Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tveggja ára stúlka á Þórshöfn lést úr Covid: „Við margsögðum að hún ætti erfitt með andardrátt“

Tveggja ára stúlka á Þórshöfn lést úr Covid: „Við margsögðum að hún ætti erfitt með andardrátt“
Arnar og Petra með börnin sín

For­eldrar tveggja ára stúlku sem lést eftir að hafa fengið Covid-19 telja lækn­is­þjón­ustu víða á lands­byggð­inni óásætt­an­lega en eru þau búsett á Þórshöfn í Langa­nes­byggð í Norður-Þing­eyj­ar­sýslu ásamt börnum sínum. Þá segja þau heil­brigð­is­kerfið hafa brugð­ist og velta því fyrir sér hvort það hefði verið hægt að bjarga dóttur þeirra ef hlustað hefði verið á þau.

hún er að reyna að gráta og hún getur það ekki

Þau Arnar Þór Ómarsson og Petra Bergrún Axels­dóttir for­eldrar Berg­lindar Bjargar lýstu því í kvöld­fréttum Stöðvar 2 hvernig heil­brigð­is­kerfið brást þeim þegar Berglind,dóttir þeirra, veikt­ist fyrsta sunnu­dag í mars.
Fyrr um dag­inn segja þau að Berglind hafi verið með til­tölu­lega lítil ein­kenni, smá kvef, háls­bólgu og hæsi. Það breytt­ist skyndi­lega um kvöldið þegar henni versn­aði hratt og hringdu þau þá á Lækna­vakt­ina til þess að leita ráða en þá var hún með 38,8 stiga hita.
Ráð­legg­ing­arnar sem þau fengu var að vera með hana við opinn glugga en þegar þau sjá að það ber ekki árangur hringja þau aftur á vakt­ina og óska eftir að ræða við lækni.

„Ég fæ að tala við lækn­inn. Hann talar um það að það séu 70 kíló­metrar að keyra til mín og hvort það megi ekki koma hjúkr­un­ar­fræð­ingur til mín,“ segir Arnar.
Lækn­ir­inn hringir þá út hjúkr­un­ar­fræð­ing sem er starfs­maður á dval­ar­heim­ili á Þórshöfn og mætir hann til fjöl­skyld­unnar í kjöl­farið.

„Hún kemur til okkar og stoppar stutt. Hún hlustar á henni bakið og segir að þetta sé bara eig­in­lega í nef­inu á henni. Hún reynir að taka súr­efn­is­mettun á putt­anum á henni sem að gengur ekki af því hún er með svo lít­inn putta, þannig að hún sleppir því bara alfarið,“ segir Arnar og bætir við að þau hafi nú heyrt að það eigi að mæla súr­efn­is­mettun á stóru tá á litlum börnum.
„Hún er með Covid-test sem hún segir að þurfi ekki að taka. Ég spyr þá hvort hún vilji ekki taka Covid-test á okkur en henni finnst það líka bara vera óþarfi.“
Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn ráð­leggur þeim að gefa henni Nezeril og hita­lækk­andi en þar með lýkur heim­sókn­inni.

Petra segir að Berglind hafi ekk­ert talað eftir að hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn fór og átti hún erfitt með anda­drátt. „Svo gef ég henni hita­lækk­andi þannig ég finn að hit­inn lækkar. Hún sofnar og sefur svo á bring­unni á mér. Ég treysti mér ekki til þess að fara að sofa því ég vildi bara fylgj­ast með henni,“ segir hún.

Berglind svaf illa og vakn­aði upp aftur og aftur um nótt­ina en þegar Petra stendur upp með hana sér hún að var­irnar eru farnar að blána.
„Þá sé ég að hún er að reyna, að hún getur ekki, hún er að reyna að gráta og hún getur það ekki. Þá fara var­irnar að blána. Þá vek ég pabba hennar og segi honum að hann verði að hringja á Neyð­ar­lín­una,“ segir Petra

„Ég legg hana bara strax niður á gólfið og byrja að blása og hnoða. Hún deyr bara hjá mér meðan ég er að reyna að blása í hana lífi,“ segir Arnar og bætir við að sjúkra­flutn­inga­menn­irnir hafi komið og barist og gert allt sem þeir gátu.

„Hún kemur hálf tíu, tíu, hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn og hún er dáin um þrjú leytið,“ segja Arnar og Petra en Berglind var úrskurðuð látin um klukkan fimm um nótt­ina.

Úr frum­nið­ur­stöðu krufn­ingar kom í ljós afger­andi nið­ur­staða en var það Covid-19 sem hafði lokað bark­anum á Berg­lindi. Arnar og Petra segja að Berglind hafi alltaf verið hraust. Hún var ákveðin, stjórn­aði eldri bræðrum sínum og fékk þá til þess að leika við sig.
„Það eru for­eldrar sem að þekkja börnin sín best. Við marg­töl­uðum um að þetta væri í bark­anum á henni og marg­sögðum að hún ætti erfitt með and­ar­drátt og það er bara hundsað,“ segja Petra og Arnar sem hafa nú ákveðið að flytja til Akur­eyrar þar sem þau dvelja núna. Ástæðan sé sú að þau hrein­lega treysti sér ekki til þess að búa með syni sína eins langt frá spít­ala og þau hafa gert hingað til en ljóst er að heil­brigðs­kerfið  brást fjöl­skyld­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi