Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Oksana frá Úkraínu á Íslandi: „Á morgun vitum ekki hvað gæti gerst“

Oksana frá Úkraínu á Íslandi: „Á morgun vitum ekki hvað gæti gerst“
Stór­leik­konan Oksana Cherkashyna á íslensku kvik­mynda­há­tíð­inni Stockfish í lok mars 2022. Mynd: Brynjar Leó Hreiðarsson

Stockfish Kvik­mynda­há­tíðin fer nú fram í átt­unda sinn dag­ana 24. mars -3. apríl í Bíó Paradís. Yfir tutt­ugu alþjóð­legar verð­launa kvik­myndir eru sýndar ásamt stutt­mynda­keppn­inni Sprett­fiskur. Mannlíf lét sig ekki vanta og fékk þann heiður að ræða við Oksana Cherkashyna frá Úkraínu sem er aðal­leik­kona kvik­mynd­ar­innar Klondike.

Myndin var valin á Stockfish kvik­mynda­há­tíð­ina áður en stríðið braust út vegna þess að hún var að fá mjög góða dóma og vinna til verð­launa. Í ljósi núver­andi atburða var ákveðið að hún yrði opn­un­ar­mynd hátíð­ar­innar og að staðið yrði fyrir söfnun fyrir úkra­ínskt flótta­fólk hér á landi.

Borgin er staðsett við landmæri Rússlands, því miður

Oksana er upp­runa­lega frá Kharkiv í Úkraínu. „Þar ólst ég upp og varð að þeirri mann­eskju sem ég er í dag. Kharkiv er ein af stærstu borgum aust­ur­hluta Úkraínu og er borgin stað­sett við landa­mæri Rúss­lands, því miður. Og nú á meðan við erum að tala saman er rúss­neski her­inn að skjóta borgin niður með flug­skeytum og sprengjum.“

Í apríl mun Oksana taka þátt í upp­setn­ingu á nýrri sýn­ingu í Powszechny leik­hús­inu í Varsjá. „Þetta er gjörn­ingur sem er byggður á skáld­sög­unni Orlando eftir rit­höf­und­inn W. Woolf. En svo fer ég um leið og ég kem aftur heim í tökur á nýrri sjón­varps­s­eríu í Varsjá.

Eins og staðan er nú, er ég með aðsetur í Varsjá. Ég skamm­ast mín fyrir að segja þetta, en ég var svo hepp­inn að ná að yfir­gefa Úkraínu áður en inn­rásin hófst. Þann 14. febr­úar vorum við á frum­sýn­ingu á kvik­mynd­inni Klondike á Berl­inale kvik­mynda­há­tíð­inni og gistum þar alla hátíð­ina. Ég var með bók­aðar sýn­ingar í Varsjá þann 24. febr­úar svo ég ákvað að fara beint frá Berlín til Varsjá.

Þegar inn­rásin hófst, fann ég fyrir miklum innri sárs­auka. Sárs­aukin kom vegna þess að ég var svo langt frá ást­vinum mínum, á meðan að þau voru að upp­lifa stöðugar sprengju­árásir. Það hefur verið mjög sárt að vera ekki hjá þeim í Kharkiv og í Kyiv.“

Oksana segir að í ljósi aðstæðna muni móðir hennar og systir örugg­lega flytja frá Kharkiv og sam­ein­ast henni í Varsjá. Faðir minn neitar hins vegar að fara frá Úkraínu. Hann vinnur hjá hita­veit­unni í borg­inni og passar upp á að það sé hiti í hús­unum, sem er að sjálf­sögðu mjög mik­il­vægt. Hann sagði við mig að hann gæti ekki skilið eftir konur og börn án vatns og hita.

Pabbi minn er sönn hetja ásamt millj­ónum Úkra­ínu­manna sem hafa ákveðið að dvelja á heim­ilum sínum og standa saman gegn rúss­nesku hryðju­verka­árás­unum. Það hefur tekið mig nokkurn tíma að sætta mig við þessa ákvörðun föður míns og ég er enn að vinna í öllum þeim til­finn­ingum sem koma upp í þessum aðstæðu. En ég ætla ekki að missi von­ina.“

Þeir munu aldrei eyðileggja sjálfsmynd okkar 

Þetta er í fyrsta sinn sem Oksana heim­sækir Íslandi, en hún seg­ist hafa verið mjög spennt fyrir ferð­inni. „Svo fal­legt og ein­stakt land. Ég held að ákvörðun mín um að koma hingað hafi verið tví­þætt. Í fyrsta lagi þá hef ég fundið fyrir þeirri þörf að miðla því sem er að ger­ast í Úkraínu og hvað við höfum þurft að fara í gegnum með ást­vinum, vinum og sam­starfs­mönnum.

Annars vegar, er það að fá að taka þátt i kvik­mynda­há­tíð sem er alltaf svo­lítið frí og þeim fylgir svo mikil gleði. Ég fæ að kynn­ast nýju hæfi­leik­a­ríku fólki og fylgja kvik­mynda­draumnum mínum og mark­miðum. Þetta er hluti af mínu lífi og sjálfs­mynd minni. Rúss­neskir her­menn geta eyði­lagt húsin okkar, en þeir munu aldrei eyði­leggja sjálfs­mynd okkar né taka frá okkur sjálf­stæðið.“

Lífið fyrir stríð

Kvik­myndin fjallar um mót­spyrnu einnar konu. „Ég hef alltaf velt því mikið fyrir mér hvernig við getum unnið upp á móti öllu þessu ofbeldi, sem við Úkra­ínu­menn þurfum að lifa við.

Eftir að ég horfði á mynd­ina og sá minn karakter úr fjar­lægð sá ég að eig­in­leikar eins og; umönnun og blíða geta unnið gegn ofbeldi. Á sama tíma finnst mér það svo áhuga­vert að þessir eig­in­leikar séu oft­ast taldir kven­legir og litið til kvenna sem búa yfir þessum eig­in­leikum sem kúg­aðar. Í kvik­mynd­inni sjáum við greini­lega hvernig varn­ar­leysi sögu­hetj­unnar, þrá­hyggju­kennd tryggð hennar við heim­ilið, lífið fyrir stríðið og nýtt líf innra með henni verða hennar styrkur og hennar mót­staða gegn öllu ofbeld­inu í stríð­inu. Ég held að boð­skapur Klondike sé að þessi heimur gæti verið betri ef við værum aðeins blíð­ari og trygg hvort við annað.

Á Stockfish hátíð­inni fannst mér myndin virki­lega ná til hjarta áhorf­enda.

Ég mun aldrei missa vonina

Stríðið getur ekki stöðvast af sjálfu sér, það verður að stöðva það. Úkra­ínska þjóðin berst í örvænt­ingu fyrir fram­tíð sinni og ég held fyrir fram­tíð alls heims­ins. Heim­ur­inn getur ekki bara stigið til hliðar setið hjá. Okkur er sagt að ef NATO taki þátt í átök­unum muni þriðja heims­styrj­öldin hefj­ast. En það sem er að ger­ast núna í Kharkiv, Mariupol, Kyiv er heims­styrj­öld. Í dag eru millj­ónir manna í lífs­hættu, ást­vinir mínir og morgun vitum ekki hvað gæti gerst, kannski gæti það verið þú. Þannig að ef þjóðir heims finna ekki hug­rakkið hjá sér til að standa með okkur, biðjum við um hjálp svo við getum varið okkur sjálf.

Ég hef engin sér­stök plön fyrir fram­tíð­ina. Eftir 24. febr­úar hefur tím­inn flætt áfram eins og einn langur enda­laus dagur, sem ég vona að endi með sigri úkra­ínska hers­ins og úkra­ínsku þjóð­ar­innar gegn harð­stjórn Pútíns í Rúss­landi. Ég mun aldrei missa von­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi