Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óhugnalegt hvarf Valgeirs – Grunur um saknæmt athæfi

Óhugnalegt hvarf Valgeirs – Grunur um saknæmt athæfi

Þegar faðir Valgeirs Víð­is­sonar kom af sjónum, náði hann engu sam­bandi við son sinn. Eftir ítrek­aðar til­raunir hafði hann loks sam­band við lög­reglu og kom þá í ljós að eng­inn hafði séð til, né talað við Valgeir í heila viku.

Valgeir var fæddur þann 11.júlí árið 1964. Faðir hans bjó í Reykja­vík en Valgeir ólst upp að mestu leiti hjá móður sinni í Vest­manna­eyjum. Þegar hann var kom­inn á ung­lingsár flutti hann í höf­uð­borg­ina til föður síns. Ungur byrj­aði Valgeir að fikta við fíkni­efni, því fylgdu ýmis smá­vægi­leg lög­brot en hann hafði meðal ann­ars verið hand­tek­inn fyrir vörslu fíkni­efna.

Þegar Valgeir var orð­inn þrí­tugur hafði hann þróað með sér fíkni­sjúk­dóm og var hand­tek­inn, ásamt nokkrum öðrum, fyrir að flytja til lands­ins tölu­vert magn af fíkni­efnum.

Faðir Valgeirs sagði son hans setið undir hót­unum frá mönnum í und­ir­heimum Reykja­víkur. Hann vissi þó ekki hvort það tengd­ist inn­flutn­ingnum og því að efnin hafi ekki skilað sér í réttar hendur.

Þann 19.júní árið 1994 var Valgeir í síma­sam­bandi við vin­konu sína og sagði henni að hann ætti von á mik­il­vægu sím­tali. Meira heyrð­ist ekki í Valgeiri.

Um kvöldið yfir­gaf hann íbúð sína við Laugaveg 143 í Reykja­vík á dökk­leitu hjóli. Hann skyldi eftir kveikt ljós og sjón­varpið í gangi, einnig var mynd sem Valgeir var að mála á striga í stof­unni. Því leit allt út fyrir að hann hafi ætlað sér rétt að skreppa en eng­inn vissi hvert ferð hans var heitið. Hann var klæddur í leð­ur­jakka, galla­buxur og reimuð stíg­vél. Þegar faðir Valgeirs náði engu sam­bandi við son sinn hófst strax umfangs­mikil leit að honum, enda var vika liðin síðan nokkur gat sagt til um ferðir hans. Margar ábend­ingar bár­ust lög­reglu og lá fljót­lega sá grunur að hvarf hans hafi orðið með sak­næmum hætti. Valgeir skuld­aði háar fjár­hæðir í und­ir­heimum lands­ins.

Vinur Valgeirs tók svo­kallað fíló­fax úr íbúð hans en það er nokk­urs­konar skipu­lags­dag­bók. Vinurinn skil­aði bók­inni til lög­reglu eftir að búið var að rífa úr henni nokkrar blað­síður sem höfðu að geyma dag­ana fyrir hvarfið. Lögregla náði aldrei neinni trú­verð­ugri útskýr­ingu á þessu frá vin­inum en hann var þó ekki tal­inn eiga aðild að hvarfi Valgeirs.

Eftir margar yfir­heyrslur og ábend­ingar færð­ist lög­regla ekk­ert nær því að finna Valgeir og var hann að lokum úrskurð­aður lát­inn árið 2000.

Árið 2001 komu þó nýjar upp­lýs­ingar um málið upp á yfir­borðið og voru tveir menn hand­teknir, annan þeirra þurfti að fram­selja frá Hollandi þar sem hann sat í fang­elsi. Áttu þessir menn að hafa hitt Valgeir kvöldið örlaga­ríka í bíla­stæða­húsi í Reykja­vík vegna fíkni­efna­skuldar. Þar áttu þeir að hafa gengið svo illa í skrokk á honum að hann hafi látið lífið og þeir svo falið líkið á óþekktum stað.

Það sem studdi þennan grun var að stuttu eftir hvarf Valgeirs fór annar mann­ana með bíl­inn sinn á verk­stæði og bað um að selja hann í brota­járn, hann sagði bíl­inn ryðg­aðan og illa farin að ekki yrðu frek­ari not af honum. Manninum á verk­stæð­inu fannst þetta und­ar­legt þar sem bíll­inn var í fínu standi, ennþá skrítn­ara var þó að í hann vant­aði alla inn­rétt­ingu. Skömmu síðar kom þriðji mað­ur­inn á verk­stæðið og ítrek­aði mik­il­vægi þess að bílnum yrði fargað sem fyrst.

Yfir­heyrsla yfir mönn­unum skil­aði þó engum árangri og var þeim að lokum sleppt enda neit­uðu þeir því stað­fast­lega að hafa eitt­hvað með hvar Valgeirs að gera.

Árið 2011 reyndi barns­móðir Valgeirs að fá málið tekið upp á nýju, bæði hún og faðir hans voru ósátt við rann­sókn­ina og töldu hana veru­lega ábóta­vana. Faðir hans segir nær öruggt að Valgeir hafi verið myrtur.

Valgeir var ein­hleypur og átti einn son. Hann var lág­vax­inn, grannur, skol­hærður og með blá augu.

Vin­sam­leg­ast hafðu sam­band við lög­reglu í síma 444-1000 ef þú telur þig hafa upp­lýs­ingar um málið.

Heim­ildir: Morg­un­blaðið, Helg­ar­póst­ur­inn, Saknað-Íslensk manns­hvörf eftir Bjarka H.Hall

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi