Gunnar Smári Egilsson, einn stofnenda Sósíalistaflokks Íslands spáði í spilin í hópi Sósíalista á Facebook í gær en niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar birtist í fréttum Stöðvar 2 í gær.
Sagði Gunnar Smári ekki mikla hættu á að hægri stjórn yrði mynduð ef kosningarnar í vor fara eins og skoðanakönnun Maskínu benda til. Meirihlutinn er fallinn en það opnar á raunverulega félagshyggju að mati Gunnars Smára.
„Sjálfstæðisflokkur missir tvo borgarfulltrúa, Samfylking Miðflokkur og Viðreisn einn hver flokkur, samkvæmt Maskínu. Framsókn bætir við sig þremur, Sósíalistar og Píratar einum hvor flokkur. Meirihlutinn er fallinn, næði ellefu mönnum.
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn eru samanlagt með níu fulltrúa, gætu ekki myndað meirihluta með Flokki fólksins og Viðreisn – lítil hætta á hægri stjórn.
Líklegasti meirihlutinn er að núverandi meirihluti þar sem Viðreisn færi út en Sósíalistar kæmu inn í staðinn; nýfrjálshyggjan út en raunveruleg félagshyggja tæki við.“
































Athugasemdir