„Saga þeirra er mjög lituð af þessum nánu samskiptum við nágrannana í austri. Þá er þetta mjög mikil umskipti sem hafa orðið í samfélagsumræðunni, en það virðist vera mjög eindreginn vilji ef marka má skoðanakannanir sem ítrekað hafa verið gerðar á undanförnum vikum,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra í samtali við Fréttastofu RÚV.
Finnska þingið mun í dag hefja umræður um hvort sækja beri um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Undanfarna áratugi hefur fylgi í Finnlandi við aðild þeirra að bandalaginu verið á bilinu 20 til 30 prósent, en fór yfir 60 prósent í skoðanakönnunum eftir innrás Rússa í Úkraínu.
Katrín var sjálf í Finnlandi á dögunum og fundaði meðal annars með Sönnu Marin, forsætisráðherra Finna. Katrín segir ljóst að mjög róttækar breytingar séu að eiga sér stað í þjóðfélagsumræðunni í Finnlandi.
Katrín segir að íslensk stjórnvöld muni standa með ákvörðunum Finna og Svía varðandi mögulega aðild að bandalaginu. Þjóðaröryggisráð vinnur nú að uppfærslu á áhættumati fyrir Ísland.





















Athugasemdir