notkun. Heilinn hefur nei­kvæða slag­síðu og eftir hálf­tíma þar, finnst mér allt vera að fara fjand­ans til.
  • Hlusta á upp­byggi­legar bækur. Er núna að hlusta á Love Your Enemies eftir Albert C. Brooks, en hann deilir áhyggjum mínum um tengsla­leysi og fyr­ir­litn­ing­ar­menn­ing­una sem er í gangi í heim­inum í dag.
  • Er í kringum fólk sem lifir heilt í sér og hefur hug­rekki til að vera það sjálft með kostum og göllum.
  • Skrifa og deili með öðrum, sem hefur verið mik­il­vægt bjarg­ráð fyrir mig síð­ustu ár.
  • Svo hvet ég les­endur til að kíkja í Ham­ingju­hornið mitt en ég hef svo oft sagt, að les­enda­hóp­ur­inn minn er ein­stakur, sýnir mér og öðrum bæði virð­ingu og þakk­læti sem skiptir ekki litlu máli í dag.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi