Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðmundur Ari: „Held að ég eigi enn met í Valhúsaskóla fyrir að vera rekinn til skólastjórans …“

Guðmundur Ari: „Held að ég eigi enn met í Valhúsaskóla fyrir að vera rekinn til skólastjórans …“
Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son Mynd: LESZEK NOWAKOWSKI

Hann ólst upp á Sel­tjarn­ar­nesi, æfði hand­bolta og fót­bolta og var í tón­list­ar­námi við Tón­list­ar­skóla Sel­tjarn­ar­ness.

„Þegar ég var orð­inn 10 ára fór ég að hætta að finna mig í skóla­kerf­inu og hætti hægt og rólega að passa í það þrönga form. Áhuginn minn var á fót­bolta, að vera með vinum og að spila tölvu­leiki og ég skildi í raun ekk­ert af hverju ég þurfti að vera í þessum bless­aða skóla. Þegar ég var kom­inn í ung­linga­deild í Val­húsa­skóla var þetta árang­urs­leysi og árekstrar í skól­anum farið að hafa mjög nei­kvæð áhrif á sjálfs­mynd­ina mína og ég var far­inn að nýta ork­una mína í upp­reisn gegn skól­anum frekar en að reyna að ná að læra náms­efnið og vera til friðs. Ég held að ég eigi enn met í Val­húsa­skóla fyrir að vera rek­inn til skóla­stjór­ans í fyrstu kennslu­stund á fyrsta kennslu­degi eftir sum­ar­frí,“ segir Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, verk­efna­stjóri og bæj­ar­full­trúi, sem mun leiða fram­boðs­lista Sam­fylk­ing­ar­innar og óháðra í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum á Sel­tjarn­ar­nesi.

Aukið sjálf­stæði og nýtt hlut­verk varð til þess að ég fór að vilja standa mig.

„Þegar líðan mín og við­horf til skóla breytt­ist ekk­ert á fyrsta ári mínu í Fjöl­brauta­skól­anum við Ármúla ákvað ég að ráða mig í sum­ar­vinnu á Eski­firði við að leggja hita­veitu og skipta þannig um umhverfi og aðstæður. Ég hafði kynnst stelpu að austan og fékk að búa með henni og frá­bærri fjöl­skyldu hennar. Lífið fyrir austan hafði mjög mót­andi áhrif á mig en aukið sjálf­stæði og nýtt hlut­verk varð til þess að ég fór að vilja standa mig. Ég tók einn vetur í Verk­mennta­skóla Aust­ur­lands sem var minna og heim­il­is­legra umhverfi en ég hafði áður kynnst og það hent­aði mér afar vel. Það slitn­aði upp úr sam­bandi mínu með kærust­unni um vorið og ég flutti aftur suður eftir þetta eina ár á Aust­ur­landi.

Ég sá krakka sem voru á svip­uðum stað og ég hafði verið á.

Þegar ég flutti aftur suður byrj­aði ég að vinna smíða­vinnu og skráði mig í húsa­smið­inn í Iðn­skól­anum í Reykja­vík. Skólinn fékk þó litla athygli og datt lífið fljótt aftur í kunn­ug­legt far partístands og að ein­blína meira á frí­tím­ann en skól­ann. Ég skipti yfir í fjórða fram­halds­skól­ann á fjórum árum þegar ég skráði mig í Fjöl­brauta­skól­ann í Breið­holti til að vera nær vinum mínum að austan sem voru fluttir í bæinn. Þetta var vet­ur­inn 2008/2009 og var ég staddur í upp­lýs­inga­tækni­tíma í FB þegar Geir bað Guð um að blessa Ísland. Á þeim degi tvö­fald­að­ist bíla­lánið á nýlegum bíl sem ég hafði keypt á mynt­körfu­láni og ég missti smíða­vinn­una sem átti að borga fyrir kagg­ann. Þá voru góð ráð dýr en bless­un­ar­lega hafði ég ráðið mig um haustið í afleys­ing­ar­starf í Félags­mið­stöð­inni Selinu á Sel­tjarn­ar­nesi. Í því starfi fann ég aftur þessa til­finn­ingu um að vilja standa mig; þarna var ég byrj­aður að vinna í félags­mið­stöð­inni í heima­bænum þar sem ég hafði sjálfur verið til eilífra vand­ræða. Ég sá krakka sem voru á svip­uðum stað og ég hafði verið á og fann hvernig ég gat hjálpað þeim í félags­mið­stöð­inni með því að skapa öruggt umhverfi þar sem þeir gátu ræktað styrk­leika sína og byggt upp sjálfs­mynd­ina. Það sem var svo best við starfið í félags­mið­stöð­inni var þegar ég sá og fann að krökk­unum fór að líða betur sem hafði svo jákvæð áhrif á aðra þætti í lífi þeirra, þar á meðal náms­ár­angur. Í Selinu fékk ég tæki­færi til að vaxa í starfi, taka að mér fjöl­breytt verk­efni eins og að stofna ung­menna­ráð Sel­tjarn­ar­ness með öfl­ugum hópi ung­menna. Ég tók sjálfur út mik­inn per­sónu­legan þroska á árunum í Selinu og fór úr því að kenn­arar héldu þegar þeir sáu mig fyrst að ég væri í 12 spora kerf­inu að bæta upp fyrir gamlar syndir yfir í það að leiða for­varnar- og frí­stunda­starfið í sveit­ar­fé­lag­inu.“

Guð­mundur Ari segir að sú lífs­reynsla sem hefur mótað hann hvað mest sé ferða­lag hans í gegnum skóla­kerfið. „Að byrja ágæt­lega, fara svo út af spor­inu og missa alla trú á eigin getu sem náms­manni. Ná svo að finna til­gang með nám­inu og snúa blað­inu við og klára háskól­ann með góðum árangri,“ segir hann en meira um það síðar.

Skynsemi og ábyrgð í fjármálum

Guð­mundur Ari byrj­aði að vinna í fullri vinnu í Selinu eftir tvö ár í hluta­starfi og sótti um nám í tóm­stunda- og félags­mála­fræði við Mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands. Hann komst inn með und­an­þágu en hann var ekki með stúd­ents­próf en þrátt fyrir fimm ár í fram­halds­skóla átti hann tals­vert í land að sækja hvíta hatt­inn eins og hann orðar það.

„Í tóm­stunda­fræð­inni fann ég aftur til mín í litlum hópi með tals­vert sjálf­stæði og frelsi til að sam­þætta vinn­una í Selinu við námið. Ég end­aði með að útskrif­ast með B.A.-gráðu og 10 í ein­kunn fyrir loka­verk­efnið mitt sem var mik­ill sigur fyrir ung­ling­inn sem brotnu sjálfs­mynd­ina í skóla­kerf­inu.

Vissi bara að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri með völdin á Nesinu.

Í starfi mínu sá ég meðal ann­ars um nem­enda­ráð Val­húsa­skóla og Selsins og það var eftir kynn­ing­ar­fund með krökkum þar sem ég hvatti þá til að bjóða sig fram í nem­enda­ráði til að hafa áhrif á nærum­hverfi sitt að ég fór að hugsa að ég væri nú meiri hræsnar­inn, enda sjálfur ekki að taka nokkurn þátt í eigin nærum­hverfi. Ég ákvað því að mæta á fund hjá Sjálf­stæð­is­fé­lagi Seltirn­inga því á þessum tíma­punkti var ég lítið að pæla í póli­tík og vissi bara að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri með völdin á Nesinu. Það þurfti þó ekki nema þennan eina opna fund hjá Sjálf­stæð­is­fé­lag­inu til að kom­ast að því að sýn þeirra á skatta og þjón­ustu við íbúa rím­aði ekki við mína per­sónu­legu sýn. Ég hafði fundið á eigin skinni og í starfi mínu hvernig þjón­usta eins og félags­mið­stöð og önnur virkni­úr­ræði eru ekki pen­inga­eyðsla heldur fjár­fest­ing í fólki sem eflir og styrkir ein­stak­linga og borgar sig svo marg­falt til baka í formi far­sældar þeirra, vinnu­fram­lags og skatt­greiðslna til sam­fé­lags­ins. Ég mát­aði mig því næst við Sam­fylk­ing­ar­fé­lagið á Sel­tjarn­ar­nesi og fann mig vel þar. Áhersl­urnar þar voru skyn­semi og ábyrgð í fjár­málum á sama tíma og horft var á þjón­ustu og for­varnir sem fjár­fest­ingu og skyldur sveit­ar­fé­laga.“

Breytt í 16 íbúðir

Og Guð­mundur Ari fór í fram­boð og komst inn í bæj­ar­stjórn í kosn­ing­unum 2014.

„Ég leiddi svo list­ann í kosn­ing­unum 2018 og gekk okkur afar vel í báðum kosn­ingum og höfum haft tæki­færi til að hafa áhrif á umræðu og ákvarð­anir í sveit­ar­fé­lag­inu. Þrátt fyrir að hafa verið í minni­hluta öll þessi átta ár þá er ég stoltur af mörgum góðum málum sem við höfum haft áhrif á. Ég er stoltur að hafa leitt starfs­hóp sem kom íbúa­lýð­ræð­is­verk­efn­inu Nesið okkar á kopp­inn en það er verk­efni þar sem íbúar fá að kjósa um og for­gangs­raða fram­kvæmdum í sveit­ar­fé­lag­inu. Ég er einnig stoltur af litlu skipu­lags­verk­efni þar sem lóð með tveimur húsum var breytt í 16 íbúðir til að auka fram­boð af fjöl­breyttu hús­næði. Á þeim reiti búa fleiri börn heldur en í þremur stórum lúx­us­blokkum sem byggðar voru á Hrólf­skála­mel sem „íbúðir fyrir ungt fólk“. Að lokum er ég stoltur af því að hafa staðið vörð gegn nið­ur­skurði á þjón­ustu og að meiri­hluti hafi náðst fyrir hækkun á útsvari síð­ast­liðið haust. Sú hækkun hefur stoppað upp í halla­rekstur bæj­ar­ins og gert bænum kleift að standa vörð um þjón­ustu við bæj­ar­búa og sækja fram.“

Sel­tjarn­ar­nes­bær er eftir á í grænu mál­unum.

Guð­mundur Ari segir að verk­efni næsta kjör­tíma­bils verði einmitt að klára að snúa við rekstri bæj­ar­ins svo hann nái jafn­vægi og verði sjálf­bær. „Við viljum að næsta kjör­tíma­bil snú­ist um að búa til betri bæ fyrir börn. Það er mik­il­vægt að rýna aðstöðu og stoð­þjón­ustu við börn frá leik­skóla og upp úr, auka snemmtæka íhlutun og sam­þætta betur kerfin okkar. Það er upp­söfnuð við­halds­þörf víða í bænum og mörg svikin lof­orð um upp­bygg­ingu sem þarf að upp­fylla til að end­ur­heimta traust for­eldra og fag­fólks. Sel­tjarn­ar­nes­bær er eftir á í grænu mál­unum og er mik­il­vægt að við útbúum mark­visst grænt plan sem snýr að öllum þáttum rekst­urs, upp­bygg­ingu og þjón­ustu við íbúa. Mið­bæj­ar­svæðið er svo sér­legt áhuga­mál hjá mér en þar eru gríð­ar­leg tæki­færi til að ráð­ast í upp­bygg­ingu og styðja við svæðið til að efla þjón­ustu við íbúa sem og fyr­ir­tækin á svæð­inu.“

Áhugamaður um pítsur og íþróttir

Guð­mundur Ari er spurður hvað það gefi honum að vera í bæj­ar­stjórn­inni og að vinna að þessum málum.

„Mér finnst vera gríð­ar­lega verð­mætt að vera treyst fyrir því að sitja í bæj­ar­stjórn fyrir íbúa og sæk­ist eftir stuðn­ingi til að verða bæj­ar­stjóri á Sel­tjarn­ar­nesi. Í bæj­ar­stjórn eru teknar ákvarð­anir sem snúa að nærum­hverfi íbúa og finnst mér að við getum gert betur í að hlusta á þarfir íbúa, raddir fag­fólks og vera stefnu­mið­aðri í stjórnun bæj­ar­ins. Það er ekki hægt að gera allt fyrir alla á sama tíma en mik­il­vægt að eiga í góðu sam­ráði við íbúa og teikna upp lang­tíma­plön þar sem verk­efnum er for­gangs­raðað og fólk fái til­finn­ingu fyrir því að verk­efnin séu í ferli og þau séu kláruð. Ég vil standa vörð um og efla skóla- og frí­stunda­starfið á Nesinu í sam­starfi við félags­þjón­ust­una svo að öll börn fái tæki­færi til að upp­lifa öryggi og til­gang í starf­inu. Ég tel það vera frum­skyldu sveit­ar­fé­lags­ins að halda vel utan um börnin okkar og tryggja far­sæld þeirra.“

Tekur það eitt­hvað frá honum að vera í bæj­ar­stjórn­inni og vinna að þessum málum?

„Neikvæðu hliðar sveit­ar­stjórn­ar­starfs­ins eru að þetta tekur tíma frá fjöl­skyld­unni. Á Sel­tjarn­ar­nesi eru fundir haldnir fyrir eða eftir vinnu því það virð­ist vera við­ur­kennt að taka ekki óþarfa tíma frá öðrum störfum en á sama tíma bitnar það stundum á fjöl­skyld­unni og úti­lokar algjör­lega for­eldra sem hafa ekki öfl­ugt stuðn­ings­net í kringum sig.“

Hvernig myndi Guð­mundur Ari lýsa sjálfum sér?

„Ég myndi lýsa mér sem nokkuð lífs­glöðum og temmi­lega kæru­lausum fjöl­skyldu­manni. Ég er áhuga­maður um pít­sur og íþróttir og stelst í að spila tölvu­leiki þegar tími gefst.“

Hann er kvæntur Nönnu Kaaber íþrótta­fræð­ingi og eiga hjónin þrjú börn. Árni Bergur er níu ára, Kjartan Kári er sex  ára og Magnea er þriggja ára. Hann segir að helstu áhuga­málin séu að nýta frí­tím­ann í sam­veru með fjöl­skyldu og vinum. „Ef maður er með góðu fólki þá er auka­at­riði hvort við séum í golfi, fjall­göngum, hjól­reiða­ferðum eða fót­bolta.“
Það er nóg að gera en Guð­mundur Ari er að ljúka ljúka Med.-gráðu með áherslu á stjórnun og þró­un­ar­starf ásamt því að vera þáttt­k­andi í þró­un­ar­verk­efnum og rann­sóknum með háskól­anum. „Þessi reynsla hefur búið til það mottó hjá mér að það eru allir flottir og ef við sköpum réttu aðstæð­urnar og styðjum við fólk með réttum hætti á réttum tíma­punkti þá geta allir ræktað styrk­leika sína, fundið til­gang sinn og blómstrað. Þetta við­horf litar mig í pólítík, leik og starfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi