Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Á elleftu milljón safnaðist fyrir Úkraínu: „Fatlað fólk er sérstaklega berskjaldað í átökum“

Á elleftu milljón safnaðist fyrir Úkraínu: „Fatlað fólk er sérstaklega berskjaldað í átökum“

Að minnsta kosti 10.750.000 krónur söfn­uð­ust í tengslum við Sam­stöðu­tón­leika Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands með úkra­ínsku þjóð­inni sem haldir voru í Hörpu þann 24. mars síð­ast­lið­inn. Fjár­mun­irnir renna til neyð­ar­söfn­unar Þroska­hjálpar fyrir fatlað fólk í Úkraínu. Til við­bótar við þessa fjár­hæð lagði fólk einnig fé beint inn á söfn­un­ar­reikn­ing Þroska­hjálpar.

„Ég er hrærð að fylgj­ast með þessum mikla stuðn­ingi sem tón­leik­arnir og söfn­unin fengu. Verk­efnið er ærið, fatlað fólk er sér­stak­lega ber­skjaldað í átökum og við getum verið stolt af því hvernig menn­ing­ar­lífið á Íslandi hefur sýnt stuðn­ing sinn í verki fyrir þau sem eiga um sárt að binda. Ég er þakk­lát öllu því fólki sem lagði verk­efn­inu lið, en fram­ganga þeirra er ómet­an­leg,“ segir Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra í sam­tali við skrif­stofu stjórn­ar­ráðs­ins.

Skiptir máli að geta lagt úkraínsku þjóðinni lið

Allar tekjur af miða­sölu Sam­stöðu­tón­leik­anna Sin­fón­í­unnar runnu í söfn­un­ina, sem og allar tekjur af lista­ver­ka­upp­boði Listvals og ágóði af veit­inga­sölu í Hörpu. Allir sem að stóðu að sam­stöðu­dag­skrá í Hörpu­horni fyrir tón­leika hljóm­sveit­ar­innar gáfu vinnu sína eða aðstöðu, þar á meðal Harpa, Íslenska óperan og allt tón­list­ar­fólkið sem kom fram í Hörpu­horni. Mynd­list­ar­menna gáfu einnig verk sín á list­ver­ka­upp­boð sem Listval stóð fyrir í tengslum við söfn­un­ina.

Upphæðin skipt­ist með þeim hætti að miða­sölu­tekjur af Sam­stöðu­tón­leikum Sin­fón­íu­hjómsveitar Íslands voru kr. 6.215.930, tekjur af upp­boði Listvals voru kr. 4.200.000 og ágóði af veit­inga­sölu á Hnoss og La Prima­vera var kr. 335.000.

„Það skipti okkur gríð­ar­lega miklu máli að geta lagt úkra­ínsku þjóð­inni lið með ein­hverjum hætti og það gladdi okkur að sjá hve mik­inn áhuga og stuðn­ing verk­efnið fékk meðal íslensku þjóð­ar­innar. Hversu fá sem við erum og hversu litlu okkur finnst við geta áorkað þegar við stöndum frammi fyrir voða­verkum eins og þeim sem nú eru að koma fram í dags­ljósið þá skiptir það öllu máli að sýna sam­stöðu í verki. Ég þakka Þroska­hjálp sér­stak­lega fyrir að hafa haft veg og vanda af söfn­un­inni og fyrir að vekja athygli á þeim vanda sem fatlað fólk stendur frammi fyrir á stríðs­tímum. Ég vona að við Íslend­ingar látum ekki hér við sitja heldur höldum áfram að hjálpa úkra­ínsku þjóð­inni, bæði þeim sem hingað koma í leit að skjóli og þeim sem eru heima,“ segir Lára Sóley Jóhanns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands í sam­tali við skrif­stofu stjórn­ar­ráðs­ins.

Ómetanlegt að finna fyrri stuðningnum

Í sam­ráði við rík­is­stjórn Íslands var ákveðið að styrkja sér­stak­lega söfnun Þroska­hjálpar vegna þess að fatlað fólk er sér­stak­lega ber­skjaldað í stríðs­á­tökum og staða þess í Úkraínu er grafal­var­leg. Fatlað fólk getur ekki flúið vegna aðstæðna sinna, getur illa orðið sér út um mat, lyf og aðrar nauð­synjar. Einnig aukast líkur á ofbeldi, að fatlað fólk verði skilið eftir og að það sé án aðstoðar og stuðn­ings.

„Það var ómet­an­legt að finna fyrir stuðn­ingnum við söfn­un­ina. Neyð fatl­aðs fólks í Úkraínu er mikil og við vitum að þessi styrkur mun sann­ar­lega nýt­ast vel og jafn­vel bjarga manns­lífum. Við erum full þakk­lætis til allra sem að komu að söfn­un­inni og til þeirra sem styrktu hana. Sér­stakar þakkir til þeirra lista­manna sem gáfu verk sín til upp­boðs­ins og til Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands og allra í Hörpu fyrir sitt óeig­in­gjarna fram­lag og fagra tóna. Miklu má áorka þegar listin leggst á sveif með mannúð og friði. Þakkir fyrir hönd Þroska­hjálpar, Öryrkja­banda­lags­ins, Átaks, Tabú og NPA mið­stöðv­ar­innar sem saman standa að neyð­ar­söfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu,“ segir Unnur Helga Ótt­ars­dóttir, for­maður Lands­sam­tak­anna Þroska­hjálpar í sam­tali við skrif­stofu stjórn­ar­ráðs­ins.

Verk eftir Mozart, Back og Beethoven 

Af tón­leik­unum

Á Sam­stöðu­tón­leik­unum flutti Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands verk eftir Mozart, Bach og Beethoven, ásamt verki eftir úkar­ínska tón­skáli­dið Valentin Silv­estrov. Tón­leik­unum lauk svo með áhrifa­ríkum flutn­ingi á þjóð­söngvum Íslands og Úkraínu. Tón­leik­arnir voru sam­starfs­verk­efni Sin­fón­íu­hljóm­sveit­ar­innar og rík­is­stjórnar Íslands og voru þeir sendir beint út á RÚV og hægt er að horfa á upp­töku af tón­leik­unum á vef­síðum RÚV og hljóm­sveit­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi