Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pílufélagið vill ekki sýna reikningana: „Ég held að það sé eitthvað tortryggilegt í gangi þarna“

Pílufélagið vill ekki sýna reikningana: „Ég held að það sé eitthvað tortryggilegt í gangi þarna“
Þessi mynd er sam­sett

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur eft­ir­lits­deild Rík­is­skatt­stjóra og efna­hags­brota­deild Hér­aðs­sak­sókn­ara verið til­kynnt um mein­tan vafa­saman rekstur Pílu­fé­lags Reykja­nes­bæjar sem rekið er sem félaga­sam­tök í fríu hús­næði bæj­ar­fé­lags­ins. Þær upp­lýs­ingar koma heim og saman við upp­lýs­ingar frá tveimur heim­ild­ar­mönnum sem báðir eru með­limir. Þeir vildu ekki láta nafn síns getið af ótta við að vera úthýst úr félag­inu. Samkvæmt fram­burði þeirra á sér stað ýmis ólög­leg starf­semi á meðal stjórn­ar­með­lima félags­ins sem, í sam­tölum við blaða­mann Mannlífs, neit­uðu að afhenda gögn á borð við árs­reikn­inga eða annað sem sýnir rekstur félags­ins á svörtu og hvítu.

Bifreiðakaup framhjá stjórn

„Það er alveg klárt mál að þarna á sér stað eitt­hvað sem ekki má líta dags­ins ljós ef marka má þau við­brögð sem ég hef fengið frá Sísí og Halldóri þegar ég hef spurt um ein­falda útprentun á reikn­ingi félags­ins úr heima­banka,“ sagði einn með­lima félags­ins og heim­ild­ar­maður Mannlífs. Þarna á hann við Sísí Ing­ólfs­dóttur, for­mann félags­ins og Halldór Gísla Gunn­ars­son, gjald­kera þess.

„Hann er bara hérna úti á plani hjá mér“

Heim­ild­ar­manni Mannlífs þótti það skjóta skökku við að þegar félagið, sem telur langt undir hund­rað með­limum, keypti bif­reið handa for­manni þess, á síð­asta ári en kaupin voru ekki rædd í stjórn félags­ins þrátt fyrir að kostn­að­ur­inn við bif­reiða­kaupin væru hærri en hálf milljón króna. Formaður félags­ins brást ókvæða við þegar spurt var um bif­reiða­kaupin. „Hann er bara hérna úti á plani hjá mér,“ sagði Sísí við blaða­mann Mannlífs.

Til sam­an­burðar má nefna að hvorki for­menn né aðrir stjórn­ar­með­limir körfuknatt­leiks- og knatt­spyrnu­deildar Kefla­víkur eða Njarð­víkur eru á bif­reiöðum sem keyptur var fyrir fjár­muni félag­anna. Þar telja félags­menn og iðk­endur mörg hund­ruð, ef ekki yfir þús­und. „Ég hef starfað við alls kyns félags­störf og það allt í sjálf­boða­vinnu. Auðvitað tíðkast það að keyptar séu pitsur og annað fyrir þá sem að svona stjórnum eða sjálf­boða­vinnu koma en þarna virð­ast vera í gangi allt aðrar leik­reglur. Þegar ég frétti að það hefði verið keyptur bíll fyrir pen­ing félags­manna til þess að for­mað­ur­inn, sem engan bíl á, gæti farið í ferða­lag síð­asta sumar, þá varð ég bara orð­laus. Þegar ég spurði um bíl­inn þá var bara hreytt í mig og sagt að þetta kæmi mér ekki við,“ sagði einn af heim­ild­ar­mönnum Mannlífs.

Kolólögleg áfengissala

Þegar for­maður félags­ins var spurður út í bif­reiða­kaupin og í hvað bíll­inn væri nýttur þá voru svörin á þá leið að hún væri notuð fyrir félagið: „Það er verið að nota hann í rekst­ur­inn, þegar það þarf að sækja vörur og fleira,“ sagði Sísí í sam­tali við Mannlíf. Samkvæmt heim­ild­ar­manni á for­mað­ur­inn þarna við kaup á áfengi í ÁTVR sem síðar er svo selt ólög­lega bæði inni á stað félags­ins að Keil­is­braut 755 og einnig út úr húsi fyrir þá sem vilja. Mannlíf kann­aði hvort félagið væri með gilt leyfi til áfeng­is­sölu en svo er ekki. Áfeng­is­salan er því kolólög­leg. Að slíkt sé yfir­höfuð leyft í fast­eign á vegum Reykja­nes­bæjar sem félagið fær not af end­ur­gjalds­laust er ámæl­is­vert að mati Hér­aðs­sak­sókn­ara, sem eins og áður segir, er að skoða mál­efni félags­ins.

Þá hefur Mannlíf einnig upp­lýs­ingar um það að salur félags­ins, sem er í sam­komu­húsi Reykja­nes­bæjar á Ásbrú – gamla varn­ar­liðs­svæð­inu, sé leigður ítrekað út bæði til félags­manna og ann­arra hópa og fyr­ir­tækja á svæð­inu. Slík leiga er alltaf greidd með seðlum og óvíst hvar þeir fjár­munir enda: „Við sem félags­menn vitum ekk­ert hvort þessi pen­ingur rati inn á reikn­ing félags­ins eða hvort þeim sé stungið á aðra staði sem tengj­ast rekstr­inum ekki beint. Ég vill ekki benda á neinn en það er frekar skrítið að ár eftir ár er sami gjald­keri þarna við störf og virð­ast sætin í stjórn­inni skipt­ast á milli sama hóps­ins,“ segir heim­ild­ar­maður Mannlífs og bætir við að nú séu aðeins tvær vikur í aðal­fund félags­ins. „Það samt á ekki eftir að skipta neinu því á síð­asta aðal­fundi voru reikn­ingar félags­ins lagðir fram ef reikn­inga skyldi kalla. Þetta voru svona upp­taln­ingar eins og nem­enda­fé­lög í grunn­skóla fara með fyrir nem­endur – hvað var selt fyrir mikið og hvað fékkst í móts­gjöld, sjoppan og hvað svo félagið á inni á banka­reikn­ing. Frekari upp­lýs­ingar um það er bara ekk­ert hægt að fá.“

Brást ókvæða við

Þetta fékkst stað­fest þegar blaða­maður Mannlífs hringdi í Halldór Gísla, gjald­kera félags­ins, sem bar fyrir sig því að hafa ekki verið þarna í rúmt ár. Af hverju engin hafi séð um þessi mál í fjar­veru hans var ekki útskýrt og þá var blaða­manni neitað um upp­lýs­ingar um fjár­hag félags­ins og þá hvert þeir pen­ingar fara sem til dæmis eru fengnir með útleigu á sal sem er ekki einu sinni í eigu Pílu­fé­lags Reykja­nes­bæjar. Bif­reiðin var sögð rekin fyrir dósa­pen­ing – dósir sem eru í nær öllum til­fellum bjór­dósir sem, eins og áður segir, eru seldar þar með ólög­legum hætti: „Ég veit ekk­ert hvort þú megir fá þetta yfir­lit. Þetta verður birt á aðal­fund­inum eftir tvær vikur.“

Aðspurður, í ljósi aðstæðna, hvort mögu­leiki væri að fá að sjá útprentun úr heima­banka félags­ins þá var þeirri beiðni hafnað og bent á for­mann­inn, Sísí Ing­ólfs­dóttur, sem brást ókvæða við öllum spurn­ingum. Sagði blaða­manni ekki koma það við hvað þarna færi fram enda væri hún ekki með­limur í félag­inu.

Auglýsingaherferð

Þegar litið er á Facebook-síðu félags­ins má sjá færslur frá því í júlí á síð­asta ári. Þar sést bif­reiðin, sem var keypt.  Í stöðu­upp­færslu, sem skrifuð var af for­mann­inum, er ferða­lagið látið líta út sem aug­lýs­ing­ar­her­ferð fyrir Pílu­fé­lag Reykja­nes­bæjar sem hlýtur að skjóta skökku við þar sem félagið er svæð­is­bundið og því ekki til­gangur í því að aug­lýsa félagið, til dæmis á Akureyri þar sem er starf­rækt pílu­fé­lag.

Í næstu stöðu­upp­færslu má ætla sem svo að þetta sé allt saman skemmti­legur spurn­ing­ar­leikur fyrir með­limi Pílu­fé­lags Reykja­nes­bæjar sem áttu svo að giska á hvar bif­reiðin væri stödd á þessu sum­ar­ferða­lagi for­manns­ins. Þá ber einnig að taka fram að engar aðrar merk­ingar eru á bif­reið­inni nema ein­kenn­is­merki félags­ins. Má því ætla að engir styrkt­ar­að­ilar hafi komið að kaup­unum og hún því keypt fyrir fjár­muni félags­ins  – sem allir félags­menn hafa lagt til með félags­gjöldum sem greidd eru ár hvert og eru um fjórtán þús­und krónur. Það eru þó ekki einu fjár­mun­irnir sem streyma inn í félagið því fyrir utan þá sem keypt hafa aug­lýs­ingar inni á staðnum eru greidd móts­gjöld, keyptur er bjór og þá eru heima­til­búnar sam­lokur seldar á tæpar þús­und krónur á staðnum.

„Ég trúi bara ekki öðru en að lög­reglan hefji rann­sókn á félag­inu og kom­ist til botns í því í eitt skipti fyrir öll hvert pen­ingar félags­manna fara og þá hvort félag­inu sé ekki skylt að fara að öllum lögum og reglum líkt og önnur íþrótta­fé­lög. Ég sé til dæmis ekki bjór úr ÁTVR seldan á júdómótum eða körfuknatt­leiks­leikjum – ef það er að þá er slíkt í öllum þeim til­fellum sem ég þekki til selt með til­skyldum leyfum,“ segir heim­ild­ar­maður Mannlífs.

Þá bætir hann við að það hljóti að vera á ábyrgð Reykja­nes­bæjar að þarna fari fram lög­leg starf­semi sem rekin er í sam­ræmi við núgild­andi lög.

Beðið svara frá bæjarfélaginu

Pílukast er ört vax­andi íþrótt á land­inu og hefur orðið gríð­ar­lega sýni­leg í nán­ast öllum bæj­ar­fé­lögum á Íslandi og á sjón­varps­skjám lands­manna und­an­farna mán­uði og vikur. Flest þeirra pílu­fé­laga sem starf­andi eru á Íslandi eru, eftir því sem Mannlíf kemst næst, rekin í sátt við alla félags­menn og í sam­ræmi við núgild­andi lög og reglur: „Það er því ömur­legt að brota­brot af þessum hópi geti mögu­lega komið óorði á þessa frá­bæru íþrótt sem ætti að vera öllum opin því þarna koma saman ungir sem aldnir, konur og karlar og hitt­ast þar allir á jafn­ingja­grund­velli og kasta frá sömu línu. Það er ekki einu sinni gert upp á milli kynja sem er bara frá­bært því það geta allir orðið góðir í pílu enda skapar æfingin meist­ar­ann,“ sagði heim­ild­ar­maður Mannlífs að lokum.

Mannlíf hafði sam­band við Reykja­nesbæ en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá bæj­ar­fé­lag­inu er þetta mál í skoðun. Félagið heyrir undir Íþrótta­banda­lag Reykja­nes­bæjar en for­maður þess var vant við lát­inn í dag. Mannlíf mun heyra í honum um leið og færi gefst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi