Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Móðir hennar flúði í örvæntingu til Íslands frá Kiev í Úkraínu: „Hugsa til þín, elsku Júlía“

Móðir hennar flúði í örvæntingu til Íslands frá Kiev í Úkraínu: „Hugsa til þín, elsku Júlía“
Julia Rachenko

„Þetta hefur verið martröð. Þegar ég vakn­aði 24. febr­úar sá ég skila­boð frá Kristínu Eddu, vin­konu minni, og þar stóð: „Hugsa til þín, elsku Júlía.“ Þá vissi ég ekki hvað hafði gerst,“ segir Júlía Rachenko, úkra­ínsk kona búsett hér á landi, en Rússar höfðu aðfara­nótt 24. febr­úar ráð­ist inn í Úkraínu.

„Fyrstu fjórir dag­arnir voru eins og einn dagur. Maður vissi ekki hvort það var dagur eða nótt, hvaða verk­efni þurfti að skila í skól­anum eða hvenær næsta vakt væri. Ég datt algjör­lega út úr öllu. Það voru ekk­ert nema tár, hystería, andnauð og öskur. Ég gat hvorki borðað né sofið og það versta var að ég gat ekk­ert gert nema að vera í enda­lausu sam­bandi við fjöl­skyldu mína í Úkraínu og ég var enda­laust að fylgj­ast með fréttum. Ég var eins og villi­dýr í búri. Ég gat ekk­ert gert.“

Júlía seg­ist vera búin að eiga í stöð­ugum sam­skiptum við ætt­ingja sína og vini í Úkraínu.

Ástandið hefur versnað mikið.

„Aðstæð­urnar eru hræði­legar. Mamma og systir mín búa saman í Kiev. Tveimur dögum áður en stríðið hófst fór systir mín á skíði í Bukovel, sem er í vest­ur­hluta Úkraínu, og ég þakka fyrir að það skuli vera búið að vera rólegra þar. Mamma mín er hins vegar föst í Kiev. Systir mín á bíl en kemst ekki til baka til að sækja hana af því að borgin er umkringd rúss­neskum her­mönnum og það væri lífs­hættu­legt og ekki hægt að kom­ast inn í borg­ina. Mamma er hrædd og er að reyna að kom­ast út úr Kiev, en hún er að jafna sig eftir hnéað­gerð og þótt hún kæm­ist í leigu­bíl og ef skotið væri á hann á leið­inni þá gæti hún ekki hlaupið í burtu; hún gæti ekk­ert gert. Það eina sem mamma hefur gert und­an­farna daga er að bíða eftir við­vör­un­ar­hljóði og reyna að ganga inn í sprengju­skýli. Svo bíður fólk þar alla nótt­ina þangað til klukkan er átta eða níu að morgni. Það er hrika­legt að sjá mömmu sína inni í sprengju­skýli,“ segir Júlía en mæðgurnar hafa tal­ast við á Messen­ger. „Það eina sem ég get gert er að hringja í hana og vona að hún svari, því þá veit ég að hún á lífi. Fólk getur farið út á milli klukkan 9 og 22 en eftir það má eng­inn vera úti. Mamma fór í verslun og apó­tek fyrir nokkrum dögum, en það var hvorki til matur né lyf. Ástandið hefur versnað mikið.

Það er mælt með því að fólk í Úkraínu sofi í fötum og skóm til öryggis, ef það skyldi þurfa að fara skyndi­lega út, til dæmis ef sprengjum væri varpað.

Fólk er að reyna að bjarga börn­unum sínum.

Ég held að fólk hafi fyrstu dag­ana hvorki trúað né sam­þykkt að þetta væri að ger­ast; að það væri skollið á stríð. Fólk var svo von­gott um að þetta væri alveg að verða búið. En svo var ekki og sprengjum hefur verið varpað á Kharkiv, Mariupol, Chernigov, Symi, Kiev og fleiri borgir. Matur er að klár­ast og engin lyf til í apó­tekum. Fólk er að reyna að bjarga börn­unum sínum og kom­ast í burtu. Karlar á aldr­inum 18-60 ára mega ekki yfir­gefa landið og þeir vilja það ekki. Allir vinir mínir sem ég hef talað við vilja vera í Úkraínu og vernda landið sitt. Stemm­ingin hjá karl­mönnum þar er ótrú­leg og líka hjá konum. Fólkið er magnað. Allir eru að reyna að hjálpa. Það eru tveir hópar í Úkraínu í dag: Einn hópur sem verndar landið og hinn hjálpar þeim hóp meðal ann­ars með því að elda og und­ir­búa allt sem þarf. Það reyna allir að gera eitt­hvað til að hjálpa. Þetta stríð er búið að sam­eina Úkra­ínu­menn úti um allan heim svo mikið.“

Júlía segir að hún hefði aldrei getað ímyndað sér að Rússar réð­ust inn í Úkraínu. „Það er ekk­ert verra en stríð. Innrásin kom mér alger­lega á óvart og ég gat ekki sam­þykkt þetta orð, stríð, í nokkra daga. Forseti okkar, Zelenskiy, lýsti þessu svona: „Innrásin hófst klukkan fjögur um morgun þegar allir voru sof­andi. putin (ég vil skrifa nafn hans með litlu „p“) réðst inn í Úkraínu alveg eins og hitler (líka lítið „h“) gerði á sínum tíma. Þetta var svartur húmor pútíns.“

Kjarnorkuvá

Úkraína og Rússland.

„Rússland hefur alltaf verið nágranna­land okkar. Það hefur alltaf verið mikil teng­ing á milli land­anna. Við eigum vini og fjöl­skyldu í Rúss­landi. Móð­ur­málin mín, sem ég tala jafn vel, eru úkra­ínska og rúss­neska. Í Úkraínu tölum við frjáls­lega hvaða tungu­mál sem hentar okkur. Opinbert tungu­mál í Úkraínu er úkra­ínska, alveg eins og íslenska á Íslandi, en þú getur talað hvaða tungu­mál sem þú vilt. Ég er til dæmis að kenna barn­inu mínu rúss­nesku frekar en úkra­ínsku, en ég end­ur­tek: Í Úkraínu talar fólk bæði úkra­ínsku og rúss­nesku. Þannig að það hafa ekki verið neinar sér­stakar pæl­ingar um Rússland eða Rússa hjá mér.

Á Íslandi átti ég nokkrar vin­konur sem eru rúss­neskar. Þetta voru fínar stelpur, en ég sé þeirra réttu and­lit núna. Eða eins og við segjum í okkar löndum: Við þekkjum raun­veru­lega vini þegar vanda­mál koma upp, á dimmum tímum lýsir af góðu fólki.

Þetta fólk er ekki lengur til í mínum huga.

Við erum ekki lengur vin­konur. Þær voru að segja mér að þær væru hlut­lausar varð­andi það sem er að ger­ast. Að vera hlut­laus varð­andi ástandið í Úkraínu þýðir að vera hjarta­laus og áhuga­laus; áhuga­laus um dauða barna og sak­lauss fólks. Þær sáu að ég var að öskra á hjálp til að stoppa þetta hel­víti, en það sem ég sá á Instagram hjá þeim voru „story“ um hvaða taska er í tísku á þessu ári og hvaða rauð­vín þær ætl­uðu að fá sér með kvöld­matnum. Þetta er skelfi­legt. Ég bað þær um að hafa aldrei aftur sam­band við mig. Þetta fólk er ekki lengur til í mínum huga. Sem betur fer eru hins vegar næstum því allir aðrir Rússar sem ég þekki á móti þessu hel­víti, sem á sér stað í Úkraínu, og hafa margir Rússar mót­mælt inn­rás Rússa.“

Talið berst að kjarn­orku­verum sem Rússar hafa náð á sitt vald og tali þeirra um beit­ingu kjarn­orku­vopna.

„Rúss­neskir her­menn reyndu 4. mars að sprengja Zaporizhzhia-kjarn­orku­verið. Ef þeir ná mark­miðum sínum og Zaporizhzhia-kjarn­orku­verið springur þá verður þetta sam­kvæmt utan­rík­is­ráð­herra Úkraínu, Dmytro Kuleba, 10 sinnum öfl­ugra en sá leki á kjarn­orku sem varð á Chernobyl-kjarn­orku­ver­inu á sínum tíma.“

Hjartað brestur

Júlía er spurð hvað hún hafi lært af þessu öllu saman.

„Það er ekk­ert í þessu lífi verra en stríð. Það sem ég hef líka lært er að rödd okkar, rödd venju­legs fólks, skiptir máli. Það er mik­il­vægt að vera með skoðun, að vera ekki hlut­laus eða hjarta­laus. Svo hef ég lært hverjir eru raun­veru­legir vinir. Ég veit og vona að sann­leik­ur­inn muni alltaf sigra.“

Júlía segir að hún og aðrir Úkra­ínu­menn búsettir á Íslandi hafi fundið mik­inn stuðn­ing frá Íslend­ingum.

Ég er bara orð­laus yfir allri ykkar hjálp.

„Íslend­ingar hafa þegar hjálpað ótrú­lega mikið og á Íslandi býr fólk með stórt hjarta sem sýnir samúð. Flótta­menn sem eru komnir til Íslands eru flestir mæður með börn og flestir eru fólk sem hefur ann­að­hvort komið hingað áður eða þekkir ein­hvern hér. Flótta­fjöl­skylda fékk inni á heim­ili Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra. Ég er bara orð­laus yfir allri ykkar hjálp, kæru Íslend­ingar og íbúar á Íslandi. Annað dæmi er að flótta­kona, Olena, þurfti hjálp hjá tann­lækni fyrir strák­inn sinn og um leið og hún nefndi það í Kast­ljósi var haft sam­band við hana og það er búið að laga vanda­málið

Allir vinir mínir höfðu strax sam­band við mig. Það voru allir að bjóða aðstoð og hjálp við það sem ég og fólkið mitt myndi mögu­lega þurfa. Ég þurfti hvorki að mæta í vinn­una né skól­ann. Vinir mínir og kunn­ingjar á Íslandi eru að bjóða hús­næði, pen­ing, vinnu, sál­fræði­að­stoð, föt fyrir bæði börn og full­orðna og allt það sem mögu­legt er að flótta­menn frá Úkraínu myndu þurfa. Þessi stuðn­ingur á Íslandi er ómet­an­legur fyrir okkur. Allir sem eru með hjarta hjálpa. Allir sem eru með hjarta hafa áhyggjur af þessu. Maður gleymir því aldrei þegar maður sá mynd­band af lít­illi stúlku syngja lag úr teikni­mynd­inni Frozen inni í sprengju­skýli, í stað­inn fyrir að vera heima hjá sér í hlýju rúmi, eða börn sem eru á barna­spít­ala vegna erf­iðra hjarta­sjúk­dóma eða eftir aðgerð, en læknar rifu þau úr rúmum með æða­vökva til að fela þau í sprengju­skýli vegna þess að rúss­neskir ter­r­oristar voru að sprengja barna­spít­ala. Hjartað brestur.“

Kom sem au pair

Ísland.

„Ég kom til Íslands sem au-pair árið 2008 þegar ég var 22 ára eftir að hafa lokið námi við háskól­ann í Kiev en ég er með BS-gráðu í félags­fræði og meistara­gráðu í við­skipta­fræði þaðan. Mig lang­aði alltaf að bæta við ensk­una mína og ég ákvað að fara til útlanda. Vinkona mín Marina, sem býr líka á Íslandi, var þá á Íslandi og sagði að það töl­uðu allir mjög góða ensku hér og hún mælti með því að ég kæmi hingað. Ég gerði það og hef aldrei séð eftir því.

Ég var hjá ynd­is­legri fjöl­skyldu í Kópavogi sem tók mjög vel á móti mér. Svo fór ég í Háskóla Íslands og tók ensku sem auka­grein og kláraði ferða­mála­fræði. Ég kynnt­ist barns­föður mínum og ákvað að vera á Íslandi.

Ég vann mikið í ferða­brans­anum þangað til Covid skall á og ynni ann­ars örugg­lega ennþá í þeim geira. Maður reynir alltaf að finna eitt­hvað jákvætt í öllu og í dag get ég satt að segja þakkað Covid fyrir að ég breytti um stefnu í líf­inu. Í dag er ég í sjúkra­liða­námi, vinn með ynd­is­legu fólki á hjarta­skurð­deild og stefni á að taka hjúkr­un­ar­fræði í fram­tíð­inni. Það kom í ljós að ég elska að vinna við þetta. Kannski hefur þetta alltaf legið fyrir mér af því að mamma mín er hjúkr­un­ar­fræð­ingur og systir mín er tann­læknir en heima var mikið talað um heil­brigð­is­geir­ann.“

Móðir hennar og systir komu til Íslands aðfara­nótt 15. mars.

Fjöl­skyldur Júlíu eru í tveimur löndum: Í öðru þeirra er sprengjuregn nú dag­legt brauð.

„Á Íslandi hef ég fengið bestu gjöf lífs míns, sem er strák­ur­inn minn, átta ára. Ég hef ynd­is­legt fólk í kringum mig sem er sam­býl­is­maður minn, barns­faðir minn og fjöl­skyldur þeirra sem ég kalla núna fjöl­skyldu mína.

Mamma mín, pabbi, systur, ömmur, frænkur og frændur eru í Úkraínu.

Ísland er jafn­dýr­mætt í huga mínum og Úkraína.“

Júlía fékk gleði­fréttir eftir að við­talið var tekið, en móðir hennar og systir komu til Íslands aðfara­nótt 15. mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi