Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjöldi skotvopna fluttur til landsins með ólöglegum hætti – Stórhættuleg vopn ganga kaupum og sölum

Fjöldi skotvopna fluttur til landsins með ólöglegum hætti – Stórhættuleg vopn ganga kaupum og sölum

Fjölmörg skot­vopn eru flutt inn til lands­ins í hverjum mán­uði sam­kvæmt heim­ild­ar­manni Mannlífs. Inn­flutn­ing­ur­inn nær allt frá sex­hleypum yfir í fjöl­skota skamm­byssur og hríð­skota­byssur. Eru þær seldar á svörtum mark­aði, meðal ann­ars með hjálp sam­skipta­for­rita á borð við Signal og Telegram, með gríð­ar­legum hagn­aði. Samkvæmt heim­ild­ar­manni Mannlífs koma þær nær allar frá Austur-Evrópu, en þar eru skot­vopn víða aðgengi­leg almenn­ingi. Leið­irnar sem not­aðar eru til þess að flytja inn skot­vopnin eru jafn ólíkar og þær eru margar, en heim­ild­ar­maður Mannlífs talar þó einna helst um eina aðferð og þau skot­vopn sem flutt eru inn með þeim hætti eru oftar en ekki nefndar „lykla­kippu­byssur“. 

„Þetta er í raun mjög sniðug aðferð og nán­ast ómögu­legt fyrir toll­verði að koma í veg fyrir þennan inn­flutn­ing,“ segir heim­ild­ar­maður Mannlífs, sem ekki vildi láta nafns síns getið af ótta við hefnd­ar­að­gerðir þeirra sem flytja inn skot­vopnin. Hann seg­ist sjálfur hafa staðið í slíkum inn­flutn­ingi í tæpt ár, en hætt því þar sem hann hefði nýverið stofnað fjöl­skyldu og vildi ekki eiga á hættu að verða tek­inn og þannig missa af því tæki­færi að sjá barn sitt stíga sín fyrstu skref.

„Ég er ekki sá fyrsti sem talar um þetta en blaða­mað­ur­inn Atli Már ræddi þetta til að mynda í útvarps­þætti hjá Harma­geddon fyrir ekki svo löngu,“ segir heim­ild­ar­mað­ur­inn, en þar vísar hann til hlað­varps Mána og Frosta sem aðgengi­legt er á Tal.is. Þar ræddi Atli Már Gylfason við þá félaga en sá fyrr­nefndi var staddur í Búdapest þegar við­talið átti sér stað og lýsti þar meðal ann­ars umræddri aðferð.

„Í grunn­inn er þetta mjög ein­falt. Það eina sem þú þarft er að þekkja ein­hvern í und­ir­heimum Austur-Evrópu og það er ekki mikið mál. Það eru svo margir glæpa­menn frá þessum löndum sestir að hérna á Íslandi og ef þú hefur eitt­hvað verið við­rið­inn fíkni­efni eða glæpi hérna á klak­anum, þá þekkir þú ein­hvern Litháa eða Pólverja. Það eru þeir sem redda þessu. Reyndar eru Rúss­arnir líka ansi úrræða­góðir þegar það kemur að því að redda skot­vopnum. Skamm­byssa kostar kannski tutt­ugu þús­und íslenskar krónur þarna úti og sama skamm­byssa, komin hingað til lands, hækkar í verði um að minnsta kosti eitt núll,“ segir heim­ild­ar­mað­ur­inn sem heldur áfram og tekur dæmi: „Ef ég kaupi eina skamm­byssu þarna úti á tutt­ugu þús­und krónur, þá er hún færð byssusmið þarna úti sem tekur 200 evrur eða um það bil þrjá­tíu og tvö þús­und krónur fyrir að taka hana í sundur. Þarna er kostn­að­ur­inn kom­inn upp í tæpar fimm­tíu þús­und krónur. Þessi byssu­smiður tekur hana alveg í sundur, hvern ein­asta part sem hægt er að taka í sundur og vittu til að það kemur manni á óvart hvað hægt er að taka þessar hel­vítis byssur mikið í sundur, og hefst þá áhuga­verða vinnan sem gerir toll­vörðum algjör­lega ómögu­legt að átta sig á þessu,“ segir heim­ild­ar­maður Mannlífs.

„Í alla þessa parta sem eru teknir í sundur er borað pinku­lítið gat með eins litlum bor og mögu­legt er. Þetta er í raun eins lítið gat og hægt er að gera, svo lengi sem lít­ill lykla­kippu­hringur kemst í gegnum það. Af hverju lykla­kippu­hringur? Jú, því þegar þetta litla gat er komið þá er litlum lykla­kippu­hring komið fyrir. Þegar upp er staðið þá ertu með kannski þrettán parta af skamm­byss­unni sem einir og sér líta bara út eins og lykla­kippur. Þetta er svo sent til lands­ins í pósti, hver og einn partur sér og yfir eitt­hvert ákveðið tíma­bil. Þannig lítur þetta bara út eins og lykla­kippa og toll­vörð­ur­inn hefur ekki hug­mynd um það,“ segir heim­ild­ar­mað­ur­inn.

Jónas Haf­steins­son, lög­reglu­full­trúi í leyfa­deild Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sagði í við­tali við Reykja­vík síð­degis, í fyrra, að lög­reglan yrði ekki mikið vör við smygl á skot­vopnum til lands­ins. RÚV greindi frá því í fyrra að fjögur þús­und skamm­byssur væru í einka­eigu á Íslandi, en áður hefur komið fram að skot­vopn á land­inu séu rúm­lega 70 þús­und tals­ins.

Samkvæmt könnun sem gerð var í Sviss árið 2017, og bar yfir­skrift­ina Small Arms Survey, er Ísland númer 12 í heim­inum yfir byssur á hverja 100 íbúa, miðað við höfða­tölu eða 31,7 á hverja 100 íbúa, en könn­unin gerir ráð fyrir óskráðum sem og skráðum skot­vopnum.

Jónas sagði í við­tal­inu að svo­kall­aðar kinda­byssur væru rúm­lega þús­und tals­ins hér á landi, en lang­flestar skamm­byss­urnar séu not­aðar til íþrótta­iðk­unar.

Sagði hann einnig ómögu­legt að segja til um fjölda óskráðra skot­vopna á Íslandi.

„En ég held að við sleppum ekk­ert við það frekar en aðrar þjóðir, að vera með eitt­hvað af slíku,“ segir hann. „Það er þó þannig að í hús­leit og heim­sóknum til góð­kunn­ingja okkar þá erum við ekki að leggja hald á óskráðar, smyglaðar byssur, það eru frekar stolnar byssur sem hefur þá verið stolið hérna heima.“

Bætti hann því við að það væri sjaldfgæft að toll­gæslan legði hald á skot­vopn.

Mannlíf hafði sam­band við Toll­gæsl­una og spurði hvort hún hefði tekið eftir aukn­ingu á skot­vopna­smygli und­an­farið og var svarið stutt og skor­in­ort. „Toll­gæsla hefur ekki fundið fyrir aukn­ingu á smygli á skot­vopnum eða íhlutum skot­vopna til lands­ins.“

Einnig fékk Mannlíf upp­lýs­ingar frá Rík­is­lög­reglu­stjóra um tíðni skotárása á Íslandi síð­ustu ár. Eft­ir­far­andi svar barst:

„„Skotárásir“ eru ekki skrán­ing­ar­flokkur í mála­skrár­kerfi lög­reglu og eru ekki skráðar með þeim hætti að hægt sé að skoða fjölda þeirra út með ein­földum hætti.
Með­fylgj­andi eru tölur yfir hversu oft sér­sveit Rík­is­lög­reglu­stjóra hefur verið kölluð út á tíma­bil­inu 2014-2021, vegna skot­vopna. Það getur verið vegna þess að til­kynnt er um að skot­vopn sé á staðnum, skot­hvellur hafi heyrst eða annað sem gefur til kynna að skot­vopn geti verið á staðnum. Sér­sveitin er ávallt kölluð til þegar um slík mál er að ræða.“

Eins og sjá má á töl­fræð­inni hefur til­kynn­ingum um vopn á vett­vangi fjölgað um 469% á síð­ustu sjö árum. Þá hefur til­kynn­ingum um skot­vopn á vett­vangi fjölgað um 234% síðan 2014.

Mannlíf bað Rík­is­lög­reglu­stjóra einnig um töl­fræði yfir vopna­árásir á lög­reglu­menn síð­ustu árin.

„Það sama á við um ofbeldi gegn lög­reglu­mönnum, ekki er hægt með ein­földum hætti að taka út töl­fræði yfir þessi til­vik sem óskað er eftir. Ofbeldi gegn lög­reglu­mönnum er ekki skráð eftir verkn­að­ar­að­ferð.

Með­fylgj­andi eru tölur yfir brot gegn vald­stjórn­inni, nánar til­tekið ofbeldi gegn lög­reglu­mönnum (óháð verkn­að­ar­að­ferð). Einnig fylgja með tölur yfir fjölda mann­drápa þar sem skot­vopni var beitt.“

Líkt og sjá má á töl­unum fyrir ofan má sjá að til­felli brota gegn lög­reglu­mönnum rokka svo­lítið upp og niður á milli ára. Meðaltal árása gegn vald­stjórn­inni á síð­ustu tutt­ugu árum er 92,35 til­felli. Manndráp þar sem skot­vopnum er beitt eru ekki mörg eða fjögur frá árinu 2000.

Umfjöllun þessi er að finna í nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem finna má ókeypis í versl­unum Bónus, Hagkaupa og á N1. Einnig má lesa það á vefnum. Hér má sjá blaðið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi