Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það eru engir femínistar á Spáni“: Höfundur athugasemdar um Lenyu – „í rúminu“ – krafinn svara

„Það eru engir femínistar á Spáni“: Höfundur athugasemdar um Lenyu – „í rúminu“ – krafinn svara

Mannlíf fer nú af stað með reglu­lega lið­inn „Kommentin krufin“. Þar verða kimar athuga­semda­kerf­is­ins skoð­aðir og athuga­semdir kann­aðar sem vakið hafa mikla athygli eða þykja umdeildar, til­urð þeirra og hvað fyrir höf­undum þeirra vakti.

Sam­fé­lags­miðlar skipa æ stærri sess í sam­fé­lag­inu og vægi þeirra hefur auk­ist að sama skapi. Athuga­semda­kerfi frétta­miðla hafa löngum verið alræmdir for­arpyttir þar sem öllu er slengt fram; for­dómum, sleggju­dómum og almennum dóna­skap, svo eitt­hvað sé nefnt.

Facebook og Twitter eru hvað vin­sæl­astir sam­fé­lags­miðla hvað þetta varðar.

Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­maður Pírata, birti nýverið skila­boð sem karl­maður lét falla um hana í athuga­semda­kerfi á Facebook. Þar skrifar Facebook-not­and­inn Steinar Harð­ar­son að Lenya Rún sé villt. Jósep Þor­björns­son bætir þá við: „Í rúm­inu“.

Umrædd athuga­semd.

Mannlíf hafði sam­band við Jósep, sem áður var eig­andi skemmti­stað­ar­ins Traffic í Reykja­nesbæ, og spurði hann hvað fyrir honum hefði vakið þegar hann skrif­aði athuga­semd­ina.

„Þetta var bara grín hjá mér. Ég þekki hana ekk­ert og veit ekki hver þetta er einu sinni.“

Inntur frekar eftir því hvað vaki fyrir honum við skrif athuga­semda af þessu tagi ítrek­aði hann að um grín hefði verið að ræða. „Hann skrif­aði „hún er villt“ – þá bætti ég bara þessu við.“

Aðspurður hvort honum þætti athuga­semdin við­eig­andi sagði hann að hún væri ein­falt grín. „Eru allir femínistar á Íslandi orðnir svona… er allt orðið svona slæmt á Íslandi, eða?“

Engir femínistar á Spáni

„Ef ein­hver maður segir eitt­hvað grín þá er þetta bara orðið alvar­legt mál,“ sagði Jósep, aðspurður um hvað hann ætti við.

„Sem betur fer bý ég ekki á Íslandi.“

Nú, hvar býrðu?

„Ég bý á Spáni.“

Er ástandið allt annað þar?

„Já, það eru engir femínistar á Spáni.“

Engir femínistar á Spáni?

„Ekki eins mikið og á Íslandi.“

Og ertu ósáttur við femínista á íslandi?

„Nei, nei, ég skipti mér ekki af því. Kemur mér ekk­ert við. Ég þekki marga hægri, vinstri og allt. Það eru margir góðir og margir slæmir.“

Þegar maður skilur eftir svona athuga­semd, þá er hún opin­ber.

„Já, ég veit það. Á Facebook.“

Nú erum við nátt­úru­lega að tala um konu sem hefur orðið fyrir tals­verðu áreiti í svona opnum kommenta­kerfum. Vara­þing­konu.

„Já, já, þetta var bara ein­falt grín. Ég meinti ekk­ert slæmt með þessu.“

Hefðirðu grín­ast á sama hátt ef um karl­mann hefði verið að ræða?

„Já, já. Það skiptir mig engu máli hvort það sé karl­maður eða kven­maður. Ég hef ekk­ert slæmt um þessa konu að segja því ég þekki hana ekki – ég veit ekki einu sinni hver þetta er.“

Geturðu skilið að það komi kannski illa við hana að lesa svona komment?

„Það getur vel verið. Þá bara skrifa ég ekk­ert svona aftur um ein­hverja konu.“

Það er kannski eitt­hvað til að velta fyrir sér.

„Já já, ég meinti ekk­ert slæmt með þessu. Ég bara sá þetta, hann skrifar „hún er villt“. Ef þetta hefði verið karl­maður og það hefði verið sagt „hann er villtur“, þá hefði ég gert það sama.

Ég hef ekk­ert á móti neinum þarna á Íslandi. Þetta var kannski fljót­færni, af því þetta er alþing­is­kona og hún er að vinna fyrir þjóð­ina. Þá er auð­vitað betra að skrifa ekk­ert svona um konu sem er í svona vinnu,“ segir Jósep að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi