Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Síðustu skilaboðin sem Chris sendi eftir að hafa myrt fjölskyldu sína: „Hvað gerðirðu?“

Síðustu skilaboðin sem Chris sendi eftir að hafa myrt fjölskyldu sína: „Hvað gerðirðu?“
Chris Watts

Í nýju mynd­bandi sem kom­ist hefur í dreif­ingu á net­inu má sjá skýrslu­töku Nichol Kess­in­ger hjá lög­reglu, hvar hún sýnir texta­skila­boð sem þáver­andi kær­asti hennar, Chris Watts, sendi henni stuttu eftir að hann myrti fjöl­skyldu sína.

Chris Watts var sak­felldur fyrir að myrða ófríska eig­in­konu sína, Shanann Watts, og dætur þeirra tvær, Bellu og Cece, árið 2018. Upp­haf­lega hafði hann farið mik­inn í sam­skiptum við lög­reglu og fjöl­miðla þegar í ljós kom að Shanann og dætur þeirra voru „týndar“. Chris lék hlut­verk áhyggju­fulla fjöl­skyldu­föð­ur­ins á meðan fjöl­skylda, vinir og lög­regla leit­aði að mæðg­unum. Hann kom meðal ann­ars fram í frétta­tíma sjón­varps­ins og bað um að elsku­leg eig­in­kona hans og dætur myndu skila sér til baka á heim­ili fjöl­skyld­unnar, í Colorado í Banda­ríkj­unum, heilu og höldnu.

Chris, Shanann og dætur þeirra tvær, Bella og Cece.

Viðhélt ímynd elskandi fjölskylduföðurs

Tilkynnt var um hvarf mæðgn­anna þann 13. ágúst árið 2018. Chris ját­aði síðar að hafa myrt þær Shanann, sem var komin 15 vikur á leið með þriðja barn þeirra, Bellu, fjög­urra ára og Cece, þriggja ára, og falið lík þeirra á vinnu­svæði sem hann starf­aði á dag­ana í kringum morðin.

Hann ját­aði morðin á sig fyrir dómi þann 6. nóv­em­ber árið 2018 og fékk fimm sam­fellda lífs­tíð­ar­dóma, án mögu­leika á reynslu­lausn.

Í ljós kom að Chris hafði haldið fram­hjá Shanann um nokk­urt skeið og var far­inn að bera eitr­aðar til­finn­ingar til eig­in­konu sinnar. Það hvernig honum tókst að við­halda ímynd sinni sem elsk­andi eig­in­maður og fjöl­skyldu­faðir á meðan undir niðri blund­uðu slíkar hvatir og sið­leysi, reynd­ist aðstand­endum afar þung­bært og hroll­vekj­andi.

Málið var reifað í heim­ild­ar­þátt­unum „American Murder: The Family Next Door“ á Netflix.

Shanann Watts

„Hvar er fjölskyldan þín?“

Í mynd­band­inu sem fór í dreif­ingu nýverið, sem var tekið upp þegar lög­reglu­rann­sóknin á hvarfi mæðgn­anna var enn í gangi, sagði Nichol, hjá­kona Chris, frá sam­bandi þeirra tveggja og greindi frá því hvernig hún gekk á hann eftir að hvarf fjöl­skyldu hans komst í frétt­irnar.

Vef­mið­ill­inn People hefur gengið úr skugga um raun­mæti mynd­bands­ins, sem er að sögn þriggja klukk­stunda langt. Í því fer Nichol yfir texta­skila­boð sem þau Chris skipt­ust á eftir hvarf Shanann og systr­anna tveggja.

„Ég spurði hann ítrekað, „Hvað gerð­irðu Chris? Hvað gerð­irðu?““ sagði Nichol. „Ég spurði hann, „Hvar er fjöl­skyldan þín?““

Nichol sagð­ist hafa fundið fyrir miklu álagi á þessum tíma­punkti og að hún hafi sent honum önnur skila­boð, þar sem hún sagði: „Ef þú gerðir eitt­hvað slæmt þá muntu eyði­leggja líf þitt og mitt líf líka. Ég lofa þér því.“ Hún segir Chris hafa svarað á eft­ir­far­andi hátt: „Ég skað­aði fjöl­skyld­una mína ekki, Nicky.“

Nichol segir þetta hafa verið síð­ustu texta­skila­boð sem hún fékk frá Chris. „Ég sagði ekki eitt ein­asta orð við hann eftir þetta,“ sagði hún við rann­sókn­ar­lög­reglu­menn­ina.

Getur ekki fundið rauð flögg þegar hún horfir til baka

Í mynd­band­inu segir Nichol einnig að Chris hafi sagst vera far­inn frá eig­in­konu sinni; þau væru skilin að borði og sæng en að hann ætl­aði sér að sækja um lög­skilnað. Hún sagði lög­reglu­mönn­unum sem yfir­heyrðu hana að Chris hefði þó aldrei verið „fjand­sam­legur“ þegar hann tal­aði um fjöl­skyldu sína.

„Við áttum nokkrar sam­ræður um sam­band hans og hvernig það hafði þró­ast,“ sagði Nichol í yfir­heyrsl­unum, sam­kvæmt People. „Það var aldrei nein reiði. Það var enn bara vin­gjarn­legt. Hann sagði bara: „Þetta er ekki að ganga.““

Nichol sagði lög­reglu að hegðun Chris í gegnum sam­band þeirra hefði aldrei verið „óvenju­leg eða ógn­andi á neinn hátt.“

„Jafnvel enn þann dag í dag, eftir allt sem ég hef kom­ist að, þá horfi ég ennþá til baka og get ekki séð nein rauð flögg, engar við­vör­un­ar­bjöllur, varð­andi það hvernig hann tal­aði um fjöl­skyld­una sína,“ sagði hún.

Ef þú, eða ein­hver nákom­inn þér býr við heim­il­is­of­beldi, bendir Mannlíf á eft­ir­far­andi upp­lýs­ingar frá lög­reglu:
https://www.logreglan.is/fraedsla/ofbeldi/heimilisofbeldi/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife