Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skotmaðurinn ætlaði að láta lögregluna bana sér: „„Óhugnanlegt“ að horfa í augu ákærða“

Skotmaðurinn ætlaði að láta lögregluna bana sér: „„Óhugnanlegt“ að horfa í augu ákærða“
Skotsár í rúðu Mynd: Gunnar Gunnarsson

Fram­burður lög­reglu­manna, sem mættu á vett­vang þegar 44 ára karl­maður hóf skotárás í Dalseli á Egils­stöðum í lok ágúst í fyrra, ber ekki að öllu leyti saman, né saman við tækni­skýrslur. Þeir eru þó sam­mála um að skot­mað­ur­inn hafi hvað eftir annað hundsað skip­anir þeirra um að leggja niður vopn. Þá hafi staðið greini­leg ógn af fram­ferði manns­ins.

Aðal­með­ferð í mál­inu hélt áfram í dag í Hér­aðs­dómi Aust­ur­lands. Karl­mað­ur­inn er ákærður fyrir að hafa ógnað þáver­andi sam­býl­is­konu sinni með skamm­byssu á heim­ili þeirra í Fellabæ þann 26. ágúst í fyrra. Eftir það ók hann yfir í Dalsel á Egils­stöðum þar sem fyrrum eig­in­maður sam­býl­is­konu hans bjó ásamt tveimur sonum þeirra. Ruddist mað­ur­inn inn vopn­aður hagla­byssu og skamm­byssu og skaut úr þeim bæði inn­an­dyra og utan. Lög­reglan mætti á stað­inn og skip­aði honum að leggja niður vopn. Endaði það á því að lög­reglan skaut hann í kvið­inn. Er hann meðal ann­ars ákærður fyrir tvær mann­dráp­stil­raunir en hann neitar þeim parti ákærunnar.

Bar ekki saman um fjöldi skota

Þing­haldið var opið yfir mann­inum en lokað þegar fyrrum sam­býl­is­kona hans, synir hennar og fyrr­ver­andi eig­in­maður báru vitni, var þing­haldið lokað. Aust­ur­frétt sagði frá mál­inu í dag.

Lög­reglu­mað­ur­inn sem skaut þann ákærða bar vitni eftir hádegi. Sagðist hann hafa verið heima hjá sér í frí­vakt þegar hann boð um að vopn­ast vegna mögu­legs byssu­manns og fara með ungri lög­reglu­konu sem var ein á vakt. Sótti hún hann og fóru þau fyrst í Fellabæ. Um leið og þeim var ljóst að vopn­aði mað­ur­inn væri ekki lengur í Fellabæ heldur í Dalseli á Egils­stöðum, óku þau yfir á Egils­staði. Sagði hann að þau hefðu fengið til­kynn­ingar um skot­hvelli í fleir­tölu. Samkvæmt honum lögðu þau lög­reglu­bílnum fyrir utan húsið og séð þar inni þann ákærða. Lög­reglu­mað­ur­inn hafi svo komið sér fyrir í vari við bíl­inn með skjöld fyrir framan sig og kallað til ákærða að nú væri vopnum lög­regla mætt og sagt honum að leggja frá sér byss­urnar. Við það hafi sá ákærði komið út úr hús­inu og skotið tveimur skotum sem lög­reglu­mað­ur­inn hafi svarað með fjórum til fimm skamm­byssu­skotum. Bætti hann því við að hann myndi ekki meira en eld­glær­ingar og hávaða. Sagði hann enn­fremur að þetta hefði gerst á 4-5 sek­úndum en eftir þetta hafi sá ákærði farið aftur inn í húsið.

Verj­and­inn þrá­spurði lög­reglu­mann­inn um fram­burð hans og ítrek­aði lögeglu­mað­ur­inn hann aftur og aftur. Lög­reglu­kon­unni og stjórn­andi rann­sóknar tækni­deildar lög­reglu voru ósam­mála fram­burði lög­reglu­manns­ins. Sögðu þau að hann hafi ekki verið stað­settur á bak­við lög­reglu­bíl­inn í byrjun. Hann hafi verið heldur nær hús­inu eða við vél­ar­hlíf jeppa sem stað­settur var í bíla­stæð­inu sem snéri að göt­unni. Tóm skot­hylki úr byssu lög­reglu­manns­ins ásamt öðrum gögnum hjálp­aði tækni­deild­inni að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu. Lög­reglu­konan stað­festi einnig þá stað­setn­ingu. Þá sýndi vett­vangs­rann­sókn að lög­reglu­mað­ur­inn hafi skotoð 10 til 11 skotum í þess­ari lotu en ekki 4-5 líkt og hann hélt fram. Sagði hann að það væru fréttir fyrir sér.

Aukreitis var deilt um stað­setn­ingu skot­manns­ins í rétt­ar­salnum í dag. Sagði lög­reglu­mað­ur­inn að hann hefði verið kom­inn út úr hús­inu en sá ákærði sagð­ist hafa verið í for­stof­unni. Tækni­deildin komst að þeirri nið­ur­stöðu út frá skot­hylkjum sem fund­ust á vett­vangi, að mað­ur­inn hafi annað hvort verið rétt fyrir innan eða utan dyra­gætt­ina þó lík­legra hafi hann verið fyrir innan.

Verjandi manns­ins rengdi stað­hæf­ingu lög­reglu­manns­ins um að ákærði hafi skotið á undan. Máli sínu til stuðn­ings lagði hann fram mats­gerð dómskvadds sér­fræð­ings að utan, um tíma­setn­ingu skota út frá mynd­bands­upp­töku úr lög­reglu­bíl. Samkvæmt henni skutu ákærði og lög­reglu­mað­ur­inn fyrstu skotum sínum á sömu milli­sek­únd­unni. Stað­hæfði lög­reglu­mað­ur­inn aftur á móti að hann hefði aldrei skotið án þess að fyrst væri skotið á hann. Ekki gat rann­sókn íslensku tækni­deild­ar­innar skorið úr um það. Lög­reglu­konan unga sagði hinn ákærða hafa skotið fyrst að lög­reglu­mann­inum en gat svo ekki svarað verj­and­anum, sagð­ist ekki geta tjáð sig um það.

Þá var einnig deilt um það í rétt­ar­salnum í dag, hvort skotin hafi verið beint í átt­ina að lög­reglu­mann­inum. Sagði hann mann­inn hafa hent byss­unni upp og skotið á hann. Orðaði hann það þannig sam­kvæmt Aust­ur­frétt að þetta hafi ekki verið „við­vör­un­ar­skot í leit að gæs.“ Sagðist hann síðan hafa skotið á móti byssu­mann­inu en sem betur fer hafi hvor­ugur hitt í lát­unum. Verjandi þýfg­aði lög­reglu­mann­inn um þetta atriði og ítrek­aði hann að ákærði hefði vissu­lega beint byss­unni að sér. Sagði lög­reglu­konan það hafið yfir allan vafa að mað­ur­inn hefði beint byss­unni að þeim. Sagðist hún þó ekki muna nákvæm­lega hvernig haldið var á byss­unni.

Skotmaðurinn „alveg vitfirrtur“

Eftir þessa skot­hríð fór mað­ur­inn aftur inn í húsið. Lög­reglu­þjónn úr Fjarða­byggð sem kom á vett­vang til aðstoðar og unga lög­reglu­konan sögðu fyrir rétti að þau hefðu séð ákærða koma gang­andi út úr hús­inu með vopnin fyrir framan sig. Hann hafi gengið að lög­reglu­bíl sem lagt var á göt­unni, þar sem lög­reglu­mað­ur­inn sem hafði skotið á hann var í vari við. Hafi hann kallað aðvör­un­ar­orðum að mann­inum sem lagði vopn sitt á húdd bíls­ins. Skaut lög­reglu­mað­ur­inn þá mann­inn yfir vél­ar­hlíf­ina.

Taldi lög­reglu­mað­ur­inn úr Fjarða­byggð, sem á þessu augna­bliki var búinn að draga sína byssu upp og kom­inn út á göt­una, sagði þetta hafa verið einu leið­ina. Sá ákærði hefði verið ógn­andi og lög­reglu­mað­ur­inn ekki átt und­an­komu auðið. Sagði hann enn­fremur að sá ákærði hefði sýnt það með fram­ferði sínu að hann væri til­bú­inn að skjóta á fólk.

Lög­reglu­mað­ur­inn sem skaut mann­inn sagði að það hafi verið „óhugn­an­legt“ að horfa í augu ákærða sem hefði verið „alveg vit­firrtur“ og „ekki ætlað að hlýða fyr­ir­mælum.“ Sagðist hann ekki muna hvort hann hefði fengið upp­lýs­ingar um að skot­mað­ur­inn hefði þau plön að láta lög­regl­una skjóta sig, eftir loka­skotið eða fyrir það. Sagðist hann ekki hafa vitað hvað mað­ur­inn var að hugsa en að lög­reglan hafi ekki haft aðra val­kosti en að skjóta hann. Hjá verj­anda kom fram að hljóð­upp­tökur úr fjar­skipta­mið­stöð lög­reglu stað­fesu að upp­lýs­ingar um fyr­ir­ætlun skot­manns­ins hefðu borist áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi