Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tjón vegna fjárfestasvindls komið upp í hálfan milljarð frá 2017: „Sérhæfðir glæpamenn að störfum“

Tjón vegna fjárfestasvindls komið upp í hálfan milljarð frá 2017: „Sérhæfðir glæpamenn að störfum“

Í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik í kvöld var fjallað um svo­kallað fjár­festa­svindl, sem hefur færst mikið í auk­ana síð­ustu ár. Gísli Jökull Gíslason, rann­sókn­ar­lög­reglu­maður, sagði í þætt­inum að fjár­hæð tjóns úr þess konar svindli sér komið upp í næstum hálfan millj­arð hér á landi, frá árinu 2017.

Um er að ræða skipu­lagða glæp­a­starf­semi á net­inu sem leiðir venju­legt fólk í gildrur, með ýmsum gylli­boðum um væn­legar fjár­fest­ingar. Oft birt­ast svindl af þessu tagi upp­runa­lega sem aug­lýs­ingar, sem líta út fyrir að vera fréttir af þekktum frétta­miðlum. Gjarnan má þar sjá þekkta Íslend­inga, sem full­yrt er að hafi þénað vel á umræddri fjár­fest­ingu. Ef smellt er á „frétt­ina“ fær­ast not­endur yfir­leitt næst inn á síður sem virð­ast til­heyra hinu og þessu fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu, sem mælt var með í „frétt­inni“. Þar geta not­endur síðan tekið þátt í umræddri drauma­fjár­fest­ingu, með því að leggja til svo og svo mikið upp­hafsfé.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur nú birt færslu á Facebook-síðu sinni vegna þátt­ar­ins, en lög­reglan var í sam­starfi við Kveik til að vekja athygli á þessum ört vax­andi flokki net­glæpa, „sem er einn sá skæð­asti í dag“.

Hér að neðan má lesa verkn­að­ar­að­ferð umræddra svindl­ara, sem lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur birt, almenn­ingi til varnar og fræðslu. Þar segir að aðferðin sé oft­ast sú sama, með nokkrum blæ­brigðum.

1. Veiði glæpa­mann­anna:

Aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðlum eins og Facebook. Þessar aug­lýs­ingar gefa til kynna mik­inn gróða, oft­ast með fjár­fest­ingum í raf­mynt. Stundum er líka hringt beint í fólk.

2. Brota­þoli leiddur áfram:

Í aug­lýs­ing­unni er teng­ill sem leiðir oft á falska síðu sem er látin líta út fyrir að vera íslensk frétta­síða. Þar má sjá myndir af frægum Íslend­ingum, mis­not­aðar til að telja fólki trú um að þetta sé raun­veru­legt.

3. Netsíða „fjár­festa­fyr­ir­tækis“:

Það þarf ekki mikla kunn­áttu til að búa til hvers kyns net­síðu og láta hana líta út fyrir að vera raun­veru­lega. Á slíkum síðum er fólk hvatt til að skrá sig og sína. Síðan er stungið upp á því að fjár­festa fyrir við­ráð­an­lega upp­hæð, eins og 200 evrur og fara að græða.

4. Fylgt eftir með sím­hring­ingum:

Þetta er lyk­il­at­riði í svindlinu. Vina­legur „ráð­gjafi“ sem heitir þægi­legu nafni leggur sig fram við að vera besti þjón­ustu­að­il­inn en allt er það hluti af svindlinu. Þegar þeir hafa komið upp traust-sam­bandi (á ensku kallað con) þá fara þeir að hringja og segja að nú séu frá­bær tæki­færi á mark­aðnum og hvetja þig til að fjár­festa meira og meira. Í sýnd­ar­veru­leika heima­síð­unnar virð­ist við­kom­andi vera að græða en svo er ekki. Einu pen­ing­arnir eru þeir sem þeir eru að stela, engin fjár­fest­ing á sér stað. Þessu tíma­bili fylgir oft tíma­bundin vellíðan sem dregur brota­þola enn lengra inn í svind­lið.

5. Ný og ný flækju­stig:

Hunang og svipa, þeir nota ýmist gullin lof­orð eða til­kynna að nú sé allt að tap­ast nema fólk fjár­festi enn meira. Svo koma alls kyns skrýtin gjöld, jafn­vel þegar fólk vill fara að fá pen­inga til baka er þeim sagt að það sé ein­ungis hægt ef það sendir inn greiðslu.

Allt er þetta hluti af svika­myll­unni og þeir hætta ekki á meðan það er von á að ná meiri pen­ingum.

6. Nýjar nálg­anir:

Þegar þetta gengur ekki lengur þá reyna þeir nýjar aðferðir. Hót­un­ar­póstar um að það eigi að hand­taka þolendur fyrir þátt­töku í svindlinu af því þau tóku þátt í pen­inga­þvætti, nema þau greiði sekt. Eða þeir bíða um tíma og segj­ast svo vera fyr­ir­tæki sem getur end­ur­heimt pen­ing­ana, gegn fyr­ir­fram­greiðslu auð­vitað.

Allt þetta fer mjög illa með brota­þola, sem eru sendir í til­finn­inga­lega rús­sí­ban­areið og það til við­bótar við pen­ing­ana sem búið er að stela af þeim.

Aðferða­fræðin er mjög þróuð og glæpa­menn­irnir eru vel skipu­lagðir. Ein­stak­lingar sem þeir ná að grípa eru að keppa við skipu­lögð glæpa­sam­tök sem sér­hæfa sig í þessu.

Sumir hafa for­dóma gangvart brota­þolum í þessum málum. Það er röng nálgun. Svona glæpum fylgir oft mikil skömm hjá brota­þolum en munið að þarna eru sér­hæfðir glæpa­menn að störfum og hluti vinnu þeirra er að greina þá sem eru lík­legri til að falla fyrir þessum glæpum og það eru svindl­ar­arnir sem hafa ásetn­ing til að svíkja fé mis­kunn­ar­laust út úr fólki. Lögregla vill því brýna að það ætti engin skömm að fel­ast í því að fest­ast í hring­iðu fjár­festa­svindls.

Endilega hafið sam­band ef þið haldið að þið eða ein­hver sem þið þekkið séu brota­þolar í netsvikum í [email protected]

(Tekið frá lög­regl­unni á höf­uð­borgras­væð­inu)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi