Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Adda Bára Sigfúsdóttir er látin

Adda Bára Sigfúsdóttir er látin

Adda Bára Sig­fús­dóttir veð­ur­fræð­ingur, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi og vara­for­maður Alþýðu­banda­lags­ins er látin, 95 ára að aldri. Hún lést að morgni 5. mars á dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­il­inu Grund í Reykja­vík.

Í til­kynn­ingu frá aðstand­endum Öddu Báru segir

Frá þessu segir í til­kynn­ingu frá aðstand­endum Öddu Báru, skilur eftir sig 2 börn, 5 barna­börn og 7 barna­börn.

„Adda Bára var fædd í Reykja­vík 30. des­em­ber árið 1926. Hún varð stúd­ent frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík árið 1946, önnur tveggja kvenna úr stærð­fræði­deild. Veturinn 1946 til 47 las hún eðl­is­fræði og stærð­fræði við Háskóla Íslands en hélt síðan til Óslóar og lauk þar emb­ætt­is­prófi í veð­ur­fræði 1953. Að námi loknu hóf hún störf við Veð­ur­stofu Íslands og var deild­ar­stjóri veð­ur­fars­deildar frá 1953 til 1988. Síðan vann hún að rann­sóknum og úrvinnslu veð­ur­fars­gagna við Veð­ur­stof­una til 1998, og sá meðal ann­ars lengi um útgáfu tíma­rits­ins Veð­urs­ins. Rann­sóknir hennar á úrkomu og úrkomu­dreif­ingu eru þekktar og Íslands­kort hennar af með­al­úr­komu áranna 1931 til 1960 var fyrsta heild­stæða úrkomu­kortið sem gert var af land­inu öllu.

Adda Bára hasl­aði sér snemma völl á hinum póli­tíska vett­vangi. Hún var for­maður Æsku­lýðs­fylk­ing­ar­innar 1955 til 1956 og vara­þing­maður Reyk­vík­inga 1957. Hún sat í borg­ar­stjórn frá 1962 til 1966 og aftur frá 1970 til 1986 og tók þátt í sögu­legum sigri vinstri flokk­anna í kosn­ingum 1978. Adda Bára var vara­for­maður Alþýðu­banda­lags­ins frá því að flokk­ur­inn var stofn­aður með því nafni árið 1968 og allt til 1974. Adda Bára sat í ótal nefndum og ráðum sem verða ekki talin upp hér. Hún varð fyrst til að gegna form­legu starfi aðstoð­ar­manns ráð­herra á Íslandi þegar Magnús Kjart­ans­son heil­brigð­is­ráð­herra réði hana sér til aðstoðar haustið 1971. Þá höfðu lög sem heim­il­uðu ráðn­ingu aðstoð­ar­manna verið í gildi í eitt og hálft ár. Þessu starfi gegndi hún til 1974.

Adda Bára tók þátt í stofnun Félags ein­stæðra for­eldra árið 1969 og sat í fyrstu stjórn þess. Hún lét jafn­rétt­is­mál alltaf til sín taka og beitti áhrifum sínum i þágu kvenna bæði í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu og borg­ar­stjórn, auk þess að sitja í stjórn Kven­rétt­inda­fé­lags­ins um tíma.

Adda Bára gift­ist Bjarna Bene­dikts­syni frá Hofteigi, rit­höf­undi og blaða­manni árið 1956. Bjarni lést árið 1968. Þau eign­uð­ust tvo syni; Sigfús og Kolbein. Adda Bára á sjö barna­börn og barna­barna­börnin eru orðin fimm.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi