Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigga, Beta og Elín sigruðu Reykjavíkurdætur með rúmlega 8.000 atkvæðum

Sigga, Beta og Elín sigruðu Reykjavíkurdætur með rúmlega 8.000 atkvæðum
Myndir/skjá­skot RÚV

Stiga­fjöldi þeirra atriða sem kepptu til sig­urs í Söngvakeppni sjón­varps­ins hefur nú verið opin­ber­aður á vef RÚV. Bæði er hægt að sjá dreif­ingu atkvæða úr síma­kosn­ingum, sem og atkvæði frá alþjóð­legri dóm­nefnd.

Syst­urnar Sigga, Beta og Elín sigr­uðu Reykja­vík­ur­dætur með 8.153 fleiri heild­ar­at­kvæðum í úrslitum Söngvakeppn­innar á laug­ar­dag­inn.

Heild­ar­fjöldi atkvæða systr­anna var 77.380 á móti 69.227 atkvæðum Reykja­vík­ur­dætra.

Reykjavíkurdætur efstar hjá dómnefnd og í fyrri kosningu

Lagið Turn This Around með Reykja­vík­ur­dætrum var þó efst á blaði hjá bæði dóm­nefnd og í síma­kosn­ing­unni eftir fyrri umferð kvölds­ins. Þannig voru þær með 26.320 atkvæði eftir fyrri síma­kosn­ingu kvölds­ins. Lagið Með hækk­andi sól var þar í öðru sæti með 24.083 atkvæði.

Atkvæði alþjóð­legu dóm­nefnd­ar­innar, sem hafði 50 pró­senta vægi á móti síma­kosn­ing­unni, voru á þann veg að Reykja­vík­ur­dætur hlutu 19.437 atkvæði á móti 18.141 atkvæði Siggu, Betu og Elínar.

Þannig urðu heild­ar­úr­slit fyrri síma­kosn­ingar og atkvæða dóm­nefndar þannig að Reykja­vík­ur­dætur voru í fyrsta sæti með 45.757 atkvæði og þær Sigga, Beta og Elín í öðru sæti með 42.224 atkvæði. Bæði lögin fóru með atkvæðin úr fyrri umferð­inni með sér í ein­vígið.

Systurnar sigruðu seinni kosningu með yfirburðum

Í seinni síma­kosn­ing­unni, í ein­vígi milli efstu lag­anna tveggja, fengu þær Sigga, Beta og Elín 35.156 atkvæði á móti 23.470 atkvæðum Reykja­vík­ur­dætra. Þar mun­aði því 11.686 atkvæðum á atrið­unum.

Líkt og fyrr segir voru sam­an­lögð atkvæði lag­anna tveggja, úr báðum síma­kosn­ingum og frá dóm­nefnd, þannig að Sigga, Beta og Elín sigr­uðu með 8.153 atkvæða for­ystu.

Hér fyrir neðan má sjá atkvæða­fjölda hvers lags á úrslita­kvöld­inu.

Niðurstaða fyrri símakosningar í úrslitum:

  1. Reykja­vík­ur­dætur – Turn This around: 26.320 atkvæði
  2. Sigga, Beta & Elín – Með hækk­andi sól: 24.083 atkvæði
  3. Amarosis – Don’t you know: 12.506 atkvæði
  4. Stefán Óli – Ljósið: 9.126 atkvæði
  5. Katla – Þaðan af: 5.972 atkvæði

Niðurstaða dómnefndar í úrslitum:

  1. Reykja­vík­ur­dætur – Turn This around: 19.437 atkvæði
  2. Sigga, Beta & Elín – Með hækk­andi sól: 18.141 atkvæði
  3. Katla – Þaðan af: 15.031 atkvæði
  4. Stefán Óli – Ljósið: 13.476 atkvæði
  5. Amarosis – Don’t you know: 11.921 atkvæði

Niðurstaða seinni símakosningar í einvígi:

  1. Sigga, Beta & Elín – Með hækk­andi sól: 35.156 atkvæði
  2. Reykja­vík­ur­dætur – Turn this around: 23.470 atkvæði

Heildarniðurstaða í úrslitum:

  1. Sigga, Beta og Elín – Með hækk­andi sól: 77.380 atkvæði
  2. Reykja­vík­ur­dætur – Turn This Around: 69.227 atkvæði
Sigga, Beta og Elín sigr­uðu Söngvakeppni sjón­varps­ins. Mynd/skjá­skot RÚV.

Í und­an­úr­slitum kepptu lögin á sitt­hvoru kvöld­inu. Þær Sigga, Beta og Elín unnu öruggan sigur í sínum und­an­úr­slitum, með 10.788 atkvæði. Næsta lag á eftir hlaut 7.017 atkvæði.

Reykja­vík­ur­dætur unnu afger­andi sigur á seinna und­an­úr­slita­kvöld­inu, með 13.137 atkvæði á móti 5.251 atkvæði lags­ins sem var í öðru sæti.

Sjö dóm­arar skip­uðu hina alþjóð­legu dóm­nefnd sem hafði 50 pró­senta vægi á móti fyrri síma­kosn­ingu úrslita­kvölds­ins. Hver og einn þeirra átti að raða lög­unum upp eftir gæðum, að eigin mati.

Atkvæði þeirra féllu með eft­ir­far­andi hætti:

Dómari 1

  1. Sigga, Beta & Elín – Með hækk­andi sól
  2. Katla – Þaðan af
  3. Stefán Óli – Ljósið
  4. Reykja­vík­ur­dætur – Tökum af stað
  5. Amarosis – Don’t You Know

Dómari 2

  1. Reykja­vík­ur­dætur – Turn this around
  2. Sigga, Beta & Elín – Með hækk­andi sól
  3. Amarosis – Don’t you know
  4. Katla – Þaðan af
  5. Stefán Óli – Ljósið

Dómari 3

  1. Reykja­vík­ur­dætur – Turn this around
  2. Sigga, Beta & Elín – Með hækk­andi sól
  3. Stefán Óli – Ljósið
  4. Katla – Þaðan af
  5. Amarosis – Don’t you know

Dómari 4

  1. Sigga, Beta & Elín – Með hækk­andi sól
  2. Katla – Þaðan af
  3. Reykja­vík­ur­dætur – Turn this around
  4. Stefán Óli – Ljósið
  5. Amarosis – Don’t you know

Dómari 5

  1. Reykja­vík­ur­dætur – Turn this around
  2. Stefán Óli – Ljósið
  3. Sigga, Beta & Elín – Með hækk­andi sól
  4. Amarosis – Don’t you know
  5. Katla – Þaðan af

Dómari 6

  1. Reykja­vík­ur­dætur – Turn this around
  2. Sigga, Beta & Elín – Með hækk­andi Sól
  3. Katla – Þaðan af
  4. Amarosis – Don’t you know
  5. Stefán Óli – Ljósið

Dómari 7

  1. Reykja­vík­ur­dætur – Turn this around
  2. Katla – Þaðan af
  3. Sigga, Beta & Elín – Með hækk­andi sól
  4. Stefán Óli – Ljósið
  5. Amarosis – Don’t you know

Hér fyrir neðan má svo sjá hvernig atkvæði síma­kosn­inga röð­uð­ust á hvoru und­an­úr­slita­kvöld­inu fyrir sig.

Fyrri undanúrslit – 26. febrúar

Sigga, Beta& Elín – Með hækk­andi sól: 10.788 akvæði
Stefán Óli – Ljósið: 7.017 atkvæði
Amarosis – Don’t you know (íslenska útgáfan): 7.006 atkvæði
Stefanía Svav­ars­dóttir – Hjartað mitt: 5613 atkvæði
Haffi Haff – Gía: 4.828 atkvæði

Seinni undanúrslit 5. mars

Reykja­vík­ur­dætur – Tökum af stað: 13.137 atkvæði
Katla – Þaðan af: 5251 atkvæði
Suncity & Sanna Martinez – Hækkum í botn: 4.170 atkvæði
Markéta – Mögulegt: 3.251 atkvæði
Hanna Mia and the Astrotourists – Séns með þér: 3.197 atkvæði

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi