„Vandamálið er það að það eru svo margir bílar fastir á Grindavíkurveginum að þetta er ekkert auðvelt verkefni. Þeir eru að reyna sitt besta, en aðstæður hérna – ja, sennilega er Bláa lónið líklega besti staðurinn til að vera í þessum aðstæðum,“ sagði Ásgeir Sverrisson, leiðsögumaður.Ásgeir var á meðal strandaglópanna og segir að um sex hundruð manns hafa verið föst í Bláa lóninu frá því klukkan átján í gær til að verða hálf tólf, þegar þeim var sagt að fara út í rútur, sem verður ekið á brott í fylgd björgunarsveitabíla. Reykjanesbraut var lokuð um hríð en Grindavíkurvegur reyndist erfiðari viðfangs.Hundruð fólks frá öllum heimshornum voru strandaglópar í veitingasal Bláa lónsins við Svartsengi.Grindavíkurvegur var ófær og illa gekk að opna hann vegna bíla sem þar eru fastir í snjónum. Unnið var að því að koma fólkinu í burtu.































Athugasemdir