Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kateryna býr í Breiðholti en er ættuð frá Úkraínu og Rússlandi: „Skriðdrekar eru við borgarmörkin“

Kateryna býr í Breiðholti en er ættuð frá Úkraínu og Rússlandi: „Skriðdrekar eru við borgarmörkin“

Kateryna Tkachuk er tví­tug og á ættir að rekja til bæði Úkraínu og Rúss­lands. Móðir Katerynu er frá Úkraínu en faðir hennar er rúss­neskur.
For­eldrar Katerynu skildu þegar hún var barn og flutti hún með móður sinni til Íslands þegar hún var tíu ára gömul.
Kateryna, sem býr í Breið­holti, fylgist áhyggju­full með fréttum frá Úkraínu. Hún seg­ist halda að faðir hennar geti farið til Rúss­lands vegna upp­runa síns, en þær mæðgur hafa verið í sam­bandi við aðra ætt­ingja og vini í Úkraínu síð­ustu daga.
„Það er ekki rosa­lega mikið í gangi inni í Kherson, borg­inni minni, en fyrir utan hana eru her­stöðvar og þar er verið að sprengja. Nú er búið að sprengja upp brú sem tengir úthverfin við mið­borg­ina og skrið­drekar eru við borg­ar­mörkin,“ segir Kateryna og bætir við að móðir hennar hafi verið í sam­bandi við vin­konur sínar sem hafi ákveðið að vera um kyrrt.
„Það eru mjög margir sem eru að reyna að flýja, en þær eru ekki með nógu mikið af bens­íni og kom­ast ekki mjög langt vegna mik­illar umferðar.“ Þær hafi því ákveðið að búa sig frekar undir það sem gæti gerst í fram­hald­inu, ef ástandið versnar á svæð­inu.

Kateryna í bernsku Situr hér á milli móður sinnar og ömmu.

„Flest minni svæði voru alls ekki búin undir þetta, fólk leit­aði til þeirra sem fóru fyrir hús­fé­lögum og bað þau um að opna kjall­ara í bygg­ingum, þar sem hægt yrði að leita skjóls,“ segir Kateryna og bætir við að bygg­ing­arnar séu ekki byggðar fyrir við­líka átök og vofa yfir og því ótt­ast fólk að þær hrynji og engin und­an­komu­leið verði fær ef þær yrðu fyrir sprengju.

ég myndi telja Ísland vera „heima“ núna

Kateryna segir þær mæðgur heppnar að hafa flutt til Íslands áður en átök hófust í land­inu.
„Við fluttum árið 2011 og síðan hófust átök árið 2014, þannig að við erum bara rosa­lega heppnar að hafa kom­ist út áður en allt þetta byrj­aði.“
Faðir Katerynu varð eftir í Úkraínu, en þær mæðgur hafa ekki verið í miklu sam­bandi við hann. Amma Katerynu er einnig í Úkraínu og er veik núna og óvissa ríkir um hvernig allt fer.
„Það er mjög erfitt að hugsa um þetta allt og hvort amma kom­ist frá land­inu, þá hvert og hvernig.“
Frændi Katerynu og vinir hennar eru óhultir eins og staðan er í dag og einn vina hennar er sjó­maður og bless­un­ar­lega langt frá átök­unum. Ein vin­kvenna Katerynu stundar nám í Odessa og er hún á öruggum stað. Hún hefur lítið orðið vör við sprengjugný eða annan hávaða sem fylgir stríðs­á­tökum.
„Ég hef ekki farið heim síðan ég flutti, en mamma mín hefur farið tvisvar sinnum,“ segir Kateryna.
Þá voru aðstæður til­tölu­lega rólegar þrátt fyrir mikla fátækt að hennar sögn, en eru þær mæðgur eru nú með íslensk vega­bréf. Það sé örygg­is­at­riði því þá sé ekki hægt að banna þeim að fara úr landi, ákveði þær að heim­sækja heima­landið ein­hvern dag­inn. Mæðgurnar hafi ætlað að fara þangað til þess að selja íbúð sem þær eiga, en nú er erfitt að segja til um hvort nokkurn tím­ann verði af því.

„Ég var tíu ára þegar ég flutti og er tutt­ugu núna, ég myndi telja Ísland vera „heima“ núna. Úkraína er samt stór hluti af mér; þar á ég vini og upp­lif­anir og minn­ingar og var í skóla þar,“ segir hún og lýsir upp­lifun sinni af æsku­ár­unum í Úkraínu.
„Ég er alltaf að hugsa um hversu gott var að búa þar þegar ég var lítil. Við höfðum kannski ekki eins mikið og við höfum hér á Íslandi, sem við erum mjög þakk­lát fyrir, en það er bara samt eitt­hvað við heima­landið sem maður saknar alltaf. Þótt lífið hafi kannski ekki verið það besta á þeim tíma var það samt æðis­legt, ein­hvern veg­inn,“ segir Kateryna, en bætir við að hún sakni alltaf rót­anna þrátt fyrir að hún sé fegin að vera búsett á Íslandi.
Kateryna seg­ist hafa verið glöð sem barn og að mamma hennar hafi veitt henni allt sem hún þurfti.
„Ég veit alveg að það var erfitt fyrir mömmu mína, en hún gaf mér allt sem ég þurfti og ég var alltaf mjög glaður krakki.“
Það er erfitt fyrir mæðgurnar að horfa upp á ástandið í heima­land­inu.
„Þetta er nátt­úr­lega mjög erfitt, en við reynum bara að halda ró okkar eftir fremsta megni. Við vitum að það er lítið sem við getum gert, nema hugs­an­lega að veita fjár­hags­lega hjálp, ef svo ber undir, og fræða fólk.

Maður verður bara að vera rólegur

Ég hvet fólk til þess að hjálpa, hver ein­asta þjóð í þeim aðstæðum sem Úkraína er í núna myndi vilja fá hjálp. Ef fólk getur ekki aðstoðað fjár­hags­lega, þá er bara að deila upp­lýs­ingum og í slíku eru mikil hjálp fólgin,“ segir hún von­góð.

„Úkraína er mjög fal­legt land. Það er svo fal­leg nátt­úra og menn­ing og allt slíkt og maður ótt­ast að allt slíkt verði bara horfið eftir nokkur ár eða bara mán­uði,“ segir Kateryna.
Mæðgurnar taka einn dag í einu.
„Já, við erum að reyna að gera það, en við getum nátt­úr­lega ekki sett til­veru okkar á pásu. Ég er á loka­önn í mennta­skóla, þannig að það er líka mjög erfitt. En við erum að reyna að vera í eins miklu sam­bandi við ætt­ingja og vini úti og við getum, en reynum að sama skapi að dvelja ekki of djúpt í þessu öllu, því þá gæti maður bara misst vitið. Maður verður bara að vera rólegur, sýna styrk og ró.“

Þá vill Kateryna benda öllum á að hægt sé að styrkja Rauða kross­inn og deila upp­lýs­ingum um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi