Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óhugnanlegt hvarf Frakka í Vestmanneyjum – „Ég held að hann hafi verið orðinn þunglyndur“

Óhugnanlegt hvarf Frakka í Vestmanneyjum – „Ég held að hann hafi verið orðinn þunglyndur“

Þegar Bernard skil­aði sér ekki í kvöld­mat­inn fór vina­fólk hans að hafa áhyggjur en hann var þekktur fyrir stund­vísi. Þegar lengra leið á kvöldið var farið að svip­ast um eftir honum en ekk­ert sást til hans. Dagana á eftir var leitað hans en bar það engan árangur.

Bernard Journet fædd­ist í Suður Frakk­landi þann 9.júní árið 1946. Hann var mikið fyrir ferða­lög og þráði að sjá heim­inn. Eftir langa reisu kom hann til Íslands og leit­aði sér að vinnu í Reykja­vík. Þegar enga vinnu var að fá ákvað hann að færa sig til Vest­manna­eyja. Þar gisti hann í tjaldi, þar sem nú er fót­bolta­völlur.

Hann naut lífs­ins, kynnt­ist fólk­inu og skoð­aði eyj­una. Þrátt fyrir tak­mark­aða ensku­kunn­áttu eign­að­ist Bernard tvo vini sem komu reglu­lega og heim­sóttu hann í tjaldið, honum var boðið að vera heima hjá þessum félögum sínum um jól og ára­mót. Þegar fór að kólna aðstoð­aði fjöl­skylda vin­anna Bernard við að finna her­bergi í ver­búð, þar dvaldi hann upp frá því.

Hann vann í fiski og naut sín vel, afl­aði góðra tekna en eyddi eins litlu og hann komst upp með. Þó fór hann stundum að skemmta sér um helgar. Mest­allar tekjur sem hann vann sér inn fóru inn á banka­reikn­ing.

Sumarið 1968 sendir Bernard systk­inum sínum bréf og lýsir líf­inu á Íslandi, dýra­líf­inu og veð­ur­fari. Þetta var það síð­asta sem fjöl­skylda hans heyrði frá honum.

Bernhard var mik­ill göngu­maður mik­ill en um hádegi þann 12.maí árið 1969 fór hann í göngutúr, eins og hann var gjarn að gera. Hann var vænt­an­legur í mat­ar­boða til vina sinna um sjö leytið. Heima­maður sá Bernhard að gangi í Herj­ólfs­dal. Það var í síð­asta sinn sem hann sást.

Þann 18 maí, tæpri viku eftir að Bernard sást, var hafin form­leg leit að honum. Leitað var úr lofti, á bátum og fót­gang­andi en jörðin virt­ist hafa gleypt hann.

Banka­reikn­ing­ur­inn hans var óhreyfður og allt eins og það átti að vera í her­bergi hans. Ekkert fannst í víða­mik­illi leit af Bernard að und­an­skil­inni peysu sem talin er hafa verið í hans eigu.

Í des­em­ber árið 1989 sendi sak­sókn­ari í Frakk­landi beiðni þar sem farið er fram á að Bernard sé form­lega skráður horf­inn á Íslandi, þess þurfti svo hann gæti verið úrskurð­aður lát­inn í heima­landi sínu og svo að arfur yrði greiddur út.

„Ég held að Bernard hafi verið orð­inn þung­lyndur undir lokin,“ sagði kona sem þekkti til Bernards í sam­tali við Pressuna árið 1990. Hún hélt því fram að Bernard hafi beðið hana um að gift­ast sér en hún hafi neitað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi