Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Engin bilun í kosningakerfum þrátt fyrir meiningar á Twitter: „Svarhlutfall símtala var 99,6%“

Engin bilun í kosningakerfum þrátt fyrir meiningar á Twitter: „Svarhlutfall símtala var 99,6%“
Sigga, Beta og Elín sigr­uðu Söngvakeppni sjón­varps­ins. Mynd/skjá­skot RÚV. Mynd: Mummi Lu / Mummi Lú

Fram­kvæmda­stjóri Söngvakeppn­innar segir ekki að sjá að neitt hafi farið úrskeiðis í síma­kosn­ingu í gær­kvöldi. Svar­hlut­fall sím­tala hafi verið 99,6 pró­sent.

Það hefur lík­lega ekki farið fram hjá mörgum að syst­urnar Sigga, Beta og Elín fóru með sigur af hólmi í Söngvakeppni sjón­varps­ins í gær og verða þannig fram­lag Íslands í Eurovision í maí. Lag þeirra, Með hækk­andi sól, er samið af tón­list­ar­kon­unni Lovísu Elísa­betu Sig­rún­ar­dóttur sem lands­menn þekkja senni­lega betur sem LayLow.

Fljót­lega eftir að úrslit Söngvakeppn­innar voru ljós fór af stað umræða um að ekki hefði verið hægt að hringja inn í ákveðin númer í síma­kosn­ing­unni. Hæst í þess­ari umræðu fóru stuðn­ings­menn Reykja­vík­ur­dætra, sem hrepptu annað sætið í keppn­inni. Á Twitter full­yrtu sumir að þeir hefðu ekki náð inn þegar kjósa átti sveit­ina. Rúnar Freyr Gíslason, fram­kvæmda­stjóri keppn­innar, segir hins vegar ekki að sjá að neitt hafi farið úrskeiðis.

„Við nán­ari grein­ingu núna í morgun þá er ekki að sjá að það hafi verið nein sér­stök vanda­mál við afgreiðslu sím­tala eða sms-a inn á kosn­inga­kerfið sjálft. Svar­hlut­fall sím­tala var 99,6% og frá­vís­anir vegna álags voru bara 0,4% og þau voru ekki bundin við ákveðin kosn­inga­númer,“ segir Rúnar í sam­tali við RÚV.

Rúnar Freyr Gíslason, fram­kvæmda­stjóri Söngvakeppn­innar.

Venju sam­kvæmt voru ein­hverjir sem náðu ekki í gegn með sín atkvæði þegar sem mest álag var á kerf­inu. Málið var skoðað með Vodafone, sem sá um atkvæða­greiðsl­una og miðað við þá grein­ingu var ekk­ert óvenju­legt við svar­hlut­fallið. Rúnar segir þetta ekki í fyrsta sinn sem þessi umræða skap­ist.

Hann nefnir sér­stak­lega að fólk sem sé með frels­is­reikn­inga lendi oft og tíðum í vand­ræðum í kosn­ingum sem þess­ari, þegar það eigi ekki næga inn­eign.

„Sá sem ég tal­aði við bendir hins vegar á að stundum getur fólk ekki kosið ef það er með svokölluð frels­is­númer og það hefur oft valdið mis­skiln­ingi hjá not­endum; að þeir haldi að þeir eigi inn­eign fyrir þessu en eiga ekki,“ segir Rúnar í sam­tali við RÚV.

Hann áréttar að svar­hlut­fallið sé í sam­ræmi við það sem venju­lega sé og að frá­vís­anir vegna álags, sem voru aðeins um 0,4 pró­sent, hafi ekki verið bundin við ákveðin kosn­inga­númer.

Þessi hafði vit á því að reyna ekki:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi