Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kona stakk mann sinn til bana eftir að hann barði hana: „Gerði hrottalega á hlut hennar“

Kona stakk mann sinn til bana eftir að hann barði hana: „Gerði hrottalega á hlut hennar“

Steindór var stung­inn í bringu og kvið og lést 18 dögum síðar af lungna­bilun vegna bráðrar lungna­breyt­ingar og lungna­bólgu í kjöl­far þess. Steindór er tal­inn hafa barið sam­býl­is­konu sína Sig­ur­hönnu í and­litið að kvöldi árás­ar­innar. Sig­ur­hanna, er sögð hafa reiðst heift­ar­lega og ráð­ist á Steindór eftir að hann barði hana. Sig­ur­hanna bar við minnis­leysi sökum ölv­unar, en hún hlaut 8 ára dóm í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 25. októ­ber 2002.

Atburða­rásin átti sér stað á heim­ili þeirra á Grett­is­götu í mars sama ár.

Mundi ekki eftir atburðinum vegna ölvunar

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi Sig­ur­hönnu sem þá var 39 ára, í 8 ára fang­elsi fyrir mann­dráp að kvöldi 6. mars, árið 2002.

Ákærðu var gefið að sök að hafa ráð­ist á sam­býl­is­mann sinn, Steindór, sem var nýorð­inn 50 ára, á heim­ili þeirra á Grett­is­götu. Steindór var stungin þrisvar sinnum með hnífi í brjóst­kassa og kvið, þar af tveimur djúpum stungum, með þeim afleið­ingum að hann lést hinn 24. mars af lungna­bilun vegna bráðrar lungna­breyt­ingar og lungna­bólgu sem var afleið­ing atlögu ákærðu.

Í nið­ur­stöðum dóms­ins segir að ákærða muni ekki eftir því vegna ölv­unar þegar Steindór fékk áverk­ana af hnífnum og taldi dóm­ur­inn ljóst að hún hefði verið mjög ölvuð þegar atburð­ur­inn varð. Fyrir dómi sagði hún sam­býl­is­mann sinn hafa barið sig í and­lit fyrr um kvöldið og studd­ist það við annað í mál­inu.

Reiddist heiftarlega eftir að henni var sagt að hann hefði slegið dóttur sína

Dómurinn taldi ljóst að ákærða hefði reiðst sam­býl­is­manni sínum heift­ar­lega þegar henni var sagt að hann hefði slegið dóttur hennar. Samkvæmt frá­sögn vitna taldi dóm­ur­inn sannað að ákærða hefði í mik­illi reiði tekið morð­vopnið í eld­hús­inu og síðan veist að Stein­dóri með því þar sem hann sat í sófa í stof­unni og stungið hann þrisvar á hol.

Af því sem tveir lög­reglu­menn höfðu eftir ákærðu eftir verkn­að­inn taldi dóm­ur­inn ljóst að fyrir henni hefði vakað bein­línis, meðan á árásinni stóð, að bana Stein­dóri. Dómurinn taldi þó að þessi ásetn­ingur hefði ekki vaknað með henni fyrr en rétt áður en hún framdi verkn­að­inn.

Við ákvörðun refs­ingar taldi dóm­ur­inn að ekki yrði litið fram­hjá því að verkið var unnið í snöggu heift­ar­kasti og að ákærða hefði mátt þola við­var­andi kúgun og ofbeldi af hendi hins látna. Dómurinn taldi enn­fremur að byggja yrði á þeirri frá­sögn ákærðu að í eitt skipti, hálfum mán­uði fyrir atburð­inn, hefði hinn látni gert hrotta­lega á hlut hennar.

Heim­ildir:

Inn­lendar fréttir. 26. októ­ber 2002. Banaði sam­býl­is­manni sínum með hnífi á heim­ili þeirra. Dæmd í átta ára fang­elsi fyrir mann­dráp. HÉRAÐSDÓMUR Reykja­víkur dæmdi í gær Sig­ur­hönnu Vil­hjálms­dóttur, 39 ára, í 8 ára fang­elsi fyrir mann­dráp að kvöldi 6. mars sl. Morg­un­blaðið.

Ótt. 26. októ­ber. 2002. Kona dæmd fyrir mann­dráp. Mildandi áhrif í dómi í Grett­is­götu­mál­inu – mið tekið af kúgun og hrotta­skap. DV

Sunna Karen Sig­ur­þórs­dóttir. 10. júlí 2015. Þyngsti dómur yfir kven­manni í 34 ár. Vísir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi