Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

UPPRIFJUN – Hvað var í síma Páls Steingrímssonar? „Ég vil stinga, snúa og strá salti í sárið“

UPPRIFJUN – Hvað var í síma Páls Steingrímssonar? „Ég vil stinga, snúa og strá salti í sárið“

Eins og alþjóð veit hafa fjórir blaða­menn nú stöðu sak­born­ings í máli er teng­ist umfjöllun um „Skæru­liða­deild Samherja“. Blaða­menn­irnir hafa verið sak­aðir um að hafa nýtt sér stolið efni úr síma Páls Stein­gríms­sonar, skip­stjóra hjá Samherja og eins með­lima „Skæru­liða­deild­ar­innar“, við skrif á fréttum um Samherja. En hvað var í síma Páls? Hvaða gögn var þar að finna sem mögu­lega áttu erindi við almenn­ing? Hverjir eru per­sónur og leik­endur í mál­inu?


Nú þarf að snúa og svo salta í sárið

„Skæru­liða­deild Samherja“:

Arna Bryn­dís McClure Bald­vins­dótt­ir lög­mað­ur
Páll Stein­gríms­son skip­stjóri
Þor­björn Þórð­ar­son al­manna­teng­ill

Hvaðan kemur nafnið á þessum hópi? Frá þeim sjálfum. Stundin sagði svo frá í grein sinni um málið:

„Þessi óform­legi hópur sem virð­ist pott­ur­inn og pannan í málsvörn Samherja kallar sig svo skæru­liða­deild­ina. Í sam­skiptum þeirra á milli er ítrekað vísað til þessa nafns. „Skæru­liða­deildin er alltaf á vakt­inni 😉“ segir í einum þess­ara skila­boða. Aðrir sam­fé­lags­miðla­not­endur sem hafa talað máli Samherja eru svo sagðir til­heyra „skugga­deild­inni“ og að þeir fái reglu­lega upp­lýs­ingar frá Páli til að nýta. Upp­lýs­ingar sem virð­ast gjarnan eiga upp­runa sinn hjá Örnu, Þorbirni eða öðrum starfs­mönnum Samherja.“

Enn fremur kemur fram í umfjöllun Stund­ar­innar að orð­færi hóps­ins megi helst líkja við skæru­hernað. Ítrekað sé talað um að stinga og sparka í blaða­menn.

„„Vona að Óskar, Bubbi og Þorbjörn standi við það sem þeir hafa sagt við þig, að gefa ekki eftir. Við erum búin að stinga. Nú þarf að snúa og svo salta í sárið,“ skrifar Arna í skila­boðum. „Ef þið Þorbjörn eruð að spá í að stinga Jóhannes þá er hug­mynd hér,“ segir hún í öðrum. Páll notar sama orð­færi líka. „Við verðum alla­vega klár og munum nota hvert tæki­færi til að stinga svo mikið er víst 😇😇“ skrifar hann til Örnu, sem og eftir sam­tal við Björgólf Jóhanns­son, þáver­andi for­stjóra Samherja: „Komdu með þína hug­mynd, var að leggja á Bubba og hann vill stungu“.“

Skjáskot frá Stund­inni
Skjáskot frá Stund­inni

Færeyskir blaðamenn í sigtinu

Í Stund­inni segir að skæru­hern­aður hóps­ins hafi helst beinst gegn blaða­mönnum sem og upp­ljóstr­ar­anum í mál­inu, Jóhann­esi Stef­áns­syni. Og ekki aðeins íslenskum blaða­mönnum því gögnin sýna sam­skipti milli Þor­björns og Örnu þar sem þau reyna að sverta orð­spor fær­eysku blaða­mann­anna Jans Lamhauge og Barböru Hólm eftir að heim­ilda­mynd þeirra Hinir óseðj­andi birt­ist. Fjallaði myndin um meint skatta­laga­brot Samherja í Færeyjum.

„Myndin, sem unnin var í sam­starfi við frétta­menn Kveiks, afhjúpaði hvernig Samherji hafði mis­notað heim­ild í fær­eyskum lögum til að fá skatta sjó­manna sinna end­ur­greidda. Það gerðu þeir með því að skrá íslenska starfs­menn á verk­smiðju­tog­urum undan Afr­íku­ströndum sem far­menn á frakt­skipum. Ólíkt öðrum upp­ljóstr­unum í tengslum við starf­semi Samherja og hugs­an­leg lög­brot brást Samherji ekki við með til­kynn­ingu á vef­síðu sinni heldur end­ur­greiddi dótt­ur­fé­lag Samherja – Fram­herji – fær­eyska skatt­inum 17 millj­ónir danskra króna, jafn­virði um 350 millj­ónir íslenskra króna. Færeyski skatt­ur­inn hefur kært málið til lög­regl­unnar,“ segir í frétt Stund­ar­innar.

Þáttur Páls Steingrímssonar

Þáttur skip­stjór­ans Páls Stein­gríms­sonar í „Skæru­liða­deild­inni“ var aðal­lega sá að verja Samherja með kjafti og klóm á sam­fé­lags­miðlum og í blöðum, með pistlum sem ýmist voru skrif­aðir af honum sjálfum eða af Þorbirni og Örnu, en í nafni Páls. Margrét Ólafs­dóttir, rit­ari Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, sendi Páli tölvu­póst þar sem hún segir honum frá við­brögðum Þor­björns við til­lögu Páls. Kjarninn greinir svo frá:

„Póst­ur­inn var til Páls Stein­gríms­son­ar, skip­stjóra hjá Sam­herja, til að láta hann vita að Þor­björn hefði verið ánægður með til­lögu sem Mar­grét hafði lagt fyrir hann. Til­lagan var eft­ir­far­andi: „Ég fékk skila­boð frá einum af skip­stjór­unum okkar Páli Stein­gríms­syni. Hann hefur verið mjög „aktíf­ur“ að skrifa bæði í blöð og á sam­fé­lags­miðlum og getur svarað fyrir sig. Hann sem sagt býður fram krafta sína ef við þurfum nafn á ein­hver skrif.“

Heiti tölvu­pósts sem Mar­grét hafði sent á Þor­björn, og áframsendi nú á Pál, var „Nafn á skrif“.

Þor­björn svar­aði: „Frá­bært að vita af þessu. Ég vista núm­erið hans og net­fang. Mér finnst mjög lík­legt að þetta nýt­ist“.“

Fjöldi tölvu­pósta sem Stundir hefur undir höndum sýnir að Þorbjörn rit­stýrði og jafn­vel skrif­aði að öllu leyti margar af þeim greinum sem birt­ust á Vísi í nafni Páls Stein­gríms­sonar.

„Fjölmörg tölvu­skeyti fara á milli Þor­björns og Páls þar sem Þorbjörn ýmist skrifar heilu grein­arnar eða rit­stýrir þeim. Páll býður honum til að mynda að „mat­reiða“ greinar eins og honum „best þyki“; greinar sem eru síðar birtar í nafni skip­stjór­ans. Það boð þiggur Þorbjörn. Ein þessa greina, Saklaus uns sekt er sönnuð, tekur til að mynda svo stór­kost­legum breyt­ingum í með­förum hans að í rúm­lega 900 orða grein eru aðeins 88 komin frá Páli. Öll hin skrifar Þorbjörn. Það er líka raunin með grein­arnar Rit­sóð­inn Helgi Seljan númer I og II. Þær fær Páll sendar frá Þorbirni full­búnar, þótt hann fái tæki­færi til að hafa skoðun á grein­unum sem birtar eru í hans nafni.“

Gekk Þorbjörn svo langt að stinga upp á að Páll ýjaði í pistlum sínum að and­legri van­heilsu Helga Seljan blaðmanns.

„„Hvernig fannst þér síð­asti kafl­inn um skrif á sam­fé­lags­miðlum almennt? Kannski full dramat­ískur? Svo erum við þarna aðeins að velta fyrir okkur and­legri líðan Seljan. Það verður áhuga­vert að sjá við­brögðin við því,“ skrifar Þorbjörn. Í þessum síð­asta kafla er gengið langt í að ýja að því að geð­heil­brigði Helga sé ábóta­vant og að hann glími við van­líðan og mikla þörf fyrir við­ur­kenn­ingu. Í grein­inni segir meðal ann­ars að það sé „kannski verk­efni fyrir aðra en skip­stjóra sem hefur ekki sér­þekk­ingu á geð­heil­brigði“ að velta fyrir sér lund­ar­fari og and­legri líðan Helga. Þetta þykir Páli  ekki of langt gengið, eða eins og hann segir í skila­boðum til Þor­björns: „Nei, við skulum alls ekki sleppa drama­tík­inni, er svo í anda Helga Seljan finnst mér“.“

Teslan hans Hallgríms Helgasonar

Samkvæmt Stund­inni virt­ist hóp­ur­inn hafa haft fleiri ein­stak­linga í sigt­inu en blaða­menn, en rit­höf­und­ur­inn Hall­grímur Helgason var einn þeirra. Hann hafði skrifað grein þar sem hann fjall­aði um Samherja.

„Í tölvu­póst­sam­skiptum Þor­björns við Pál koma fram hug­myndir þess síð­ar­nefnda að svara grein Hall­gríms, Skilið þýf­inu, sem fjallar um Samherja, með því að spyrja hvort hann hafi „farið í neðstu skúff­una og fundið sam­visk­una sína eins og Jóhannes, og ætli að skila öllum lista­manna­laun­unum sem hann hefur þegið í gegnum árin, fengið sam­visku­bit eftir að hafa bónað Tesluna sína og hlustað á fréttir af raf­magns­leys­inu á lands­byggð­inni um leið, batn­andi mönnum er best að lifa.“ Hann ætti hins vegar eftir að fá „stað­fest að Hall­grímur eigi tesl­una en ekki nágranni hans, er að bíða eftir svari um það“. Það sagð­ist Þorbjörn geta gert, ver­andi með aðgang að fast­eigna- og bif­reiða­skrá. Eitthvað sem Páli þótti ánægju­legt og tveggja broskalla virði: „Glæsi­legt 😀 þú ert rétti mað­ur­inn fyrir okkur hjá Samherja :D“

Nið­ur­staðan var að Hall­grímur átti ekki Tesluna, heldur nágrann­inn, og ekk­ert varð af grein­inni.“

Með vitund toppanna

Samkvæmt Stund­inni virð­ist allt það sem „Skæru­liða­deildin“ gerði hafi verið með vilja og vit­und Þor­steins Más for­stjóra og Björg­ólfs Jóhanns­sonar sem leysti Þorstein af tíma­bundið. Í sam­skipt­unum er talað um að „menn­irnir“ þurfi að gefa grænt ljós og ku Stundin hafa fjöl­mörg dæmi um að greinar og athuga­semdir hafi verið senda þeim til yfir­lestrar fyrir birt­ingu.

„Í sam­skiptum á milli þess­ara ein­stak­linga kemur fram að Þor­steinn og Björgólfur séu ánægðir með hóp­inn og það sem þau gera. Sjálfur er Þor­steinn í beinum sam­skiptum við þennan hóp. Vísað er til sím­tala, sam­tala og funda með Þor­steini og ánægju hans með það sem fram fer. Hann hefur þó líka sett fót­inn niður. Þannig lýsir Arna því að hún sé að skrifa sam­an­tekt sem hún viti ekki hvernig Þor­steinn muni bregð­ast við,“ segir í frétt Stund­ar­innar.

Þá kemur fram í frétt­inni að Páll skip­stjóri seg­ist halda Þor­steini upp­lýstum. „„En ég átti smá spjall við þmb í gær­kvöldi,“ skrifar hann og heldur áfram: „Eins ræddum við að ég myndi halda áfram að setja fram þessa pósta af Wikileaks sem við höfum verið að setja fram, ég sagð­ist bara vera upp­tekin í vinn­unni og þá hló hann bara, svo það liggur vel á honum,“ skrifar hann til Örnu.“

Einnig var Björgólfur í beinum sam­skiptum við Pál og hvetur hann áfram að sögn Stund­ar­innar. „Neglum þá,“ skrifar hann til Páls og á við þá sem gagn­rýna fyr­ir­tækið og flytja af því fréttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi