Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Simbi varð tannlaus vegna neyslu – sneri við blaðinu og fékk nýtt bros: „Beinin höfðu eyðst mikið“

Hér er brot úr við­tali við Sigmund Geir Helgason sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs en Sig­mundur, eða Simbi eins og hann er kall­aður, missti allar tenn­urnar vegna fíkni­efna­neyslu og ákvað að snúa við blað­inu.

Athugið að myndir sem fylgja grein­inni eru ekki fyrir við­kvæma.

Simbi ákvað að freista gæf­unnar í þárið 2019, þegar hann var búinn að vera edrú í um það bil tvö ár. Hann hélt af stað til Búdapest og fór á tann­lækna­stof­una. Þar spurði hann til að byrja með hvort eitt­hvað væri hægt að gera við gervi­gómana hans, til þess að gera þá betri.

„Þá fer tann­lækn­ir­inn bara að smíða góma. Hún smíð­aði góm, og annan, og annan góm, þangað til ég var sáttur. Það sást mikið í tenn­urnar og brosið, og þeir héld­ust mikið betur. Það var ein­fald­lega ein­hvern veg­inn allt annað í boði. Síðan fljót­lega eftir að ég fékk gómana, í apríl 2019, fórum við að skoða hvort það væri hægt að gera eitt­hvað meira fyrir mig.“

Í ljós kom, eftir tölu­verðar skoð­anir, að hugs­an­lega væri hægt að hjálpa Simba enn frekar.

„Fyrst kom smá panikk, því það voru eig­in­lega engin bein til staðar. Beinin höfðu eyðst svo mikið. Þau vissu fyrst ekki hvort það væri hægt að gera eitt­hvað fyrir mig. Það var búið að tala um það eitt­hvað hér heima, þetta með beinin, og ég var eig­in­lega byrj­aður að fá svona svipuð svör hérna. Þau sögð­ust samt ekki ætla að segja alveg nei. Svo héldu þau áfram að leita að lausn. Sendu þetta eitt­hvert áfram og síðan fundu þau lausn­ina. Það var beinígræðsla sem ég þurfti að fara í. Þar var tekið bein úr mjöð­minni á mér og grætt upp í mig. Ég byrj­aði í þessu ferli í sept­em­ber árið 2019.

Skurð­ur­inn á mjöðm Simba.

Sú aðgerð gekk vel. Það var svæf­ing og svo­leiðis – þetta er kannski svo­lítið extreme – þetta er alls ekki svona hjá öllum. Síðan þurfti ég bara að jafna mig eftir aðgerð­ina.“

Simbi á spít­al­anum, þar sem hann gekkst undir beinígræðsl­una.

Simbi gekkst í raun undir þrjár aðgerðir í heild­ina. Sú fyrsta var þegar hann fékk implönt í neðri góm, í lok sept­em­ber fór hann síðan í beinígræðslu sem var gerð í efri gómi.

Hér er Simbi ansi bólg­inn eftir beinígræðsl­una.
Eftir beinígræðsl­una á spít­al­anum.

Lítið bein var til staðar í neðri gómi, en þrátt fyrir það náð­ist að koma implöntum fyrir þar. Það kall­ast „all-on-four“ og var hugsað sem tíma­bundin lausn.

Úr ferl­inu

Meðan á þessu öllu stóð var Simbi tann­laus í sex mán­uði í efri gómi. Í lok febr­úar árið 2020 voru loks sett implönt í efri góm.

Þarna er Simbi alveg tann­laus.

„Svo taka aðrir þrír mán­uðir við þar sem þetta er látið jafna sig. Svo fæ ég skrúfað upp.“

Hér er verið að setja implöntin í efri góm, með sér­stökum stýrigóm. Þörf var á slíkum gómi í til­felli Simba vegna þess hve lítið bein var til staðar.

Eftir að Simbi fékk implöntin, á meðan þau voru enn að gróa, gat hann ekki verið verið með góm öðru­vísi en fræst væri framan af gómnum. Gómurinn var ein­ungis útlits­legur og ekki með sitt venju­lega nota­gildi. Til þess að geta verið með hann þurfti að setja mikið af góma­lími og ýmis­legt óhent­ugt sem fylgdi.

„Þetta var smá bras, en þetta er allt þess virði á end­anum. Jólin síð­ustu voru fyrstu jólin í langan tíma sem ég borðað allt. Við grill­uðum nauta­kjöt þrisvar, fjórum sinnum sko – þetta voru geggjuð jól.“

Hér má lesa sögu Simba í heild sinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi