Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Ársæll dæmdur vegna viðtals í Paradísarheimt – Konan lagðist gegn birtingu

Jón Ársæll dæmdur vegna viðtals í Paradísarheimt – Konan lagðist gegn birtingu
Jón Ársæll. / Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Sjón­varps­mað­ur­inn góð­kunni, Jón Ársæll Þórð­ar­son, var á föstu­dag­inn í Lands­rétti dæmdur til að greiða konu 800 þús­und í miska­bætur vegna við­tals sem hann tók við hana. Um er að ræða við­tal sem birt­ist í þátt­unum Para­dís­ar­heimt. RÚV greinir frá mál­inu.

Öll nöfn voru fjar­lægð úr birtum dómi Lands­réttar. Lögmaður kon­unnar stað­festi þó málið við frétta­stofu RÚV.

Þrjár þátt­araðir voru gerðar af Para­dís­ar­heimt. Konan var við­mæl­andi í annarri þátta­röð­inni. Þetta er í annað sinn sem við­mæl­anda úr þátta­röð­inni eru dæmdar bætur.

Í þátta­röð­inni þar sem konan kom fram voru við­mæl­end­urnir fangar eða fyrr­ver­andi fangar. Í þátt­unum var þeim gefið tæki­færi til þess að segja sögu sína sjálfir. Samkvæmt úrskurði dóms­ins var það sem fram kom í þætt­inum að miklu leyti eitt­hvað sem flokk­að­ist undir við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar.

Konan sam­þykkti upp­haf­lega að veita við­tal og að það yrði birt í sjón­varpi. Áður en þátt­ur­inn sem konan kom fram í var sýndur hafði hún hins vegar sent Jóni Ársæli tölvu­póst. Í honum aft­ur­kall­aði hún sam­þykki sitt og spurði: „Er hægt að taka mig út úr þessu? Hvenær átti þetta ann­ars að koma?“

Fyrir dómnum stað­festi Jón Ársæll að hafa mót­tekið tölvu­póst­inn en sagði jafn­framt að hann hefði ekki skilið fyr­ir­spurn­ina þannig að í henni fælist ósk um að vera tekin út úr þætt­inum.

Í dómnum kemur fram að Lands­réttur meti málið sem svo að ekki hafi legið fyrir skýrt og ótví­rætt sam­þykki kon­unnar fyrir vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga hennar með birt­ingu efn­is­ins.

Jón Ársæll sagð­ist fyrir dómnum ekki muna hvort hann hafi hringt í kon­una eftir að hafa mót­tekið tölvu­póst hennar.

Kæran náði einnig til RÚV og Stein­gríms Jóns Þórð­ar­sonar, en rétt­ur­inn taldi að sýkna ætti báða aðila. Var það gert á þeim grund­velli að aðeins Jón Ársæll hafi haft vit­neskju um tölvu­póst­inn frá kon­unni.

Þetta er í annað sinn sem við­mæl­andi úr Para­dís­ar­heimt fær bætur. Gyða Dröfn Grét­ars­dóttir stefndi RÚV og Jóni Ársæli vegna við­tals sem birt­ist við hana í þátt­unum, sem hún hafði óskað eftir að yrði ekki sýnt. Henni var dæmd ein milljón í bætur vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi