Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vytautas Narbutas: „Við fæðumst með bæði paradís og helvíti innra með okkur“

Vytautas Narbutas: „Við fæðumst með bæði paradís og helvíti innra með okkur“

„Ég er mann­eskja, sex­tugur og dauð­legur,“ segir lista­mað­ur­inn Vytautas Narbutas þegar hann er beð­inn um að lýsa sjálfum sér. Hann opn­aði nýlega sýn­ingu sína „Tomorrow, and tomorrow, and tomorrow“ í Gallerí Göng og þar má einmitt sjá dauð­legar mann­eskjur. Dauð­legar mann­eskjur og sumar meira að segja dánar. Verkin hans eru full af tákn­fræði. Trú­ar­bragða­sím­bólum. Goð­sagn­armístík. Heim­speki­legum pæl­ingum.

Hún lét sækja prest svo ég dæi ekki trú­leys­ingi.

Hann fædd­ist einmitt fyrir sex­tíu árum síðan, sex ára­tugum, í Klaipéda í Litháen. Þegar hann var kom­inn í þennan heim leið ekki langur tími þar til sjálfur dauð­inn ætl­aði að sækja hann. Lungna­bólga í báðum lungum barns­ins. „Læknar sögðu móður minni að það væri engin von og að hún ætti að búast við hinu versta. Hún lét sækja prest svo ég dæi ekki trú­leys­ingi. Ég var þess vegna skírður á sjúkra­hús­inu og sem betur fer gerð­ist krafta­verk: Mér fór að batna. Og ég er enn lif­andi og ég vona að svo verði áfram.“

Dreng­ur­inn sem var svona ungur við dauð­ans dyr fór að teikna og sjálfur meist­ar­inn Leonardo da Vinci blés honum í brjóst þótt dáinn væri. „Ég las bækur um hann þegar ég var barn og heill­að­ist af verkum hans.“

Hann sem lifði var 11 ára þegar hann fór í lista­skóla: Klaipéda-lista­skól­ann. Síðan var það Kaunas-lista­skól­inn í fimm ár og loks Vilnius Academy of Fine Arts á árunum 1982-1990. Lærði mynd­list og leik­mynda- og bún­inga­hönnun. Námið í síð­ast­nefnda skól­anum tók sex ár en eftir fyrsta árið þurfti Vytautas að fara í sov­éska her­inn í tvö ár. „Þetta var á þeim tíma þegar Sov­ét­ríkin höfðu ráð­ist inn í Afganistan og það kom mér í ógöngur: Gæti ég drepið mann? Sem betur fer kom ekki til þess.“

Upp­setn­ing á TARTUFFE eftir Moliére í leik­húsi í Óðins­véum í Danmörku árið 2013 í leik­stjórn Oskaras Koršu­novas.

Grímuverðlaunahafi

Örlögin urðu til þess að Vytautas, sem gagn­rýnendur í heima­landi hans höfðu kallað „end­ur­reisn­ar­mann­inn“, kom til Íslands í fyrsta skipti þremur árum eftir útskrift: Drauma­lands hans frá æsku­ár­unum. Landið þar sem álfar, tröll og huldu­fólk er sagt búa á meðal mann­anna sem og í stokkum og steinum og þar sem goð svo sem Óðinn, Frigg og Þór hafa yfir sér ævin­týra­blæ.

Leik­stjór­inn Rimas Tuminas og tón­skáldið Faustas Laténas settu þá upp Mávinn eftir Anton Chekhov í Þjóð­leik­hús­inu. Vytautas sá um sviðs­mynd­ina. Hann stóð svo að fjórum öðrum sýn­ingum með Rimas hér á landi.

Fékk ég Grímu­verð­launin fyrir Engla alheims­ins.

„Þetta var yfir­skil­vit­legt krafta­verk vegna þess að mig hafði dreymt um að fara til Íslands þegar ég var barn. Ég veit ekki hvers vegna. Mig dreymdi hins vegar ekki um að búa á Íslandi en hér hef ég hins vegar búið frá árinu 1998 og ég þori að full­yrða að að ég geti litið á mig sem lit­háískan-íslenskan lista­mann. Ég hef unnið meðal ann­ars fyrir Þjóð­leik­húsið, Borg­ar­leik­húsið, Íslensku óper­una, Loft­kast­al­ann og Gafl­ara­leik­húsið. Síðasta upp­setn­ing sem ég vann að var Djöfla­eyjan í Þjóð­leik­hús­inu og fékk ég Grímu­verð­launin fyrir Engla alheims­ins.“

Sál mannanna

Það er óhætt að segja að verk Vytautas séu eins og úr öðrum heimi. Öðrum heimi þar sem allt getur gerst. Hvernig hefur Ísland blásið honum í brjóst? Landið þar sem eins og þegar hefur komið fram álfar, tröll og huldu­fólk er sagt búa á meðal mann­anna sem og í stokkum og steinum og þar sem goð svo sem Óðinn, Frigg og Þór hafa yfir sér ævin­týra­blæ? „Stór­kost­legt lands­lagið á Íslandi heill­aði mig frá fyrstu stundu og gerir enn. Þetta er yfir­nátt­úr­legur inn­blástur og það að horfa á þetta lands­lag er eins og hug­leiðsla. Ég bý rétt hjá vita í Gróttu og þaðan sé ég sól­ar­lagið, sól­setrið, stjörnur og norð­ur­ljósin, fjöll og skip.“

Hann hlustar á nið hafs­ins. Fugla­söng­inn.

Máva­hlátur.

„Ég mál­aði einu sinni mynd af Maríu mey þar sem íslenskt lands­lag var á mynd­inni sem Vilnius MO Museum á.“

Hvernig hafa mynd­irnar hans þró­ast í gegnum árin?

„Þær hafa þró­ast bæði hvað varðar myndefni og tækni.“

Hann talar um Sov­ét­ríkin fyrr­ver­andi en þau voru ekki fyrr­ver­andi þegar hann sem lifði var barn, ung­lingur og ungur maður. Og hann segir að ekki sé að finna sov­ésk áhrif í verk­unum. „Ég var alltaf á móti hug­mynda­fræði komm­ún­ista. Heimur minn var and­legur en síðan fór ég að leggja áherslu á trú­ar­legt myndefni.“

Sumum finn­ast mynd­irnar mínar vera ógn­vekj­andi.

Hann seg­ist trúa á sál mann­anna og allt sem henni teng­ist. Þessar áherslur má sjá í verkum hans sem lát­inn meist­ar­inn Leonardo da Vinci blés í brjóst fyrir um hálfri öld. Stundum sést inn í fólk. Inn í lík­ama fólks. Bein. Haus­kúpur. „Sumum finn­ast mynd­irnar mínar vera ógn­vekj­andi. Ég er ósam­mála. Við fæð­umst með bæði para­dís og hel­víti innra með okkur. Við þurfum að kom­ast út úr göngum and­legs ves­al­dóms og frelsa okkur sjálf frá myrku horni sál­ar­innar eins og Jesús gerði í eyði­mörk­inni.“

Allt þetta birt­ist svo í upp­bygg­ingu verk­anna. Litum. Táknum.

Hafið bláa hafið, sól­ar­lag og sól­setur og máva­hlátur dáleiða lit­háíska-íslenska lista­mann­inn en útlönd kalla líka en Vytautas hefur að und­an­förnu unnið mest við sviðs­myndir í erlendum leik­húsum. Síðasta verk­efni sem ég vann að var leik­rit byggt á Brave New World eftir Huxley í leik­stjórn Gintaras Varnas en það var sett upp í Vilnius Youth Theatre. Leik­myndin var til­nefnd til Golden State Cross-verð­laun­anna.“ Annars er Vytautas á Íslandi við hafið. „Restina af tím­anum mála ég hér á Íslandi og ber út blöð á nótt­unni.“

Í fjarbúð

Hann sem lifir segir að heim­ur­inn sem við þekkjum blási honum ekki í brjóst; eins og meist­ari da Vinci. „Ég les ekki dag­blöð,“ segir hann sem ber út dag­blöð á nótt­unni, „og ég horfi ekki á sjón­varpið þó ég hafi reyndar byrjað að fylgj­ast með fjöl­miðlum eftir að stríðið í Úkraínu hófst. Frá því ég var barn hef ég haft áhuga á list, sögu og heim­speki. Trú var mér mik­il­væg áður en ég gerði mér grein fyrir því. Mig dreymdi um að verða prestur og ganga í klaustur til að forð­ast þennan heim þótt ég hafi á sama tíma dreymt um að ferð­ast og skoða heim­inn.“

Og hjónin búa ekki saman.

Vytautas er kvæntur Dag­björtu Ásbjörns­dóttur. Og hjónin búa ekki saman. Heimilin eru tvö. „Það er eitt vanda­mál; þegar við hitt­umst þá finnst okkur við ekki geta varið nógu miklum tíma saman.“

Lista­mað­ur­inn sem lifir er spurður hvaða lífs­reynsla hafi haft mest áhrif á líf hans. „Leikhús er mik­il­vægur hluti í lífi mínu; leik­húsið er heill heimur út af fyrir sig. Ég fædd­ist í Sov­ét­ríkj­unum eins og hefur komið fram; búr­inu þar sem allt var rit­skoðað, bælt niður og afbakað. Leik­húsið var stað­ur­inn þar sem hægt var með mynd­lík­ingum að tala um það sem ekki hefði ann­ars verið hægt að tala um. Fólk fer í leik­hús til að finna frelsi. Upplifa frelsi.

Ef þeir sem fara á sýn­ing­una, og horfa á verkin mín, ná að líta í eigið sjálf og tala við sitt innra sjálf með því að horfa á mynd­irnar mínar mun það veita mér ánægju því þá veit ég að ég lifi og vinn ekki til einskis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi