Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurður banaði manni með hníf: „Pabbi er félagi minn – Fíkillinn er hins vegar ekki pabbi minn“

Sigurður banaði manni með hníf: „Pabbi er félagi minn – Fíkillinn er hins vegar ekki pabbi minn“

Bragi fannst lát­inn í íbúð á Hverf­is­götu að morgni menn­ing­ar­nætur árið 2005. Bragi var gest­kom­andi í íbúð­inni, en þar bjó Sigurður, ásamt hjónum sem áttu íbúð­ina. Sigurður, Bragi og hús­bónd­inn sátu og töl­uðu saman við eld­hús­borðið. Sigurður seg­ist hafa gripið 14 cm flök­un­ar­hníf sem þarna var til þess að leggja áherslu á orð sín, en hann kvaðst ekki muna um hvað var rætt. Sigurður segir að hann og Bragi hafi staðið upp sam­tímis og hníf­ur­inn í kjöl­farið stung­ist í Braga.

Vitni segja hins vegar að Bragi hafi setið kyrr og aðeins Sigurður hafi staðið upp. Einnig sagði finnskur rétt­ar­meina­fræð­ingur að tölu­verðu afli hefði þurft að beita til að stinga Braga á þennan hátt, en hníf­ur­inn gekk í gegnum rús­skinnsjakka Braga, skinn, brjósk, lifur og hjarta.

Reynt var að bjarga Braga en honum blæddi út. Sigurður flúði vett­vang en sneri fljótt aftur og var þá hand­tek­inn af lög­reglu. Í blóði hans fannst bæði amfetamín og kókaín, en Sigurður hafði neytt eit­ur­lyfja marga daga í röð fyrir morðið, sem og drukkið áfengi. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi Sigurð sak­hæfan og til 14 ára og 6 mán­aða fang­els­is­vistar fyrir morðið í febr­úar 2006.

Sigurður sonur Kristmundar sem framdi morð á Guðjóni 1976

Snemma morg­uns þann 6. júlí 1976 barst lög­regl­unni í Reykja­vík til­kynn­ing um að maður lægi í mal­ar­gryfju við Fífu­hvamms­veg í Kópavogi og virt­ist lát­inn. Þegar fyrstu lög­reglu­menn­irnir komu á vett­vang var ljóst að dauða hans hafði borið að með afar ofbeld­is­fullum hætti. Líkið lá í blóð­polli og vant­aði tennur í neðri góm þess. Sá látni hét Guðjón og hafði komið við sögu lög­reglu, en lög­reglan átti fingraför hans á skrá. Nið­ur­staða krufn­ingar var sú að dán­ar­or­sök hans hafi verið mörg þung höf­uð­högg en að auki bentu rifja­brot og blæð­ingar í lungum til þess að hann hefði orðið fyrir ítrek­uðum bar­smíðum á brjóst­kassa.

Síðdegis sama dag fannst yfir­gef­inn Moskvitch-sendi­bif­reið í eigu hins látna við Kapla­skjóls­veg. Var bíll­inn úta­t­aður blóði að innan og þótti aug­ljóst að vett­vangur glæps­ins væri fund­inn. Á hlið­ar­rúðu bíls­ins fund­ust fingraför sem voru til á skrá lög­reglu.

Daginn eftir voru tveir ungir menn hand­teknir, þeir Krist­mundur og Albert Ragn­ars­son. Við yfir­heyrslur við­ur­kenndu þeir nokkuð greið­lega að hafa banað Guðjóni Atla.

Máls­at­vik voru þau að pilt­arnir höfðu hitt Guðjón á Umferð­ar­mið­stöð­inni og voru allir þrír vel við skál. Ákváðu þeir að keyra um höf­uð­borg­ar­svæðið á bif­reið Guðjóns og var mark­miðið að útvega með ein­hverjum hætti meira áfengi. Drengirnir fóru fljót­lega að leggja á ráðin um að ræna Guðjóni og loks báðu þeir hann um að nema staðar við áður­nefndar mal­ar­gryfjur. Þegar bif­reiðin var við það að nema staðar réð­ust pilt­arnir á fórn­ar­lamb sitt. Meðal ann­ars brutu þeir pilsner­flösku á höfði manns­ins. Átökin bár­ust út úr bif­reið­inni og þar börðu pilt­arnir fórn­ar­lamb sitt með hnefum og stálu loks pen­inga­vesk­inu.

Að því stöddu tók annar drengj­anna við stjórn bif­reið­ar­innar og eig­and­anum var komið fyrir hálf­rænu­lausum í aft­ur­sæti bíls­ins. Eftir að hafa ekið ögn lengra inn í mal­ar­gryfj­urnar ákváðu drengirnir að úr því sem komið væri þá væri besti kost­ur­inn að koma mann­inum fyrir katt­ar­nef. Þeir stöðv­uðu því bíl­inn og hleyptu Guðjóni út úr honum. Þegar hann steig út um dyrnar keyrði annar dreng­ur­inn stóran stein í höfuð hans og féll hann þá til jarðar án þess að gefa frá sér hljóð. Síðan börðu þeir hann með spýtu sem þeir fundu í grennd­inni þar til þeir voru þess full­vissir að Guðjón Atli væri allur.

Neitaði því að um ásetning hafi verið að ræða

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi Sigurð, sem var þá 23 ára, í 14 1/2 árs fang­elsi fyrir að hafa ráðið Braga bana, auk ann­arra afbrota. Hann var einnig dæmdur til að greiða sam­tals tæpar 7 millj­ónir króna í skaða­bætur og kostnað.

Sigurður játað fyrir dómi að hafa orðið pilt­inum að bana, en neit­aði því að um ásetn­ing hafi verið að ræða.

Sveinn Andri Sveins­son, lög­maður Sigurðar, sagði að: „hann hefði játað brotin sem hann hafi verið ákærður fyrir. Aðal­með­ferð í mál­inu hafi því að mestu snú­ast um „stig ásetn­ings“ í mann­dráps­mál­inu.“

Þegar atburð­ur­inn átti sér stað var Sigurður þegar úrskurð­aður í gæslu­varð­hald, en ástand hans var að sögn lög­reglu með þeim hætti að erfitt var að yfir­heyra hann.Lögregla var kvödd að íbúð­inni snemma á laug­ar­dags­morni með til­kynn­ingu um að maður hefði verið stung­inn. Þegar hún kom á vett­vang hófust þegar lífg­un­ar­til­raunir, en þær báru ekki árangur og mað­ur­inn lést skömmu síðar. Í íbúð­inni var lagt hald á hníf­inn sem talið var að hefði verið not­aður. Fleira fólk sem var í íbúð­inni, tveir karl­menn og ein kona, var einnig hand­tekið og yfir­heyrt en sleppt fljót­lega. Öll voru þau sögð í ann­ar­legu ástandi.

„Rappa ekki um dóp og pening því hvorugt er kúl“

Árið 2018 var rapp­ar­inn Krist­mundur Axel Krist­munds­son ákærður af Hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir að hafa þann 11. mars 2017 hótað að taka lög­reglu­kylfu af lög­reglu­manni og „valda honum lík­ams­meið­ingum,“ líkt og það er orðað í ákæru.

Krist­mundur vakti fyrst athygli árið 2010 þegar hann sigr­aði Söng­keppni fram­halds­skól­anna ásamt Júlí Heiðari með lagið Komdu til baka. Hann hefur und­an­farin ár gefið út nokkur lög svo sem Deyja fyrir hóp­inn minn og Spartacus (Alltaf eitur).

Síð­ar­nefnda lagið kom út stuttu fyrir atvikið sem hann var ákærður fyrir en í því lagi segir hann meðal ann­ars:

„Hleyptu mér inn ann­ars brýt ég fokk­ing hurð­ina […] Það er alltaf snjó­flóð“.

Hann vakti svo athygli um svipað leyti þegar hann birti mynd­bönd af fíkni­efna­neyslu sinni á Snapchat.

„Rappa ekki um dóp og pen­ing því hvor­ugt er kúl.“

Samkvæmt heim­ildum DV ákvað Krist­mundur að taka sig á og fór í með­ferð. Und­an­farið hefur Krist­mundi gengið allt í hag­inn en hann eign­að­ist dóttur sama ár.

Pabbi er ekki morðingi

Nokkrum árum áður, árið 2012 ræddi Krist­mundur Axel við DV um fíkn­ina sem hafði orðið nær allri fjöl­skyldu hans að bráð. Tveir bræður hans voru þá í fang­elsi. Sigurður sat inni fyrir að drepa Braga og hinn bróðir hans sat inni fyrir ýmsa smá­glæpi.

Faðir hans, Krist­mundur var yfir­leitt kall­aður Mundi morð­ingi en hann myrti Guðjón eins og fyrr kemur fram. Hann var í vímu þegar hann framdi morðið og náði sér að ein­hverju leyti á strik eftir að hafa tekið út dóm­inn.

Krist­mundur Axel lýsti föður sínum sem miklum og nánum félaga. „Við bjuggum saman bara við tveir, pabbi og ég. Ég hafði búið hjá honum í ell­efu ár. Flutti til hans ungur meðan mamma var að koma undir sig fót­unum vegna eigin drykkju­vanda. Mamma var að standa sig vel, en það æxl­að­ist samt þannig að ég bjó hjá honum. Ég átti gott líf með honum. Hann er alúð­legur maður, fullur af kær­leika. Hann er eng­inn morð­ingi. Hann er bara mann­eskja eins og ég og þú sem á erf­iða lífs­reynslu að baki. Hann vann sig í gegnum martröð­ina og var sterk­ari og betri maður fyrir vikið. Pabbi minn er félagi minn. Fík­ill­inn er hins vegar ekki pabbi minn og alls eng­inn félagi. Hann þekki ég ekki og vil ekki þekkja.“


Heim­ildir:
Björn Þor­finns­son. 26. febr­úar 2017. Morðin sem vöktu óhug árið 1976: Þrír átján ára gamlir drengir, í tveimur aðskildum málum, urðu mönnum að bana. DV.

Hjálmar Frið­riks­son. 17. októ­ber 2018. Krist­mundur Axel ákærður: Birti mynd­bönd af neyslu og fór í með­ferð. DV.

Inn­lendar fréttir. 18. febr­úar 2006. Sigurður Freyr Krist­munds­son dæmdur fyrir að hafa ráðið Braga Hall­dórs­syni bana og fleiri brot: Dæmdur til 14 1/2 árs fang­els­is­vistar. Morg­un­blaðið.

 Óli Kristján Ármanns­son. 23. des­em­ber 2005. Játaði mann­dráp en neit­aði ásetn­ingi. Visir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi