Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tanja Björk: „Ég sat á baðherbergisgólfinu í algjöru þroti og ófær um að rísa á fætur “

Tanja Björk: „Ég sat á baðherbergisgólfinu í algjöru þroti og ófær um að rísa á fætur “
(Mynd: Ninna Pálma.)

„Ég held að það sé ómögu­legt að segja fyrir fram hvernig áhrif þetta mun hafa en ég upp­lifi alla­vega meiri utan­að­kom­andi áhuga en áður og vona að ég fái fullt af verk­efnum í fram­hald­inu. Ég sé tæki­færi til að taka pláss sem lista­kona í sviðs­listum og ætla mér að nýta það eins vel og hægt er,“ segir Tanja Björk Ólafs­dóttir leik­kona sem er til­nefnd til Kanadísku kvik­mynda- og sjón­varps­verð­laun­anna, Canadian Screen Awards, sem leik­kona í auka­hlut­verki í kanadísku kvik­mynd­inni Le Bruit des Moteurs sem kall­ast Vél­ar­hljóð á íslensku. Leik­stjór­inn, Philippe Grégoire, er til­nefndur fyrir bestu leik­stjórn.

Tanja Björk stund­aði leik­list­ar­nám við The American Academy of Dramatic Arts í Los Angeles og útskrif­að­ist árið 2018.

Rétt fyrir lok seinni annar var pabbi minn bráð­kvaddur.

„Ég fór út með börnin mín tvö sem voru þá tveggja og sjö ára. Námið var mjög krefj­andi en líka skemmti­legt; ég held mér hafi aldrei liðið jafn vel og fyrstu önn­ina þarna úti. Ég elskaði sól­ina og að vera upp­tekin frá morgni til kvölds við að læra á því sviði sem ég hef mestan áhuga á. Börnunum mínum gekk líka mjög vel að aðlag­ast en þetta var samt strembið. Rétt fyrir lok seinni annar var pabbi minn bráð­kvaddur og það rétt svo hófst að klára önn­ina áður en ég flaug heim en þetta sumar var mjög þungt og þoku­kennt. Önnin eftir það var mjög erfið og ég var næstum búin að gef­ast upp en ég svaf að með­al­tali fjóra tíma á nóttu til þess að geta haldið í við öll skóla­verk­efni og sinnt börn­unum mínum jafn­framt af alúð, enda vildi ég ekki að námið myndi bitna á þeim á nein hátt.“

Útskriftin var svo haldin í sama hús­næði og Ósk­arsverð­launin eru haldin. „Það var svo­lítið skemmti­legt að sjá þetta og var í raun allt öðru­vísi en ég bjóst við. Aðkoman er miklu hvers­dags­legri en ég hélt, en það var samt sem áður spenn­andi að fá að upp­lifa þetta umhverfi sem hefur hýst svo marga virta, skap­andi ein­stak­linga og heiðrað afrek þeirra. “

Þegar við vorum aftur komin út fór sonur minn í skóla­ferða­lag og þar var „shooter alarm”.

Einstæð móðir með tvö börn í borg englanna. „Ég var bundn­ari en flestir sam­nem­endur mínir þar sem ég var eini nem­and­inn í skól­anum sem átti börn og flestir vinir mínir utan skól­ans voru þarna til að elt­ast við fer­il­inn frekar en að stofna fjöl­skyldu. Ég kom heim um jólin 2018 og fann þá að mig lang­aði ekk­ert aftur út en það var um marga lausa enda að binda og ákvað að vera aðeins lengur. Þegar við vorum aftur komin út fór sonur minn í skóla­ferða­lag og þar var „shooter alarm”, eða „skotárás­ar­við­vörun“, og hann lýsti því fyrir mér að þau hefðu öll falið sig undir rúmunum. Sem betur fer var engin raun­veru­leg hætta á ferð en ég ákvað samt að þetta væri ekki raun­veru­leiki sem mig lang­aði að bjóða börn­unum mínum upp á og pakk­aði saman og gerði upp allt mitt á tveimur vikum og flutti heim. Þá var ég eig­in­lega bara alveg brunnin út og þakk­lát fyrir þá ró sem er að finna hérna á Íslandi. Ég sakna þess samt alveg að fara á lista­söfnin, í leik­húsið og út að borða á ynd­is­lega veit­inga­staði en ég myndi ekki flytja þangað aftur núna.“

„Ég sé tæki­færi til að taka pláss sem lista­kona í sviðs­listum og ætla mér að nýta það eins vel og hægt er.“ (Mynd: Nicol Vizioli.)

Höll sjálfsins

Svo er það fer­ill þess­arar ungu leikkonu.

„Ég hef fengið tæki­færi til þess að taka þátt í alls konar verk­efnum og er ég mjög þakk­lát fyrir það. Ég hef leikið í tón­list­ar­mynd­böndum svo sem hjá Eivør og Retro Stefson og í sviðs­verkum úti í LA svo sem Macbeth, Spring Awakening, Remembrance, Time Stands Still, All My Sons, Cry Havoc!, Dinner with Friends og Heaven Can Wait. Ég dýrka að vera á sviði og mér finnst ótrú­lega skemmti­leg vinnan í kringum það að skapa karakter. Hún lifir svo lengi í manni og mér þykir lengi vænt um hana eftir á. Ég geri alltaf mikla rann­sókn­ar­vinnu í kringum hlut­verkin sem ég tek að mér svo ég geti skilið virki­lega bak­grunn mann­eskj­unnar sem ég er að fara að lík­amna; ég held að það sé sér­stak­lega mik­il­vægt þegar um er að ræða per­íódu eða þegar leik­ritið er afmarkað við ákveð­inn stað á ákveðnum tíma. Svo fer líka mikil vinna í að finna lík­ams­hreyf­ingar hennar; að smeygja sér inn í skrokk per­són­unnar. Það er aðeins öðru­vísi á kvik­mynda­setti, allt öðru­vísi vinnu­flæði. Ég er alltaf þakk­lát þegar ég vinn með leik­stjórum sem vilja æfa fyrir fram með leik­ur­unum sínum en raunin er að það er ekki alltaf til­fellið, oft­ast vegna þess að það passar ekki inn í daga­talið. Það er öðru­vísi upp­götvun og skil á túlkun karakt­ers þegar það er fyrir hreyfi­mynda­formið en ég hef líka mjög gaman af að geta sett mik­inn kraft í styttri tíma og eftir situr verk sem end­ist og lifir áfram. Þetta er tvennt ólíkt og ég fíla bæði. Ég hef hins vegar ekki verið að vinna mikið í leik­list­inni síðan ég flutti heim, enda blússandi Covid á þeim tíma, en er byrjuð að láta vita af mér núna auk þess að vera að skapa mín eigin verk­efni.“

Ég elska að fá að segja sögur.

Tanja Björk er spurð hvað leik­listin gefi henni. „Leik­listin býður upp á að opna margar hurðir í höll sjálfs­ins. Ég held að það búi mjög margt innra með okkur og það er virki­lega spenn­andi fyrir mig að fá að máta allt sem það þýðir að vera mann­vera og leika mér með gefnar for­sendur hverju sinni eins og að upp­lifa hluta af sjálfri sér utan frá en samt innan frá sam­tímis því. Ég hef kynnst sjálfri mér hund­rað sinnum betur en ég hefði gert í öðru fagi. Ég hef líka lært mikið um heim­inn, mann­kyns­sögu og mann­fræði­leg fyr­ir­bæri í gegnum þá rann­sókn­ar­vinnu sem á sér stað í und­ir­bún­ings­ferli hlut­verks. Ég elska að fá að segja sögur og deila reynslu minni á líf­inu á þennan hátt. Svo er það líka þannig að ég á oft erfitt með að vera í núinu; ég er algjör draum­óra­mann­eskja sem er með hug­ann við eitt­hvað annað en þegar maður er að leika þarf maður að vera á staðnum og gefa allan fók­us­inn í sen­una. Það er eitt­hvað jarð­tengj­andi við það og ég finn hvernig það breytir líðan og við­móti inn í dag­inn bæði fyrir og eftir starfs­dag.“

„Leik­listin býður upp á að opna margar hurðir í höll sjálfs­ins.“ (Mynd: Ólöf Kristín Helga­dóttir.)

Álfar, hafmeyjur, nornir og guðir

Hún tal­aði um höll sjálfs­ins og að hafa kynnst sjálfri sér. Hvað ein­kennir hana sem leikkonu?

„Ég legg mig mikið fram við að setja mig djúpt inn í hug­ar­heim karakt­ers­ins sem ég er að túlka. Ég er viss um að flestir leik­arar geri það en hver og einn hefur sínar aðferðir við að ná því tak­marki. Ég hugsa að það sem ég hef heyrt hvað mest sé að ég er algjört kameljón en ég get breytt við­móti og útliti alveg gríð­ar­lega þrátt fyrir það að vera með frekar sér­kenni­legt lúkk. Ég er með sterkan bak­grunn í dansi og hefur það gríð­ar­lega mikið að segja fyrir mig hvernig ég vinn að því að skapa karakter. Ég er með mikla lík­ams­með­vit­und og ég held að það spili inn í mína nær­veru á sviði eða fyrir framan kameru. Ég á líka auð­velt með að sækja til­finn­ingar inn í sjálfa mig og tengja þær við þær aðstæður sem er búið að skapa fyrir karakt­er­inn og myndi ég elska að fá hlut­verk sem reynir virki­lega á það.“

Myndi eig­in­lega enn frekar vilja setja mig í spor ill­mennis sög­unnar.

Hvert er drauma­hlut­verkið? „Þau eru svo mörg. Ég hef lengi viljað leika hlut­verk Alice í Closer ef sú sýn­ing yrði sett upp hér­lendis en ég tók eina senu úr því leik­riti í senu­vinnu í nám­inu úti. Ég væri líka mikið til í að taka þátt í ævin­týra­sögum þar sem eru álfar, haf­meyjur, nornir og guðir á ferð. Lord of the Rings, Game of Thrones eða Vikings spin­off væri algjör draumur. Eða fá að vera ein­hvers konar geim­veru­drottn­ing. Ég hef alveg gaman af því að vera hetjan en myndi eig­in­lega enn frekar vilja setja mig í spor ill­mennis sög­unnar. Ég er opin fyrir hverju sem er og ég myndi segja að ég geti fundið neist­ann í flestum hlut­verkum.“

Tanja Björk er að vinna að tveimur stutt­myndum sem fara í tökur á þessu ári. „Svo veit ég ekk­ert hvað ger­ist næst. Það verður von­andi eitt­hvað skemmti­legt og spenn­andi.“

Hvernig er svo þessi heimur; leik­list­ar­heim­ur­inn sem virkar án efa ævin­týra­legur fyrir marga? „Hann er ansi fjöl­breyttur og mín reynsla af honum er lang­mest jákvæð. Auðvitað eru vanda­mál, eins og metoo-bylgjur gefa að kynna, auk þess sem ennþá eru mjög staðl­aðar feg­urðu­arí­myndir í fyr­ir­rúmi en mér finnst það samt vera að breyt­ast. Við verðum bara að halda áfram að rýna til gagns og krefj­ast breyt­inga í sam­fé­lag­inu og kvik­mynda­gerð. Ég verð samt að við­ur­kenna að ég hef oft upp­lifað mikla pressu varð­andi útlit. Ég er mjög með­vituð um það vegna þess að ég var með átrask­anir í mörg ár þegar ég var yngri og þarf að passa mig mjög vel að detta ekki ofan í þá gryfju að velta mér upp úr lík­ams­þyngd eða sentí­metrum. En ég hef alveg tekið eftir því að útlitið hefur oft meira að segja en við viljum við­ur­kenna.“

„Ég verð samt að við­ur­kenna að ég hef oft upp­lifað mikla pressu varð­andi útlit.“ (Mynd: Tinna Schram.)

Tónlistin og handritin

Leik­konan er að skrifa hand­rit.

„Ég er akkúrat núna að vinna að tveimur hand­ritum, stutt­mynd og þátta­röð. Ég er ennþá mjög ný í fram­leiðslu­hluta þess að koma vinn­unni sinni á fram­færi en ég er að sjó­ast hægt og rólega. Ég er einnig að vinna að leik­riti og teikni­mynda­sögu og er með safn af smá­sögum, örsögum og ljóðum sem ég hef ekki gefið út. Ég elska að skrifa. Ég hef unun af því að leika mér að orðum og þegar ég dett inn í flæðið þá get ég setið ein­beitt í marga klukku­tíma og bara leyft því að koma sem kemur. Mér finnst oft eins og ég sé að miðla; eins og sagan sé þegar til en hún sé að koma til mín í gegnum ein­hvers konar æðri mátt. En til þess að gefa sig á vald þess­ara sköp­un­ar­krafta þarf maður að gefa sér tíma í að setj­ast niður og byrja; það er oft og tíðum mín stærsta hindrun. Ég sæki mik­inn inn­blástur í mína eigin reynslu en ég er líka algjör fantasíunörd og mér finnst gaman að skapa heima þar sem eru allt önnur lög­mál en þau sem gilda í okkar heimi og sam­fé­lagi. Það er hægt að rann­saka og skapa ádeilu með því að taka allt annað sjón­ar­horn á hlut­ina. Það er auð­veld­ara að spyrja „af hverju er þetta svona?” með því að skapa ein­hverja aðra lausn og kynna hana í gegnum augu per­sónu. Það koma oft hug­myndir til mín þegar ég er að keyra þannig að ef ein­hver spottar mig og ég er að tala upp­hátt við sjálfa mig á rauðu ljósi þá er það vegna þess að ég er að taka upp hljóð­rit á sím­ann svo ég gleymi ekki hug­mynd­inni. Svo sorterar maður út hvað kveikir frek­ari áhuga og hvað býður upp á mögu­leika til að verða eitt­hvað meira.“

Tanja Björk fædd­ist og ólst upp í Lúx­em­borg. Faðir hennar var búinn að búa þar frá því hann var barn og móðir hennar fór þangað sem au pair og þar kynnt­ust þessir tveir ungu Íslend­ingar. Tanja Björk byrj­aði ung að læra á píanó og segir hún að for­eldrar sínir hafi báðir verið tón­elskir og að pabbi hennar hafi oft dregið fram gít­ar­inn í partíum.

Ég var alltaf hrædd við að vera „ekki nógu góð“.

„Ég var mjög feimin við að syngja og er það í raun­inni enn,“ segir Tanja Björk sem hefur verið að semja tón­list. „Þegar ég er að semja koma text­arnir mjög auð­veld­lega til mín og út frá þeim sprettur síðan melodía sem und­ir­strikar til­finn­ing­una á bak við orðin. Ég er til­tölu­lega nýbyrjuð að fram­kvæma þær hug­myndir sem koma til mín en ég hef oft verið að semja lög án þess að gefa þau út. Það er fyrst núna sem ég er að stíga inn í það hlut­verk og hef virki­lega gaman af því. Ég var alltaf hrædd við að vera „ekki nógu góð“ til þess að gefa eitt­hvað frá mér, enda með svolitla full­komn­un­ar­áráttu. Í dag reyni ég að hugsa með mér að það verði aldrei neitt full­skapað og allt í stöðugri þróun og svo er það bara spurn­ing um að gefa verk­inu líf og leyfa því að þró­ast eins og það vill gera.“

„Ég sæki mik­inn inn­blástur í mína eigin reynslu en ég er líka algjör fantasíunörd og mér finnst gaman að skapa heima þar sem eru allt önnur lög­mál en þau sem gilda í okkar heimi og sam­fé­lagi.“ (Mynd: Aðal­heiður Rós Mál­fríð­ar­dóttir.)

Nauðganir

Tanja Björk túlkar alls konar per­sónur í starfi sínu sem leik­kona; per­sónur sem hafa upp­lifað hitt og þetta. Hún er spurð hvaða lífs­reynsla hafi mótað hana sjálfa: Tönju Björk Ómars­dóttur. Hún, ung móð­irin, talar um trauma en þau áföll sem Tanja Björk seg­ist hafa gengið í gegnum eru föð­ur­missi, nauðg­anir og ofbeld­is­sam­band sem hún var í um tíma.

„Ég hef lært ofboðs­lega mikið af því að ganga í gegnum erf­ið­leika og kann mjög mikið að meta hug­arró sem ég hef náð að skapa fyrir sjálfa mig. Og von­andi get ég miðlað þeirri reynslu og mögu­lega hjálpað öðrum sem standa frammi fyrir því stóra verk­efni að vinna úr áföllum. Ég hefði alls ekki kynnst þeirri þraut­seigju sem ég bý yfir ef ég hefði ekki verið sett í þessi spor og ég held að það gildi það sama fyrir mig og marga aðra og við þá vil ég segja að þið eruð sterk­ari en þið vitið en það að heila sig eftir trauma er að mínu mati eitt­hvað sem krefst þess að fá hjálp frá þeim sem maður treystir í kringum sig og oft er erf­ið­asta skrefið að segja frá og svo biðja um hjálp. Ég var í mjög mörg ár að burð­ast með skömm, kvíða, og sjálfs­á­sak­anir sem drógu úr mér allan mátt en ég hef fengið svo góða hjálp frá fjöl­skyldu, vinum og fag­að­ilum eftir að ég þorði að opna mig almenni­lega um þá reynslu sem ég gekk í gegnum. Lífið er alls konar og við þurfum öll á hvert öðru að halda til þess að geta kom­ist í gegnum það. Fyrir utan allt sem hefur gengið á í per­sónu­legum sam­skiptum þá hefur það mótað mig mjög mikið að ferð­ast og kynn­ast ólíkri menn­ingu og við­horfum. Ég elska að kynn­ast fólki hvert sem ég fer og mér finnst það alveg sér­stak­lega skemmti­legt í stór­borgum þar sem fólk alls staðar að úr heim­inum kemur saman og býr í til­tölu­lega miklu sátt og sam­lyndi. Ég er stolt af því að ná að halda í trú á hinu góða í fólki almennt þótt mér hafi svo sann­ar­lega verið sýnt hvað er mikil grimmd í heim­inum og hvað fólk getur verið ljótt við hvert annað. Ég leyfi ekki illsk­unni að sigra mig með því að gera mig tor­tryggna þótt ég sé var­kár­ari og með miklu skýr­ari mörk en áður fyrr.“

Ég er svo þakk­lát fyrir það hversu margir hafa stigið fram og skilað skömminni

Trauma og áföll. Áfalla­sagan er löng. Í mörgum köflum. „Mér finnst vera erfitt að stíga fram og tala opin­ber­lega um þetta. Það vita þetta ekki margir og bráðum getur hver sem er flett upp í mínum við­kvæm­ustu og hræði­leg­ustu minn­ingum,“ segir Tanja Björk sem seg­ist hafa verið þol­andi nauð­gana oftar en einu sinni og oftar en tvisvar í gegnum árin. Hún talar um fyrstu nauðg­un­ina og áhrif hennar á sig.

„Það er erfitt að útskýra eft­ir­köstin en þau hafa oft og tíðum ekki einu sinni verið ljós fyrir sjálfri mér fyrr en löngu seinna. Fyrsta skiptið sem mér var nauðgað var þegar ég var fimmtán ára. Ég hafði verið að drekka á sveita­balli í Lúx­em­borg. Ég var ung og óreynd og vissi ekki betur. Ég man að þegar ég fór í EMDR-með­ferð í kjöl­far ann­ars áfalls til þess að sigr­ast á áfallastreitu, en í þeirri með­ferð snýst þetta að miklu leyti um að rétta af huga­skekkjur, þá sat ég þarna og tal­aði um mig sem 15 ára ung­ling og myndin sem ég var búin að teikna af sjálfri mér var ekki fal­leg; hvað ég væri heimsk að láta plata mig af þessum gæja og hvað ég var barna­leg að halda að hann vildi bara kíkja í göngutúr. En kannski er það ekk­ert skrítið, enda var ég í raun­inni bara barn. Ég myndi aldrei hugsa svona lagað um ein­hverja aðra mann­eskju, sama á hvaða aldri og í hvaða aðstæðum hún varð fyrir kyn­ferð­is­broti. En af hverju að hugsa svona um sjálfa mig? Ég er svo þakk­lát fyrir það hversu margir hafa stigið fram og skilað skömminni en þetta eru ekki bara ein­hver orð sem eru köstuð fram sem slag­orð bar­átt­unnar. Skömmin er mjög raun­veru­leg. Hjá mér var hún svo mikil að ég var í meira en 15 ár í afneitun varð­andi það sem átti sér stað. Það var ekki fyrr en ég fór að vinna úr öðrum brotum sem þetta fram­kall­að­ist allt í mjög skýrri mynd og ég horfð­ist í augu við hvað þetta hafði mikil áhrif á líf mitt. Ég hafði enga til­finn­ingu fyrir því hvers virði ég var. Mér fannst ég bara vera nógu góð til þess að þókn­ast öðrum og þegar ég horfi til baka þá var ég mjög týnd í mjög langan tíma vegna þess að með þessu broti var komin for­senda til þess að ýta mörkum mínum enn aftar, fjær því sem er heil­brigt og eðli­legt. Það eru svo margar og lúm­skar afleið­ingar við þessum glæp og ég hugsa oft hvernig líf mitt hefði verið öðru­vísi ef þetta hefði ekki gerst. Hvort hin atvikin hefðu átt sér stað. Hvort ég hefði skapað fleiri tæki­færi fyrir sjálfa mig. Hvort ég hefði elskað sjálfa mig fyrr. Það tap­ast svo margt í rof­inu sem á sér stað í huga manns þegar maður tekst á við svona áfall og ég syrgi það stundum að hafa glatað sjálfs­virð­ing­unni. Það vita það örugg­lega ekki allir að ef maður hefur einu sinni orðið fyrir ofbeldi er miklu lík­legra að það ger­ist aftur. Þannig var það hjá mér. Þetta fyrsta skipti opn­aði fyrir hálf­gert flóð af and­legu og seinna meir lík­am­legu ofbeldi en fyrir rest þá var það að vera beitt því af manni sem ég elskaði það sem lét mig ekki vilja lifa lengur. Það var algjört nið­ur­rif. Heilinn kann ekki að vinna úr þessum upp­lýs­ingum sem eru svona líka gjör­sam­lega á skjön. Að elska er sárs­auki, var nið­ur­staðan, og ég sætti mig við hana. Ég end­aði í algjörri kulnun eftir að því sam­bandi lauk en ég þekkti mig ekki lengur. Ég var í tvö ár að byggja mig aftur upp í mann­eskju sem ég kann­ast við og er sátt að lifa með alla daga. Að end­ur­heimta sjálfs­virð­ingu er stór­kost­legt og ég er mjög þakk­lát fyrir að hafa fengið að gera það og að fá tæki­færi til þess til þess að verða aftur heil.

Ég leit­aði mér hjálpar hjá sér­fræð­ingum, meðal ann­ars hjá Bjark­ar­hlíð og Stíga­mótum.

Bága stað­reyndin er sú að margar konur sem eru í sömu stöðu og ég var í fá ekki tæki­færi til þess. Ég er ein af þeim ofboðs­lega heppnu. Og ég er þakk­lát fyrir að hafa skiln­ing og inn­sæi inn í aðstæður sem er mjög erfitt að skilja án þess að hafa lifað þær. Það er auð­velt að dæma en erfitt að skilja. En ég er hér og ég stend með öllum þeim sem hafa verið og munu vera í þess­ari sömu stöðu. Ég leit­aði mér hjálpar hjá sér­fræð­ingum, meðal ann­ars hjá Bjark­ar­hlíð og Stíga­mótum. Ég finn hvað ég stend eftir svo miklu sterk­ari en ég hefði getað ímyndað mér þegar mér leið svo brot­inni, þegar ég sat á bað­her­berg­is­gólf­inu í algjöru þroti og ófær um að rísa á fætur því ég var lömuð af sorg og sær­indum. Ég vona að það nái til ein­hvers sem þarf að heyra það en það er til von þótt það sé erfitt að trúa því. Það er bara að kom­ast í gegnum einn dag í einu þar til að það hættir að vera spurn­ing um að lifa af og fer að snú­ast um það að blómstra.“

„En ég er hér og ég stend með öllum þeim sem hafa verið og munu vera í þess­ari sömu stöðu.“ (Mynd: Marinó Flóvent.)
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi