Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Natalia komst frá Kyiv til Íslands, telur að Pútín muni ganga mjög langt: „Hann er verri en Hitler“

Natalia komst frá Kyiv til Íslands, telur að Pútín muni ganga mjög langt: „Hann er verri en Hitler“
Natalia Hor­dikova

„Ég heyrði spreng­ingar snemma morg­uns 24. febr­úar þegar var verið að varpa sprengjum á Boryspil-flug­völl nálægt Kyiv en ég bjó þar nálægt. Ég fór út úr hús­inu á hádegi sama dag og hafði aðeins lít­inn bak­poka með­ferðis,“ segir Natalia Khor­dikova sem er nýkomin til Íslands og er þar með í hópi þeirra Úkra­ínu­manna sem hafa komið hingað til lands vegna stríðs­ins í heima­land­inu. „Ég fór heim til dóttur minnar, Zoryana, vegna þess að það er kjall­ari í hús­inu þar sem hún býr. Ég von­aði að við gætum verið þar öruggar fyrir sprengj­unum.“

Við heyrðum enda­lausar spreng­ingar og jörðin og húsið skalf.

Natalia fædd­ist og ólst upp í Kyiv, höf­uð­borg Úkraínu, þar sem hún starf­aði sem grunn­skóla­kenn­ari en hún lærði barna­sál­fræði. Mæðgurnar og aðrir íbúar fjöl­býl­is­húss­ins söfn­uð­ust saman í kjall­ar­anum um kvöldið og voru þar næstu daga og nætur .„Fólk var í sjokki og börn grétu. Húsið er í úthverfi Kyiv og skammt frá borg­inni Irpin þar sem hörð hern­að­ar­á­tök áttu sér stað. Við heyrðum enda­lausar spreng­ingar og jörðin og húsið skalf. Við heyrðum í rúss­neskum flug­vélum og féllu sprengjur á ein­býl­is­húsin rétt við húsið og við sáum eld og reyk. Fólkið í kjall­ar­anum sagð­ist aldrei trúa því að stríð af þess­ari stærð­argráðu myndi brjót­ast út þegar Rússar réð­ust inn í Úkraínu. Við eigum öll ætt­ingja og vini í Rúss­landi.“

Við vorum hrædd við að fara úr kjall­ar­anum.

Fólk svaf og borð­aði á gólf­inu í kjall­ar­anum. Natalia segir að þar hafi verið 30-40 full­orðnir og 15-20 börn. „Við vorum hrædd við að fara úr kjall­ar­anum og inn í íbúð­irnar til að elda mat en við heyrðum enda­laust í sírenum og sprengjum sem féllu. Allir trúðu á úkra­ínska her­menn og fólk bað fyrir þeim og lífi okkar.“

Natalia segir að þær mæðgur og hundur Zoryana, sem er af teg­und­inni Golden Retri­ever, hafi dvalið í kjall­ar­anum í 12 sól­ar­hringa frá stríðs­byrjun 24. febr­úar.

„9. mars fórum við mæðgurnar og hund­ur­inn í bíl frá Kyiv og ókum til borg­ar­innar Lviv. Við keyrðum í tvo daga á slæmum vegum á milli þorpa og við dóttir mín vorum hrædd um að Rússar myndu varpa sprengjum á veg­ina og að skotið yrði á bíl­ana. Það var fullt af bílum; það voru börn, gam­alt fólk og jafn­vel dýr í öllum bíl­unum. Zoryana og hund­ur­inn urðu eftir í Lviv þar sem hún starfar sem sjálf­boða­liði á lest­ar­stöð­inni í borg­inni og aðstoðar flótta­fólk.“

Konur og börn í lestinni

Natalia tók lest 13. mars frá Lvov til að fara til Póllands.

Margar konur voru ekki með far­angur með sér.

„Á frið­ar­tímum tekur ferðin með lest um tvær klukku­stundir en að þessu sinni tók ferðin um 13 klukku­stundir. Það voru margar mæður, ömmur og börn í lest­inni – en úkra­ínskum körlum á aldr­inum 18 til 60 ára var bannað að fara úr landi – og fólk sat ekki bara í sæt­unum heldur líka á bak­pokum á göng­unum á milli sætarað­anna og margar konur stóðu. Margar konur voru ekki með far­angur með sér. Enga aukafatnað. Þær töl­uðu um hversu erfitt það væri að yfir­gefa heim­ili sín og hvað þær væru hræddar þegar þeir heyrðu spreng­ingar og skot­hríð.“

Lestin stopp­aði svo loks­ins á lest­ar­stöð í Przemysl í Póllandi.

„Ég er þakk­lát sjálf­boða­lið­unum í Przemysl. Við fengum strax að borða og útskýrðum hvernig og hvert við værum að fara næst. Ég er mjög þakk­látur vinum mínum í Póllandi en tvær úkra­ínskar flótta­fjöl­skyldur búa í íbúð­inni þeirra. Ég gisti þar í eina nótt og síðan fóru vinir mínir með mig út á flug­völl en ég flaug til Íslands 15. mars.“

Reiði og hatur

Natalia seg­ist varla hafa trúað því að hún væri að fljúga til frið­sæls lands þar sem ekk­ert stríð geisar.

Ég fann fyrir reiði og hatri í garð óvin­anna.

„Eftir inn­rás Rússa í Úkraínu var ég undr­andi og lang­aði að spyrja hvers vegna Rússar gerðu þetta. Svo var ég reið þegar ég frétti af voða­verkum þeirra, sá myndir af rústum borga sem áður höfðu blómstrað og frétti af dauða óbreyttra borg­ara. Ég fann fyrir reiði og hatri í garð óvin­anna sem leyfðu ekki íbúum að yfir­gefa borgir og bæi og margir full­orðnir og börn voru drepin. Ég gat hvorki borðað né sofið en þegar ég sofn­aði vakn­aði ég tveimur eða þremur tímum síðar.“

Natalia hefur liðið betur eftir að hún kom til Íslands. „Það sem ég upp­lifi á Íslandi er að ég er í frið­sælu landi, það er þögn og engar sprengjur falla. Okkur var vel tekið og ég vil þakka stjórn­völdum og lands­mönnum fyrir aðstoð­ina sem við höfum fengið. Mig langar að finna vinnu og mig dreymir um að kynn­ast feg­urð Íslands: Að skoða til dæmis fossa og hveri.“

Dóttir Natalia er í Lviv eins og hefur komið fram og sonur hennar er í Kyiv.

„Systir mín og faðir, sem er 86 ára, eru enn í Kyiv. Pabbi er veikur og getur ekki farið. Ég hef miklar áhyggjur af öryggi fjöl­skyldu minnar en þau eru ánægð fyrir mína hönd vegna þess að ég er örugg. Þau sögðu mér að fara til Íslands svo að ég yrði örugg.“ Guð­dóttir Natalia býr á Íslandi og aðstoðar hana.

Virðist vilja þriðju heimsstyrjöldina

Natalia seg­ist aldrei hafa trúað því að Rússar myndu hefja stríð í Úkraínu og það hafi komið sér á óvart þegar þeir réð­ust inn í landið í síð­asta mán­uði.

„Þegar ég var yngri dáð­ist ég að rúss­neskum lista­mönnum eins og rit­höf­undum og skáldum og þegar ég var full­orðin fór ég til St. Pét­urs­borgar og Moskvu og fór í frá­bær söfn og leik­hús. En það var sárt þegar Rússar inn­lim­uðu Krím­skag­ann árið 2014 og hófu stríð í Donbass. Í kjöl­farið hófst áróður í Rúss­landi um að Úkra­ínu­menn væru óvinir Rúss­lands.“

Hann virð­ist vilja þriðju heims­styrj­öld­ina.

Natalia seg­ist halda að Pútín muni ganga mjög langt. „Hann er verri en Hitler. Pútín getur fyr­ir­skipað notkun kjarn­orku­vopna eða hann getur fyr­ir­skipað að sprengja Tsjerno­byl-kjarn­orku­verið í loft upp. Honum er sama þótt fólk verði drepið; hann virð­ist vilja vald yfir öllum heim­inum. Rússnesk stjórn­völd hafa áhuga á hags­munum rúss­nesku olíg­ar­kanna en virð­ast ekki hafa áhuga á óbreyttum borg­urum. Und­an­farna daga og vikur hef ég kom­ist að því að hetjur úkra­ínska hers­ins og Úkra­ínu­menn eru sterk þjóð. Úkra­ínu­menn trúa á sigur í Úkraínu. Allur heim­ur­inn styður Úkraínu í bar­átt­unni gegn Pútín. Markmið Pútíns er ekki aðeins að vinna stríðið í Úkraínu. Ef Pútín vinnur stríðið í Úkraínu mun hann ekki hætta. Hann mun berj­ast við önnur Evr­ópu­lönd. Pútín virð­ist vilja búa til sitt eigið heims­veldi. Hann virð­ist vilja þriðju heims­styrj­öld­ina. Litla Úkraína heldur aftur af her Pútíns og kemur í veg fyrir að hann ráð­ist inn í önnur Evr­ópu­lönd. Alþjóða­sam­fé­lagið ætti að vera með­vitað um þetta. Fáir Rússar skilja frelsi, vilja­frelsi, hugs­ana- og tján­ing­ar­frelsi. Ég bjó í Sov­ét­ríkj­unum í 27 ár og veit hvað falskur áróður er. Ég man hvernig fólk trúði áróðri. Þannig að þótt Rússland sé þræll áróð­urs Pútíns virð­ist hann hata ekki aðeins Úkraínu heldur allan heim­inn. Rússar virð­ast vilja leggja undir sig Evrópu og Banda­ríkin og vilja völd yfir öllum heim­inum. Fólk í Evrópu og Banda­ríkj­unum býr í lýð­ræð­is­ríkjum, það er húman­istar og skilur ekki illsk­una sem býr að baki Rúss­landi og Pútín.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi