Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Herdís er tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna: „Var svo hræðilega óánægð í lögfræðináminu“

Herdís er tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna: „Var svo hræðilega óánægð í lögfræðináminu“
Herdís Stef­áns­dóttir

„Það er ótrú­lega gaman að fá svona við­ur­kenn­ingu. Ég er búin að vinna mikið erlendis og það er gaman að vera ein­hvern veg­inn séður og við­ur­kenndur hérna heima á Íslandi. Svo er þetta svo mikil upp­skeru­há­tíð og gaman að hitta tón­list­ar­sam­fé­lagið og fagna saman,“ segir Herdís Stef­áns­dóttir tón­skáld sem er til­nefnd til Íslensku tón­list­ar­verð­laun­anna fyrir plötu árs­ins og upp­töku­stjórn árs­ins fyrir sjón­varps­þætt­ina Y: The Last Man og fyrir tit­il­lagið við Ver­búð­ina ásamt Kjartani Holm. Þess má geta að Herdís var einnig til­nefnd í fyrra og hitti­fyrra.

Hvað vill Herdís segja um tón­list­ina sem hún samdi fyrir sjón­varps­s­er­í­una Ver­búð­ina?

„Það eru næstum því tvö ár síðan við Kjartan Holm byrj­uðum að semja tón­list­ina fyrir Ver­búð­ina. Við vorum búin að lesa hand­ritið og það var ennþá verið að skjóta þætt­ina og vorum að átta okkur á um hvað þetta væri og hver stemm­ingin væri. Persónan Jón heldur í öðrum þætti epíska ræðu á Alþingi sem við köll­uðum „launa­þræla“ þar sem hann sem maður fólks­ins tal­aði fyrir bættum kjörum verka­lýðs­ins. Eftir því sem maður kynnt­ist honum og ser­í­unni og sá alla spill­ing­una þá var þetta nátt­úr­lega fólkið með pen­ing­ana sem var að hugsa um sjálft sig en not­aði þetta tæki eins og verka­lýð­ur­inn og almenna fólkið skipti engu máli. Við hugs­uðum með okkur hvað Jón myndi vera að hugsa og hvernig tón­list hann myndi vilja hafa þegar hann væri að sann­færa fólk um að hann væri tals­maður verka­lýðs­ins og væri með fólk­inu í liði. Þá kom hug­myndin að semja verka­lýðsinn­blásið lag og horfa til klass­ískra, íslenskra söng­laga eins og til dæmis Maí­stjörn­una. Við veltum fyrir okkur íslenskri söng­laga­hefð og verka­lýðslögum og svo horfðum við líka til Shostakovich og stórra útsetn­inga sem voru mikið í tísku á Sov­ét­tím­anum. Þannig að við vorum með alls konar pæl­ingar og það ein­hvern veg­inn varð svo kjarn­inn í tón­list­inni.“

Við erum með milljón útsetn­ingar af þessum hljómum.

Og úr varð tit­il­lagið. „Þegar við vorum búin að semja það þá byggð­ist öll tón­listin í Ver­búð­inni á þessu þema. Við erum með milljón útsetn­ingar af þessum hljómum; af þessu þema. Við erum með þetta þema með hvala­hljóðum. Við erum með þetta þema með sin­fóníu. Við erum með þetta þema með kór sem við tókum upp á Akureyri. Við erum með þetta þema í píanó­út­setn­ingu sem og í brassi og elektróník. Þannig að við gerðum enda­lausar útgáfur og það í raun og veru varð tón­listin í Ver­búð­inni.“

Eigin hljóð

Herdís er spurð hvað ein­kenni tón­list hennar almennt.

„Hvað sem ég geri þá er ég alltaf að reyna að gera eitt­hvað sem er spenn­andi og nýtt fyrir mér. Ég reyni að hugsa og prófa ný hljóð og prófa nýja hluti. Ég vil alltaf vera ég og gera eitt­hvað sem ég er. Ég get ekki sagt að ég sé að reyna að gera eitt­hvað ákveðið í minni tón­list annað en að gera eitt­hvað sem mér finnst vera geggjað og spenn­andi. Ég geri alltaf eitt­hvað ólíkt. Í grunn­inn kem ég úr raf­tón­list; ég er alltaf með ein­hverjar hljóð­pæl­ingar og ég bý til og safna mínum eigin hljóðum, sér­stak­lega í kvik­mynda­verk­efnum þar sem verk­efnin eru svo mis­mun­andi. Ég gert allt frá strengja­kvar­tett yfir í mjög elektrónískt skor. Að því leyti fer þetta eftir því í hvaða verk­efni ég er. Ég hef aldrei gert sömu sam­setn­ingar af hljóð­færum. Það er alltaf eitt­hvað nýtt.“

Herdís og eig­in­maður hennar, Dustin O’Halloran, píanó­leik­ari og tón­skáld, eru nýbúin að klára að semja tón­list við sex þátta bresk-banda­ríska sjón­varps­s­eríu, The Essex Serpent. „Þetta er fyrsta verk­efnið okkar saman og verða þætt­irnir sýndir í maí á Apple TV.“ Þess má geta að Dustin var á sínum tíma til­nefndur til BAFTA, Óskars- og Golden Globe-verð­launa fyrir tón­list­ina í kvik­mynd­inni Lion.

Herdís seg­ist oft einmitt semja dimma tón­list. Drunga­lega.

„Það var bara geggjað,“ segir Herdís um sam­vinnu þeirra. „Við erum ólík tón­skáld en það er samt mikil teng­ing á milli okkar. Þegar við vorum komin langt af stað í verk­efn­inu þá vissi ég stundum ekki hvað ég hafði samið og svo hvað hann hafði samið. Það var eins og við værum ein rödd. Þetta gekk ótrú­lega vel og var gaman. Við erum ólíkir karakt­erar; ég ímynd­aði mér að ég myndi semja tón­list­ina við atriði sem væru dimm og erfið en hann myndi taka fal­legu meló­díurnar en svo end­aði það á hinn veg­inn.“ Herdís seg­ist oft einmitt semja dimma tón­list. Drunga­lega. „Það er erfitt að útskýra af hverju maður gerir eitt­hvað eða hvað það er sem heillar mann en af ein­hverjum ástæðum hefur þetta komið auð­veld­lega frá mér. Það hefur stundum verið fyndið að ég fæ stundum „feedback“ frá leik­stjórum um að tón­listin sé of „scary“ en þá finnst mér það kannski verið geggjað eða fal­legt. Það er svo afstætt hvernig maður upp­lifir og túlkar tón­list.“

Fram undan er verk­efni sem Herdís segir að sé stærsta verk­efni sitt til þessa. Hún vill hins vegar ekki segja hvað það er. Hún má það ekki.

Ég var svo hræðilega óánægð

Herdís byrj­aði átta ára gömul að læra á píanó hjá píanó­kenn­ara sem bjó í sömu götu og þetta gerði hún af og til til 17 ára ald­urs. Hún fór aldrei í tón­list­ar­skóla og lærði aldrei tón­fræði eða hljóm­fræði. Hún var á nátt­úru­fræði­braut í Mennta­skól­anum í Reykja­vík og skráði sig svo í lög­fræði við Háskóla Íslands.

Mér leið ekki vel og vissi ekki hver ég var eða hvað ég átti að gera.

„Ég var svo hræði­lega óánægð í lög­fræði­nám­inu. Það átti svo illa við mig. Mér leið ekki vel og vissi ekki hver ég var eða hvað ég átti að gera. Ég fór svo að spila á píanóið þegar heim kom úr skól­anum og fór að búa til mín eigin lög. Mér fannst það vera fjar­stæðu­kennt að ég gæti samið tón­list; mér fannst það ekki vera raun­veru­legt. En svo fór ég virki­lega að hafa áhuga á því. Með fram lög­fræði­nám­inu fór ég í einaktíma í hljóm­fræði og svo fór ég að útsetja fyrir kór og strengja­kvar­tett.“

Það end­aði með því að Herdís hætti í lög­fræði­nám­inu. Hún útskrif­að­ist frá tón­smíða­deild Lista­há­skóla Íslands árið 2013 og lauk síðan árið 2017 meist­ara­námi í tón­smíðum með áherslu á kvik­mynda­tón­list frá New York Uni­versity. Hún bjó svo um tíma í Los Angeles en flutti svo heim til Íslands árið 2020.

Þau Dustin búa í Reykja­vík ásamt þriggja ára dóttur sinni sem er mús­ík­ölsk eins og mamma og pabbi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi