Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Falun Gong-uppþotið: Íslensk stjórnvöld héldu fólki af „svörtum lista“ föngnu

Falun Gong-uppþotið: Íslensk stjórnvöld héldu fólki af „svörtum lista“ föngnu

Í júní árið 2002 kom Jiang Zemin, þáver­andi for­seti Kína, í opin­bera heim­sókn til Íslands. Þegar áform um heim­sókn­ina voru kunn­gerð ákváðu ein­hverjir með­limir Falun Gong-hreyf­ing­ar­innar að koma til lands­ins á sama tíma, í þeim til­gangi að mót­mæla með­ferð kín­verskra stjórn­valda á and­ófs­mönnum í Kína.

Davíð Oddsson var for­sæt­is­ráð­herra á þessum tíma og ákvað að setja hömlur á komu fólks sem grunað var um að til­heyra hreyf­ing­unni. Stjórn­völd lok­uðu hóp fólks inni dögum saman á tómum skóla á Suð­ur­nesjum við kom­una til lands­ins, svo öruggt væri að mót­mæl­endur skyggðu ekki á komu kín­verska ráða­manns­ins. Jiang Zemin bar meðal ann­ars ábyrgð á ofsóknum á hendur með­limum Falun Gong.

Á meðan fólk­inu var haldið föngnu af lög­reglu var hátíð­leg mót­taka haldin til heið­urs kín­verska for­set­anum, hvort tveggja í boði íslenskra stjórn­valda.

Samkvæmt grein sem birt­ist í Grapevine árið 2005 var far­þegum sem báru kín­versk nöfn bannað að fara um borð í flug­vélar Icelandair í Danmörku á leið til Íslands. Þarna hafði fólki því bæði verið mis­munað vegna trúar sinnar og nafna, allt sam­kvæmt fyr­ir­skipun íslenskra stjórn­valda.

Borgarstjórn ósammála ríkisstjórninni

Ekki virð­ist borg­ar­stjórn í Reykja­vík hafa verið sam­mála afstöðu rík­is­stjórn­ar­innar þegar kom að með­limum Falun Gong. Í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg í tengslum við heim­sókn for­set­ans sagði meðal ann­ars:

„Að gefnu til­efni vill borg­arráð árétta að það sam­ræm­ist ekki stefnu Reykjavíkur­borgar að tak­marka fjölda frið­samra mótmæl­enda í borg­inni. Ljóst er að tryggja verður öryggi erlendra gesta sem koma í opin­berum erinda­gjörðum hingað til lands. Ríkar ástæður þurfa hins vegar að vera fyrir því að tak­marka lýðræð­is­legan rétt fólks til að lýsa skoðun sinni eða afstöðu í tengslum við opin­berar heimsóknir.“ (Morg­un­blaðið)

Í sam­þykkt borg­ar­ráðs kom einnig fram að ekki staf­aði hætta af frið­sam­legum mótmælum. Þvert á móti væru þau eitt meg­in­ein­kenni lýðræð­is­legs stjórnar­fars sem byggð­ist á virð­ingu fyrir mannréttindum. Í Reykjavík væri baráttufólki fyrir mannréttindum því alltaf vel­komið að koma málstað sínum á fram­færi með friði.

Átti aldrei að sjá mótmælendur

Joel Chipkar var einn af helstu tals­mönnum Falun Gong hér á landi. Hann tók þátt í frið­sælum mót­mælum hreyf­ing­ar­innar vegna komu for­set­ans.

„„Falun Dafa ho“ hrópaði Joel Chipkar frá horni Ingólfs­strætis og Hverf­isgötu þegar for­seti Kína gekk frá bíl sínum en það mun þýða „Falun Dafa er gott“. Skömmu áður hafði hann gert sig líklegan til að draga upp gulan borða með merki Falun Gong en afhenti hann lögreglu eftir að hún hafði rætt við hann. Þegar Chipkar hrópaði að for­set­anum færðu nokkrir lögreglu­menn sig að honum en héldu sig þó innan við afmarkað örygg­is­svæði. Nokkrir kínverskir örygg­is­verðir hlupu til og stilltu sumir sér upp við hlið Chipkars. “ (Morg­un­blaðið)

Miklu púðri var eytt í að kín­verski for­set­inn sæi aldrei mót­mæl­endur og að mót­mæl­endur héldu sig á afmörk­uðum svæðum. For­set­inn sótti til dæmis fund með þeim Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgríms­syni í Þjóð­menn­ing­ar­hús­inu á allt öðrum tíma en aug­lýstur hafði verið, til þess að koma mætti í veg fyrir að for­set­inn yrði mót­mæl­end­anna var, sem senni­lega ætl­uðu sér að mæta að Þjóð­menn­ing­ar­hús­inu á sama tíma og Jiang Zemin.

Chipkar sagði það ósann­gjarnt að krefj­ast þess að fólkið væri á svæðum þar sem kín­verski for­set­inn sæi það ekki. Til­gangur Falun Gong-iðk­enda væri einmitt að vekja athygli á mann­rétt­inda­brotum í Kína. Chipkar sagð­ist sjálfur eiga vini sem hefðu verið pynt­aðir fyrir það eitt að leggja stund á Falun Gong.

Falun Gong

En hvað er Falun Gong? Auðvelt væri að gera sér í hug­ar­lund að um væri að ræða hóp mót­mæl­enda, hug­sjóna­fólks sem vildi rísa til valda í Kína; fólks sem ætl­aði sér að gera usla í heima­land­inu og ógna stjórn­völdum. Það væri afar auð­velt að gera sér það í hug­ar­lund, miðað við með­ferð kín­verskra stjórn­valda á fólk­inu og fram­komu íslenskra stjórn­valda í þeirra garð.

Falun Gong er hins vegar and­leg iðkun sem byggir á kerfi hug­leiðslu og and­legrar upp­ljóm­unar. Um er að ræða end­ur­vakn­ingu á fornri kín­verskri orku­leik­fimi. Kerfið inni­heldur fimm íhug­unaræf­ingar og leggur áherslu á sið­ferði. For­sprakkar hreyf­ing­ar­innar vildu meina að með iðkun Falun Gong mætti bæta heilsu sína til muna, svo mjög að lyf of hefð­bundnar lækn­ingar yrðu jafn­vel óþarfar. Árið 1999 bann­aði kín­verski komm­ún­ista­flokk­ur­inn hreyf­ing­una. Grunn­gildi iðk­un­ar­innar eru sann­leikur, sam­kennd og umburð­ar­lyndi. Þeir sem muna eftir komu hreyf­ing­ar­innar til lands­ins, eða þeirra fáu sem komust í gegn, muna ef til vill eftir sér­kenni­legum hreyf­ingum, eins­konar æfingum, sem með­lim­irnir gerðu. Um er að ræða sér­stakar hreyf­ingar sem iðk­endur nota í þeim til­gangi að styrkja and­lega þátt iðk­un­ar­innar.

Meðlimur í fylgdarliði forsetans tók myndir af mótmælendum

„Um tylft Falun Gong-iðk­enda var við Höfða í gær­morgun þegar for­seta­frú Kína, frú Wang Yeping, kom þangað í skoð­un­ar­ferð. Fólkið hélt sig á gras­flöt, all­langt frá húsinu, og gerði æfingar og stund­aði hug­leiðslu.

Maður í fylgd­ar­liði kínverska for­set­ans gekk frá Höfða og tók nokkrar myndir af hópnum.

Eins og kunn­ugt er gerðu tals­menn Falun Gong sam­komu­lag við lögreglu um að stunda æfing­arnar á þremur afmörkuðum svæðum, á Aust­ur­velli, Arnarhóli og í Hall­ar­garð­inum. Joel Chipkar, einn tals­manna Falun Gong-iðk­enda hér á landi, sagði við Morg­un­blaðið að þau hefðu komið með flugvél seint í gærkvöldi og ekki verið í sam­bandi við aðra iðk­endur. Þau hefðu því ekki vitað af sam­komu­lag­inu við lögregl­una. Um leið og hann frétti af fólkinu við Höfða hafi hann rætt við fólkið og fengið það til að færa sig.“ (Morg­un­blaðið)

Meðlimir í stjórn­ar­and­stöðu á Alþingi gerðu margir alvar­legar athuga­semdir við aðgerðir stórn­valda vegna heim­sóknar kín­verska for­set­ans. Þannig fóru full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar í alls­herj­ar­nefnd Alþingis fram á að nefndin kæmi saman til fundar vegna máls­ins.

Frétta­blaðið full­yrti á sínum tíma að íslensk stjórn­völd hefðu fengið „svartan lista“ kín­verskra stjórn­valda í hend­urnar sem inni­hélt nöfn fólks sem iðk­aði Falun Gong og til­heyrði hreyf­ing­unni. Þennan lista hafi stjórn­völd stuðst við þegar fólki var meinuð inn­ganga í landið. Íslensk stjórn­völd við­ur­kenndu á sínum tíma til­vist list­ans en hvorki stað­festu né neit­uðu því að hann kæmi úr höndum kín­verskra stjórn­valda.

„Síðan bann var lagt við Falun Gong hafa yfir 50.000 manns verið hand­teknir, meira en 10.000 hafa verið sendir í þrælk­un­ar­búðir án dóms og laga, 200 hafa verið dæmdir í fang­elsi og 1.000 manns hafa verið vistaðir á geð­sjúkra­húsum. Það versta er að yfir 200 manns hafa svo verið drepnir fyrir það eitt að leggja stund á æfing­arnar,“ sagði Kevin Yang, Falun Gong-iðk­andi í við­tali við DV þann 10. júní árið 2002.

Um sjö­tíu iðk­endum Falun Gong var meinuð inn­ganga í landið. 26 þess­ara ein­stak­linga komu til lands­ins með flug­vélum frá Banda­ríkj­unum. Þeir aðilar voru fluttir í Njarð­vík­ur­skóla við kom­una til lands­ins, þar sem þeir voru í haldi lög­reglu. Á fimmta tug ein­stak­linga sem komu með flug­vélum frá Kaup­manna­höfn og nokkrum með flugi frá öðrum Evr­ópu­löndum var synjað um inn­göngu.

Peter Rechnagel, þýskur náms­maður og með­limur Falun Gong-hreyf­ing­ar­innar, sem haldið var í Flugstöð Leif Eiríks­sonar, sagð­ist hafa verið í yfir­heyrslum í sex klukku­stundir. Hann sagði í sam­tali við DV að lög­reglan hefði þjar­mað að sér og ekki gefið honum skýr­ingar á hand­tök­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi