Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Valgeir segir hamingjuna vera einfaldleika: „Ég nýt lífsins í dag, laus við draslið úr fortíðinni“

Valgeir segir hamingjuna vera einfaldleika: „Ég nýt lífsins í dag, laus við draslið úr fortíðinni“

Mannlíf heyrði í Valgeiri Skag­fjörð og fékk að fræð­ast um and­lega veg­ferð hans. Valgeir seg­ist vera karl­maður á besta aldri. Jarð­ar­búi. „Ég er svo lán­samur að hafa fengið tæki­færi til að fást við flest það sem ég hef gaman af að gera og getað nýtt hæfi­leika mína til.“

Valgeir er leik­ari, tón­list­ar­maður, kenn­ari, mark­þjálfi og Cranio Sacral-með­ferð­ar­að­ili (höf­uð­beina og spjald­hryggs­með­ferð). Hann hefur auk þess lært og til­einkað sér heilun á sjálfum sér og til hjálpar öðrum.

Leiðin hefur verið þyrnum stráð

„Það er heil­mikil vinna að vera til og sjálfs­vinna er mik­il­væg til að við­halda and­legri og lík­am­legri heilsu. Ég hef farið ýmsar leiðir í minni nálgun.

Til að byrja með hætti ég að drekka áfengi fyrir tutt­ugu og sex árum og leiðin þaðan hefur verið þyrnum stráð, en hún hefur hjálpað mér til að vaxa og þroskast.

Ég nýt lífs­ins í dag, laus við draslið úr for­tíð­inni og ætla að hafa seinni hálf­leik­inn fullan af kær­leika og skemmti­leg­heitum

Fyrir það fyrsta þá fann ég Guð á þess­ari leið. En Guð er þriggja stafa orð yfir þann and­lega kraft sem býr innra með okkur öllum. Sumir eiga erfitt með þetta orð og tala um alheim­inn, alvaldið, tao, hinn mikla anda eða hvað annað sem þeim hugn­ast. Kristur sagði að guðs­ríkið væri hið innra og það er fyrir mér sá sann­leikur sem ég kýs að lifa eftir. Ég hef stundað hug­leiðslu og bæn, jóga, fjall­göngur og lagt rækt við and­ann með auk­inni teng­ingu við móður jörð og þá dásam­legu nátt­úru sem þessi litla jarð­ar­kringla býður okkur og við höfum fengið að láni. Leið mín er vörðuð áföllum og mót­læti, en líka vel­gengni, gleði og far­sæld. Ég nýt lífs­ins í dag, laus við draslið úr for­tíð­inni og ætla að hafa seinni hálf­leik­inn fullan af kær­leika og skemmti­leg­heitum.

Ég hef unnið að því að fara út úr þæg­ind­ara­mm­anum með því að vera óhræddur við að prófa eitt­hvað nýtt, stíga inn í ótta minn, ber­skjalda mig, kann­ast við til­finn­ingar mínar, þarfir og lang­anir, horfa á sjálfan mig í spegl­inum og sjá þann mann sem ég er, í stað þess manns sem ég vildi sýna öðrum í því augna­miði að öðl­ast ást og sam­þykki. Ég þarf ekki vel­þóknun ann­arra til að fá stað­fest­ingu á því að ég sé ein­hvers virði. Ég er og við erum öll þess verð að hljóta ást og sam­þykki, en fyrst og síð­ast ást sjálfra okkar á okkur sjálfum og að sam­þykkja okkur sjálf eins og við erum.“

Smám saman hafi opnast fleiri dyr

Valgeir seg­ist hafa farið óhefð­bundnar leiðir en hafi einnig not­ast við aðstoð svo­kall­aðra fag­að­ila. Hann segir að smám saman hafi opn­ast fleiri dyr og hann hafi kom­ist að því að heim­ur­inn sé svo miklu stærri en þessi litli heimur sem við hrærumst í frá degi til dags.

„Stærsti sig­ur­inn í mínu lífi er sig­ur­inn yfir eigin egói. Þegar ég átt­aði mig á því að það eina sem ég þurfti að gera, til að finna sanna auð­mýkt og geta veitt ljósi og kær­leika inn í vit­und mína, var að sleppa tak­inu á mínu eigin egói. Átta mig á því að þær gjafir sem ég hef fengið eru ekki til þess að ég geti nært mitt eigið egó heldur er það hlut­verk mitt í líf­inu að gefa öðrum hlut­deild í mér og minni reynslu og bera ljós­inu og kær­leik­anum vitni hvar sem ég er og hvert sem ég fer. Það er það mik­il­væg­asta fyrir mér.

Hið innra ferða­lag er ferða­lagið til sjálfs sín og á því ferða­lagi er ekki ólík­legt að hitta Guð á leið­inni

Yfir dyrum véfrétt­ar­innar í Delfí á Grikk­landi var letrað: „Þekktu sjálfan þig.“ Þetta hefur reynst mann­inum erfitt í gegnum ald­irnar, en í þess­ari litlu setn­ingu er fal­inn lyk­ill­inn að því flókna fyr­ir­bæri að lifa líf­inu lif­andi í þeirri full­vissu að allt sé í guð­dóm­legri röð og reglu. Það er þess vegna óhætt að sleppa tak­inu á því sem við höldum að við getum stjórnað og treysta Guði eins og hver og einn skilur hann. Hið innra ferða­lag er ferða­lagið til sjálfs sín og á því ferða­lagi er ekki ólík­legt að hitta Guð á leið­inni.“

Ákvað að sleppa takinu og treysta

Valgeir seg­ist ekki vera þess umkom­inn að gefa öðrum ráð um hvernig best sé að lifa við góða and­lega heilsu, en hann getur miðlað af sinni eigin reynslu.

„Við erum ólík þótt margt sam­eini okkur sem mann­kyn, en það verður hver og einn að fara leið­ina til sjálfs sín á eigin spýtur. Þegar nem­and­inn er til­bú­inn þá mætir kenn­ar­inn. Ég ákvað að sleppa tak­inu og treysta. Treysta eigin mætti og eigin van­mætti. Treysta Guði og trúa því að alheim­ur­inn gefi mér í réttu hlut­falli við það sem ég gef honum. Ég fer út í nátt­úr­una, hug­leiði, bið, umgengst fólk sem elskar mig án skil­yrða, geri það sem ég get til að hjálpa öðrum, er til staðar fyrir þá sem ég elska; en ég má ekki gleyma því að ég er bara maður með þeim ágöllum sem fylgja. Ég veit líka að það eina sem þarf er kær­leikur, umburð­ar­lyndi, vin­átta, ást, og hvað varðar allt hið ver­ald­lega þá finnst mér best að hafa lífið ein­falt. Ham­ingjan er falin í helgiskríni ein­fald­leik­ans. (Einn dagur í einu í Al-anon).“

Það sem er á döf­inni hjá Valgeiri er að halda áfram á þess­ari braut, en sem stendur er hann að skrifa barna­leik­rit með söngvum. Fram undan er það verk­efni að skrifa aðra bók sem verður á and­legum nótum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi