Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hafþór Júlíus og Eddie Hall hræktu hvor á annan: „Ég ríf af þér fokking hausinn“

Hafþór Júlíus og Eddie Hall hræktu hvor á annan: „Ég ríf af þér fokking hausinn“
Mynd/skjá­skot Twitter

Það kastað­ist væg­ast sagt í kekki milli kraft­lyft­inga­mann­anna Hafþórs Júlíusar Björns­sonar og Eddie Hall á dög­unum. Í mynd­bandi sem hefur farið eins og eldur í sinu um netheima má sjá menn­ina tvo nán­ast lenda saman eftir að hafa látið ýmis fúk­yrðin fljúga. Að end­ingu sést Eddie Hall hrækja á Hafþór Júlíus, sem svarar í sömu mynt.

Menn­irnir tveir munu mæt­ast í bar­daga um helg­ina en svo virð­ist sem þeir séu einnig and­stæð­ingar utan hrings­ins og hafi kom­ist nálægt því að fá for­skot á sæl­una.

Í mynd­band­inu standa menn­irnir hvor ofan í öðrum og Eddie segir: „Ef þú fokk­ing snertir mig þá bít ég af þér nefið. Komdu út fyrir og ég ríf af þér fokk­ing haus­inn. Fokking ræf­ill.“

Eftir ein­hver óp þeirra á milli þar sem Hafþór svarar fúk­yrðum Eddie á svip­aðan hátt, heyr­ist hann öskra: „Fokkaðu þér.“

Því næst hrækir Eddie á Hafþór og Hafþór hrækir til baka í kjöl­farið.

Var augljóslega að skipuleggja þetta

Hafþór hefur tekið málið upp á Youtube-rás sinni. Hann segir Eddie hafa mætt óvænt á æfinga­svæði sitt. „Ég var að búa mig undir að byrja að æfa þegar ég fæ skila­boð um að Eddie væri fimm mín­útur í burtu,“ segir Hafþór. „Ég hafði ekki hug­mynd um að þetta væri að fara að ger­ast. Eddie var aug­ljós­lega að skipu­leggja þetta.“

Hafþór segir mik­inn æsing hafa verið í þessu og að fúk­yrðum hafi verið hreytt fram og til baka. Að lokum hafi þurft að draga Eddie út úr bygg­ing­unni og vill Hafþór meina að ein­hver hafi slasast í havarí­inu.

„Ég hrækti vissu­lega til baka og ég er ekki stoltur af því, en ég var upp­fullur af adrena­líni og var mjög brugðið yfir því að hann skyldi gera eitt­hvað svona ógeðs­legt.“

Hann segir að þrátt fyrir allt hafi honum tek­ist að halda sér þokka­lega rólegum.

„Ég hlakka til að stíga inn í hring­inn með Eddie á laug­ar­dag­inn svo við getum útkljáð þetta í eitt skipti fyrir öll, án þess að það breyt­ist í ógeðs­legan götu­slag, sem er greini­lega það sem Eddie var að fal­ast eftir, miðað við aug­ljósan skort hans á aga í atviki gær­dags­ins.“

Eddie Hall hefur nú við­ur­kennt að upp­á­koman hafi verið skipu­lögð fyr­ir­fram. „Ég var beð­inn um að fara þangað og hrista upp í hlut­unum, svo ég gerði það,“ segir hann.

Mynd­bandið má sjá hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi