Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aðgerðir lögreglu á Strawberries og horfnu verðmætin: „Í boði var að fara afsíðis í bakherbergi“

Aðgerðir lögreglu á Strawberries og horfnu verðmætin: „Í boði var að fara afsíðis í bakherbergi“
Mynd/skjá­skot RÚV

Árið 2013 sætti kampa­víns­klúbb­ur­inn Strawberries lög­reglu­rann­sókn vegna meintrar vænd­is­starf­semi og mansals. Viðar Már Frið­finns­son, eig­andi stað­ar­ins, var hand­tek­inn ásamt fjórum öðrum starfs­mönnum og staðnum lokað. Hús­leitir voru fram­kvæmdar og lagt hald á umtals­verða fjár­muni sem og ýmis önnur verð­mæti. Staðnum var end­an­lega lokað árið 2014 en tveimur árum síðar kærði Viðar Már lög­reglu til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara vegna aðgerð­anna. Þegar skatta­laga­brot Viðars Más var tekið fyrir kom í ljós að þau verð­mæti sem höfðu verið gerð upp­tæk á Strawberries og á heim­ili hans voru horfin úr hirslum lög­reglu.

Grunur um milligögnu um sölu vændis

Í frétt RÚV um tál­beitu­að­gerðir og rassíu lög­regl­unnar, lokun Strawberries og hand­töku ofan­greindra fimm aðila frá 26. októ­ber árið 2013 segir:

„Fimm voru í kvöld úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald til 8. nóv­em­ber í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, eftir að lög­regla hand­tók þá á skemmti­staðnum Strawberries í nótt. Menn­irnir eru grun­aðir um að hafa haft milli­göngu um vændi.

Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að lög­reglan hafi í nótt hand­tekið fjóra starfs­menn og eig­anda veit­inga­stað­ar­ins Strawberries. Að auki voru þrír hand­teknir grun­aðir um kaup á vændi. Staðnum hefur verið lokað um óákveð­inn tíma í þágu rann­sóknar máls­ins. Einnig var gerð hús­leit á öðrum stöðum sem taldir eru tengj­ast eig­anda Strawberries. Grunur leikur á að höfð hafi verið milli­ganga um sölu vændis á staðnum und­an­farna mán­uði og jafn­vel miss­eri. 

Auk þeirra sem hand­teknir voru í nótt var ein kona hand­tekin grunuð um sölu fíkni­efna. Sjö konur voru á staðnum og voru þær yfir­heyrðar sem vitni. 

Í til­kynn­ing­unni frá lög­reglu segir að leyfi stað­ar­ins verði end­ur­skoðað í ljósi máls­ins.“

Þegar lög­regla lét til skarar skríða hafði starf­semi svo­kall­aðra kampa­víns­staða verið tölu­vert í deigl­unni og stað­irnir umdeildir. Björk Vil­helms­dóttir, vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hafði til að mynda mælt fyrir þings­á­lyktun um starf­semi stað­anna tæpum tveimur vikum fyrr. Til­gang­ur­inn var að koma í veg fyrir rekstur staða sem gerðu út á fáklæddar konur og sölu á þeim í einka­rýmum.

Blaðamenn rannsaka kampavínsstaði

Nokkrum árum áður en hand­tökur og rassía lög­reglu fór fram á Strawberries, hafði staðnum verið lokað nokkrum sinnum vegna brota á vín­veit­inga­lög­gjöf­inni. Árið 2010 var lögum um starf­semi nekt­ar­dans­staða breytt en kampa­víns­klúb­b­arnir tóku þá að spretta upp í stað­inn. For­svars­menn stað­anna sögðu alla starf­semi þeirra vera innan laga­legra marka.

Blaða­menn Frétta­blaðs­ins heim­sóttu tvo þess­ara staða árið 2013. Í frá­sögn þeirra sagði meðal ann­ars:

„Það var svipað umhorfs inni á VIP-Club og á Crystal. Þar störf­uðu nokkrar stúlkur sem kváð­ust vera frá Slóveníu. Þær höfðu aðeins búið á Íslandi í eina viku en töl­uðu eilitla ensku. Þær sögð­ust búa allar saman í lít­illi blokkar­í­búð og því vera mjög nánar. Ein kvenn­anna var greini­legur yfir­maður þeirra og virt­ust kon­urnar leita til hennar eftir sam­þykki um næstu skref í sam­skipt­unum. Í boði var að fara afsíðis í bak­her­bergi. Þar gátu þær veitt heim­ild­ar­manni „það sem hann vildi“ án þess að frek­ari útskýr­ingar fylgdu. Tíu mín­útur með stúlku þar kost­uðu tutt­ugu þús­und.“

Málið fellt niður og eigandi kærir lögreglu

Lögregla sagði aðgerð­irnar, þar sem óein­kenn­is­klæddir lög­reglu­menn beittu sér sem tál­beitur, stað­festa grun um vænd­is­starf­semi á staðnum. Tveimur árum síðar, árið 2015, lýsti rík­is­sak­sókn­ari því yfir að málið yrði fellt niður. Það eina sem eftir stóð voru meint skatta­laga­brot eig­and­ans, Viðars Más, sem ákært var fyrir. Viðar Már kærði síðan lög­reglu vegna aðgerð­anna á Strawberries árið 2016.

„Í umræddri kæru komu meðal ann­ars fram ásak­anir um að lög­reglu­menn hefðu setið að sum­bli í tál­beitu­að­gerð­unum, verið drukknir þegar hand­tökur hófust inni á staðnum eftir lokun og eytt veru­legum fjár­hæðum, sam­kvæmt heim­ildum DV um 1.100 þús­und krónum, í áfengi á staðnum að því er virð­ist til að reyna að grípa konur við að bjóða þeim kyn­lífs­þjón­ustu gegn greiðslu,“ segir í frétt DV um málið.

Myndband úr eft­ir­lits­mynda­vél stað­ar­ins sýndi nokkra óein­kenn­is­klædda lög­reglu­menn sitja og drekka mikið áfengi í félags­skap stúlkna í nokkrar klukku­stundir. Í rann­sókn­ar­gögnum lög­reglu hafði komið fram að lög­reglu­mönn­unum hefði verið boðin kyn­lífs­þjón­usta gegn greiðslu.

„Menn­irnir sjást panta sér og greiða fyrir fjöl­marga bjóra og drekka þá. En ekki aðeins bjór, heldur í að minnsta kosti tvö skipti sjást menn­irnir, sem full­yrt er að séu lög­reglu­menn, fá sér eitt­hvað sem lík­lega er kon­íak eða viskí í glas. Sjást þeir velta glas­inu um í lóf­anum, þefa af því og drekka í botn. Að minnsta kosti einn mann­anna, virð­ist síðar vera orð­inn áber­andi ölv­aður við bar­inn.“ (Úr frétt DV 24. mars 2017)

Íslenska ríkið dæmt brotlegt gagnvart dyraverði

Árið 2017 var íslenska ríkið svo dæmt til að greiða fyrr­ver­andi dyra­verði á Strawberries 800 þús­und krónur í miska­bætur vegna gæslu­varð­halds sem hann sætti í tengslum við aðgerðir lög­reglu.

Í frétt DV frá 2017 um aðgerð­irnar segir enn­fremur:

„Annar lög­reglu­mann­anna er með bjór­flösku í hönd þegar þeir ráð­færa sig hvor við annan, og miðað við það sem síðar ger­ist eru þeir að skipu­leggja hand­töku­að­gerðir. Lög­reglu­mað­ur­inn með bjór­inn í hönd, fær sér síðan gúl­sopa, leggur flösk­una á bar­borðið og virð­ist líta eftir félögum sínum sem von er á. Eftir stutta stund snýr dyra­vörð­ur­inn aftur í mynd eftir að hafa brugðið sér frá, en þá er annar lög­reglu­mann­anna að hand­taka bar­þjón við bar­inn og dyra­vörð­ur­inn athugar málið. 

Þá vindur sér upp að honum hinn lög­reglu­mað­ur­inn sem nýbú­inn var að leggja frá sér bjór­flösk­una, grípur í frakka dyra­varð­ar­ins sem bakkar. Einhver orða­skipti verða þeirra á milli en dyra­vörð­ur­inn virð­ist spakur og lítt ógn­andi. Af mynd­band­inu verður ekki annað ráðið en að lög­reglu­mað­ur­inn keyri dyra­vörð­inn sem var að hörfa aftur á bak í jörð­ina, með þeim afleið­ingum að hann fellur harka­lega aftur fyrir sig á gólfið af nokkru afli. Lendir meðal ann­ars illa á litlu sviði sem þar er.“

Verðmætin horfin úr hirslu lögreglu

Þegar meint skatta­laga­brot Viðars Más voru tekin fyrir, kom í ljós að verð­mæti sem höfðu verið hand­lögð við hús­leit, bæði á kampa­víns­klúbbnum og á heim­ili hans, voru horfin úr hirslum lög­reglu. Samkvæmt Viðari Má og lög­manni hans voru marg­vís­leg verð­mæti hand­lögð, meðal ann­ars nokkur Rolex-arm­bandsúr, bind­isnælur, hringar, háls­men, annað verð­mætt skart, erfða­gripir og nokkuð af reiðufé; bæði evrur og doll­arar. Samkvæmt heim­ildum DV á þessum tíma hlupu verð­mætin á mörgum millj­ónum króna.

Hvarf verð­mæt­anna kom í ljós þegar lög­regla krafð­ist þess að mun­irnir, auk fast­eigna og ann­arra stærri eigna, yrðu gerðir upp­tækir í skatta­máli Viðars Más. Þegar málið var tekið fyrir kom hins vegar í ljós að sak­sókn­ari hafði fallið frá þeirri kröfu. Þegar málið var skoðað nánar fékkst það loks stað­fest að ástæðan hafði verið sú að umræddir munir voru allir horfnir.

Viðar Már kærði bæði þjófnað á eigum sínum og fram­göngu lög­reglu­manna við aðgerðir á staðnum, til hér­aðs­sak­sókn­ara. Hvorug kæran leiddi til ákæru. Viðar Már var sjálfur dæmdur í tólf mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi og til að greiða 242 millj­ónir króna í sekt, fyrir skatta­laga­brot.

„Það hafð­ist ekki uppi á þeim sem mögu­lega bar ábyrgð á því að þessir hlutir hurfu. Þeirri rann­sókn var því hætt,“ sagði Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari, í sam­tali við Vísi árið 2018. Aðspurður hvort það væri ásætt­an­leg nið­ur­staða sagði Ólafur þetta vissu­lega baga­legt.

Heim­ildir:

DV – „Strawberries-rassían: Myndband sýnir lög­reglu­menn þamba áfengi“

Vísir – „Sel­skapur kvenna til sölu fyrir kampa­vín“, „Kampa­víns­klúbbum lokað fyrir fullt og allt“, „Óupp­lýstur þjófn­aður úr hirslu lög­reglu“

RÚV – „Fimm í varð­hald og Strawberries lokað“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi