Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Átök á Alþingi: „Formaður Viðreisnar, enn og aftur, eins ómálefnaleg og hún er nú“

Átök á Alþingi: „Formaður Viðreisnar, enn og aftur, eins ómálefnaleg og hún er nú“
Upp úr sauð á Alþingi í dag.

Upp úr sauð milli Lilju Alfreðs­dóttur, við­skipta­ráð­herra, og þing­flokks Við­reisnar á Alþingi í dag. Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, sak­aði Lilju um per­sónu­lega óvild í garð Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, for­manns Við­reisnar. Lilja kastaði bolt­anum þá til baka og sagði þessa per­sónu­legu óvild frekar vera frá þing­flokki Við­reisnar í garð hennar sjálfrar.

Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma, undir liðnum „fund­ar­stjórn for­seta“, spurði Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, Lilju Alfreðs­dóttur hvort hún hygð­ist hækka veiði­gjöld í ljósi þess að þing­meiri­hluti væri fyrir mál­inu, óháð rík­is­stjórn­ar­vilja.

„Ætlar ráð­herra að standa við stóru orðin, fylgja þeim eftir eins og alvöru for­ystu­fólk gerir og sjá til þess að meiri­hluta­vilji þings­ins ráði óháð rík­is­stjórn­ar­vilj­anum og þjóðin fái hærra og rétt­lát­ara gjald fyrir auð­lind­ina?“spurði Sigmar.

Var ósáttur með svör ráðherra

Lilja svar­aði á þá leið að þegar ákveðnar atvinnu­greinar væru farnar að skila gríð­ar­legum hagn­aði þyrfti að skoða það. Hún sagð­ist telja að það væri eðli­legt og sann­gj­ant gagn­vart sam­fé­lag­inu að gera það. Lilja bætti því við að sér væri orðið mjög ljóst hversu fram­farasinnuð sú rík­is­stjórn væri sem hún sæti í og að það kæmi henni ekki á óvart ef rík­is­stjórnin kæmi á óvart í þessu máli.

Sigmar var ekki nógu ánægður með svör Lilju, þótti þau helst til óljós, og ítrek­aði því fyr­ir­spurn­ina.

Lilja svar­aði ítrekun Sigmars á þann veg að það væri alltaf gaman að vera á þingi þegar menn yrðu svekktir. „Mér finnst eins og Sigmar hafi orðið svekktur.“ Að hennar mati hafi svar hennar verið býsna skýrt og öfl­ugt.

„Heyriði hvernig liðið lætur?“

Á þessum tíma­punkti greip Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, fram í og hlátra­sköll heyrð­ust úr sal. Það gekk ber­sýni­lega fram af Lilju. „Heyriði hvernig liðið lætur? Formaður Við­reisnar, enn og aftur, eins ómál­efna­leg og hún er nú. Ég vil bara koma þessu á fram­færi hér. Ég vil bara gera það.“

Þegar Lilja ætl­aði að halda áfram máli sínu var aftur gripið fram í úr salnum. „Má ég tala? Enn og aftur byrjar for­maður Við­reisnar. Hún ræður ekki við sig […] Það sem ég vildi segja hins­vegar; já, við munum beita okkur. Við erum í stjórn­málum til að hafa áhrif. Það höfum við sann­ar­lega gert á síð­asta kjör­tíma­bili og munum halda áfram að gera. Það sem ég held að sé að ger­ast hjá Viðreisn – hún er ein­fald­lega stressuð. Það er verið að taka for­ystu í málum sem skipta þjóð­ina máli í sjáv­ar­út­vegi. Og ég minni á það að Viðreisn og hátt­virtur for­maður Við­reisnar, hún var sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Hvað gerði hún? Ekkert. Ekkert.“

Sagði framkomu ráðherra óboðlega

Næst steig Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, í pontu og var mikið niðri fyrir. Hún gerði athuga­semd við fram­komu ráð­herr­ans og sagði hana alger­lega óboð­lega þegar verið væri að ræða mál­efni sem varð­aði þing og þjóð. „Ráðherra er ófær um að svara þeirri spurn­ingu að því er virð­ist vegna per­sónu­legrar óvildar í garð for­manns Við­reisnar. Óvildar sem hún verður sjálf að svara fyrir, ef hún treystir sér til, hvaðan er sprottin.“ Hanna Katrín bætti því við að við­skipta­ráð­herr­ann væri „ekki beint í far­ar­broddi þeirra sem hafa lyft veg og virð­ingu Alþingis sem mest.“

Sagði óvildina fremur á hinn veginn

Lilja Alfreðs­dóttir kom aftur í pontu og sagð­ist sann­ar­lega hafa svarað Sigmari. Það væri hennar skoðun að auka ætti gjald­töku á fyr­ir­tæki sem skil­uðu ofur­hagn­aði. „Þetta var mjög skýrt. Ég held hins vegar að þessi per­sónu­lega óvild sé mun fremur hjá þing­flokki Við­reisnar í garð ráð­herr­ans. Ég verð bara að segja eins og er, ég hef sjaldan séð hátt­virtan þing­mann jafn æsta og þegar hún kemur hingað í pontu; annað hvort að spyrja hátt­virtan ráð­herra út í ein­hver mál­efni, eða að fjalla…“

Aftur var gripið fram í úr sal og virð­ist það að þessu sinni hafa verið Hanna Katrín Frið­riks­son.

„Má ég svara? Ég er að fara yfir þetta, hátt­virtur þing­maður. Að ég svar­aði fyr­ir­spurn­inni, mál­efna­lega, og er búin að und­ir­búa þann mál­flutn­ing mjög vel.“

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tók undir gagn­rýn­ina á Lilju og sagði hana hafa nýtt megnið af tíma sínum í pontu til að ráð­ast á for­mann Við­reisnar, í stað þess að svara fyr­ir­spurn þing­manns flokks­ins. Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, sagði Lilju hafa farið yfir strikið.

Gísli Rafn Ólafsson, þing­maður Pírata spurði hvort þing­menn væru á skóla­þingi.

Ingi­björg Isaksen, þing­maður Fram­sóknar, bað fólk um að sýna þing­inu og hvert öðru virð­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi