Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tilraunaleiðangur við Íslandsstrendur: „Ísland varð fyrir valinu fyrir prufuverkefnið“

Tilraunaleiðangur við Íslandsstrendur: „Ísland varð fyrir valinu fyrir prufuverkefnið“
Þau Eiríkur Stein­gríms­son, pró­fessor í sam­einda­líf­fræði við Lækna­deild Háskóla Íslands og for­maður stjórnar EMBL, Valerie Maier, verk­efn­is­stjóri við Líf­vís­inda­setur HÍ, og Zophonías Jónsson, pró­fessor í sam­einda­erfða­fræði við Líf- og umhverf­is­vís­inda­deild hafa öll unnið að und­ir­bún­ingi TREC-verk­efn­is­ins hér á landi í sam­vinnu við stóran hóp íslenskra líf- og vist­fræð­inga.

Hópur vís­inda­manna við fjöl­margar stofn­anir á sviði vist­fræði á Íslandi tekur þátt í viða­miklu sam­starfs­verk­efni með European Molecular Biology Laboratory (EMBL), sam­evr­ópskrar stofn­unar á sviði sam­einda­líf­fræði, þar sem mark­miðið er m.a. varpa nýju ljósi á sam­spil smæstu og stærstu líf­vera og við­brögðum þeirra við umhverf­is­breyt­ingum. Sjónum verður m.a. beint að líf­rík­inu við strendur Íslands í til­rauna­verk­efni sem fara mun fram í sumar.

„Áætlunin var kynnt fyrir íslenskum vís­inda­mönnum og þeir sýndu rann­sókna­þem­anu Planet­ary Biology sér­stakan áhuga þar sem það snýst um að skilja betur sam­skipti örvera, þör­unga, plantna og dýra í sínu nátt­úr­legu umhverfi og hvernig þau bregð­ast við breyt­ingum í umhverfi sínu,“ segir Eiríkur Stein­gríms­son, pró­fessor í sam­einda­líf­fræði við Lækna­deild Háskóla Íslands. Hann bætir við að ætl­unin sé skoða þessa þætti bæði á sam­einda-, frumu-, ein­stak­lings- og stofn­stigi.

Verk­efnið sem um ræðir ber heitið TREC og er hluti af heild­ar­stefnu­mörkun stofn­un­ar­innar til næstu fimm ára, sem nefn­ist „Molecules to Ecosystems“.  Rann­sókn­ar­þemað í verk­efn­inu teng­ist líf­fræði plánet­unnar (e. Planet­ary Biology) en mark­miðið er m.a. að nýta nýj­ustu sam­einda­líf­fræði­legar aðferðir og tækni til að varpa ljósi á stöðu ein­stakra vist­kerfa og heil­brigði plánet­unnar.

Eiríkur hefur verið for­maður stjórnar EMBL frá árinu 2020 og undir hans for­ystu hefur stjórnin unnið að áður­nefndri heild­ar­stefnu­mörkun. Auk hans hefur Zophonías Jónsson, pró­fessor í sam­einda­erfða­fræði við Líf- og umhverf­is­vís­inda­deild skól­ans, setið í stjórn EMBL og þá hefur Valerie Maier, verk­efn­is­stjóri við Líf­vís­inda­setur HÍ, unnið að því að tengja áætl­un­ina við Ísland.

Heilbrigði vistkerfa jarðar er undirstaða fyrir líf á jörðinni

„Ávinnningur verk­efn­is­ins er ekki síst sá að með þeim aðferðum og tækjum sem EMBL býr yfir verður hægt að skoða líf­verur í sínu nærum­hverfi frekar en á rann­sókn­ar­stofu. Þetta var ekki hægt áður vegna tækni­legra þrösk­ulda,“ segir Zophonías og bætir við.

„Heil­brigði vist­kerfa jarðar er und­ir­staða fyrir líf á jörð­inni en lofts­lags­breyt­ingar, mengun og skóg­areyð­ing hefur mikið áhrif á vist­kerfin og dregur m.a. úr líf­fræði­legri fjöl­breytni. Í verk­efn­inu er verið að varpa nýju ljósi á vist­kerfi á sam­einda­fræði­legu stigi og það getur von­andi hjálpað okkur enn betur að bregð­ast við þeim miklu umhverf­is­breyt­ingum sem eru að verða í heim­inum.“

Ávinn­ingur TREC-verk­efns­is­ins er líka marg­þættur fyrir íslenskt vís­inda­fólk. „Nið­ur­stöður úr leið­angrinum í sumar verða opnar öllum þannig íslenskir vís­inda­menn geta nýtt þau gögn sem aflað verður til frek­ari rann­sókna eða til að varpa frekara ljósi á rann­sóknir sínar. Enn fremur er lítið vitað um sam­setn­ingu og hlut­verk örvera í íslensku vist­kerfi og því væntum við þess að rann­sókn­irnar verði mik­il­vægt skref í átt að auknum skiln­ingi á þessum kerfum og við­brögðum þeirra við umhverf­is­breyt­ingum,“ segir Eiríkur.

EMBL mun senda um 15 manna hóp til Íslands til að taka þátt í leið­angrinum. Þetta skapar að sögn Eiríks mögu­leika á auknu erlendu rann­sókna­sam­starfi fyrir íslenskt vís­inda­fólk og sam­eig­in­legum styrk­um­sóknum í fram­tíð­inni. Vís­inda­menn EMBL verða einnig með nám­skeið og fyr­ir­lestra á meðan á dvöl þeirra stendur hér á landi og hluti hóps­ins tekur þátt í stórri alþjóð­legri ráð­stefnu á sviði smá­sjár­rann­sókna sem Eiríkur og sam­starfs­fé­lagar standa að í ágúst.

Tilraunaleiðangur við Íslandsstrendur í sumar

Í leið­angrinum við Íslands­strendur í sumar verður sýnum safnað og aðferðir, sem beita á í rann­sókn­ar­verk­efn­inu, próf­aðar. Að því kemur m.a. 15-20 manna hópur vís­inda­manna við íslenska háskóla og stofn­anir sem allir eiga það sam­eig­in­legt að vinna að rann­sóknum og vöktun sem teng­ist vist­fræði. Þessar stofn­anir eru Haf­rann­sókna­stofnun, Matís, Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands, Nátt­úru­minja­safn Íslands, Háskól­inn á Akureyri, Háskól­inn á Hólum, Nátt­úru­stofa Suð­vest­ur­lands, auk Háskóla Íslands og rann­sókna­setra skól­ans á Vest­fjörðum og Suð­ur­nesjum.

Þessi hópur hefur m.a. rann­sakað með ýmsum hætti vist­kerf­is­breyt­ingar á og við Ísland en myndar jafn­framt nýjan sam­starfs­vett­vang vís­inda­fólks sem nefn­ist BIODICE og vinnur að því að efla vit­und og skiln­ing þjóð­ar­innar og rann­sóknir á líf­fræði­legri fjöl­breytni á Íslandi. Hug­myndin að sam­starfs­vett­vang­inum kvikn­aði einmitt á fundi líf­fræð­inga með full­trúum EMBL.

„Ísland þykir henta vel þegar kemur að vist­fræði og líf­fræði­legri fjöl­breytni hér við land,“ segir Valerie enn fremur um ástæður þess að Ísland varð fyrir val­inu fyrir prufu­verk­efnið.

Tækni sameindalíffræðinnar nýtt í náttúrunni

Sam­einda­líf­fræði­legar rann­sóknir fara oft­ast fram í til­rauna­stofum við mjög skýrt afmark­aðar reglur og aðstæður. Með fram­þróun í tækni og vís­indum búa vís­inda­menn nú hins vegar yfir tækjum til rann­sókna í sam­einda­líf­fræði sem hægt er að nota í nátt­úru­legu umhverfi líf­vera. Það er ekki síst þessi breytti veru­leiki sem vís­inda­menn­irnir von­ast til að geti hjálpað þeim að öðl­ast betri skiln­ing á sam­spili líf­vera og almennt á líf­inu á jörð­inni.

Nánari upp­lýs­ingar um TREC-verk­efnið má finna á vef­síðu EMBL.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi