Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jasmina er þreytt á rasískum skilaboðum: „Var sagt að ég væri að ala upp Breivik heima hjá mér“

Jasmina er þreytt á rasískum skilaboðum: „Var sagt að ég væri að ala upp Breivik heima hjá mér“
Jasmina Vajzovic Crnac Mynd: Facebooksíða Reykjavíkurborgar

Leiðtogi alþjóðateymis vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar hefur í gegnum árin orðið fyrir for­dómum á sam­fé­lags­miðlum en hún er fædd í Bosníu og Her­segóvínu.

Jasmina Vajzović Crnac kom til lands­ins 16 ára gömul sem flótta­maður frá Bosníu og Her­segóvínu en hún upp­lifði stríðs­á­tök í Bosn­í­u­stríð­inu á tíunda ára­tug síð­ustu aldrar. Á þessu ári var hún ráðin sem leið­togi alþjóðateymis vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar og hefur hún meðal ann­ars verið að hjálpa Úkra­ínskum flótta­mönnum sem hingað flýja vegna stríðs­ins sem þar geisar nú um mundir. Hún hefur um langt skeið hjálpað flótta­fólki sem hingað hefur flúið og kennt þeim á kerfið og fleira sem nauð­syn­legt er að kunna til að geta sest að í nýju landi. Hún hefur sem sagt mikla reynslu í þessum málum.

Alltaf til rotin epli

Þó að lang­flestir séu hæstá­nægðir með hennar störf og skoð­anir í þessum mála­flokki eru alltaf ein­hverjir sem eru það ekki og senda henni for­dóma­fullt og ljót skila­boð. „Ég hef verið nokkuð áber­andi síð­ustu ár í umræð­unni um flótta­fólk, sem inn­flytj­andi sjálf og mér er mjög annt um öll þessi mál og hef alveg tekið mitt pláss í fjöl­miðlum í þessum mála­flokki. Þá hef ég alltaf fengið skila­boð frá skemmdum eplum. Til dæmis þegar stríðið í Sýrlandi stóð sem hæst, þá var mikið verið að tala um múslima og þar sem ég er Bosn­íumúslimi þá fékk ég skila­boð þegar ég var að tjá mig um stríðið, þar sem var sagt að ég væri að ala upp Breivik heima hjá mér, að ég væri að ala börnin mín upp sem Breivik. Mér hefur líka verið sagt að drulla mér heim, að ég sé ekki vel­komin á Íslandi. Það ger­ist nán­ast alltaf þegar ég er með aðrar skoð­anir en sumir Íslend­ingar og tjái mig um það, að þá fæ ég skila­boð þar sem mér er sagt að fara bara heim til mín. En ég segir bara að ég sé heima hjá mér, ég geti ekk­ert farið heim því ég er þar nú þegar.“

Jasmina segir að sér finn­ist þetta áhuga­vert og að hún velti því fyrir sér hvað fólki fái eig­in­lega út úr þessu. „Það að fólk þurfi endi­lega að senda mér skila­boð og tjá mér sínar skoð­anir á mér og mínum mál­efnum án þess að vita og skilja hvað ég er að tala um, að senda mér skila­boð á Messen­ger til dæmis, ég skil ekki til­gang­inn með þessu. Ég þekki þau ekki neitt og þau vita ekk­ert hvað ég hef verið að skrifa um og tala fyrir.“

Aðspurð hvort um sé að ræða alltaf sama fólkið segir Jasmina svo ekki vera. Þetta séu mis­mun­andi ein­stak­lingar en stundum fái hún það á til­finn­ing­unni að um gervi­per­sónur séu að ræða, þ.e.a.s. að fólk sé að skrifa undir dul­nefni, gervi aðgangi á Facebook.

Óþolinmæði gagnvart skoðunum innflytjenda

Jasmina segir að þetta fari lítið fyrir brjóstið á henni en að hún sé orðin frekar þreytt á þessu. „Það virð­ist vera svo lítil þol­in­mæði fyrir því að fólk af erlendum upp­runa sé að hafa skoð­anir á hlut­unum og ef það hefur skoð­anir að þá eru það ekki réttu skoð­an­irnar,“ segir Jasmina en tekur fram að hún sé ekki bara að tala um sjálfa sig því margir fái enn gróf­ari skila­boð en hún og það er sett út á staf­setn­ingu við­kom­andi og farið í per­són­una, frekar en mál­efnin. „Ég er aðal­lega að tala um þetta núna því ég veit að vinir mínir hafa verið að fá ógeðs­leg­ustu skila­boðin, ég er að fá mun væg­ari skila­boð og kippi mér lítið upp við það. Ég á vini sem eru dökkir á hör­und og hafa verið að kvarta undan þessu en fá ekki sömu umfjöllun og ég. Þess vegna finnst mér mik­il­vægt að tala almennt um þetta, að það virð­ist vera fólk í sam­fé­lag­inu sem hefur minni þol­in­mæði gagn­vart fólki af erlendum upp­runa sem er að tjá sig á opin­berum vett­vangi. Ef við ætlum að búa til fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag þar sem allir fái að vera með, þá þarf að vera hægt að taka gagn­rýni um eitt­hvað sem betur má fara, svo að sam­fé­lagið verði betra fyrir okkur öll. Ég held að við á Íslandi þurfum að geta tekið umræð­una án þess að ein­hver móðg­ist þó ein­hver hafi öðru­vísi skoðun en aðrir og að við þurfum ekki alltaf að skipta okkur í dilka, eins og það sé aðal­at­riðið. Við þurfum bara að stefna á það að búa til betra sam­fé­lag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi