Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristján Einar er í haldi lögreglu á Spáni: „Tek aðeins einn dag í einu“

Kristján Einar er í haldi lögreglu á Spáni: „Tek aðeins einn dag í einu“
Kristján Einar Sig­ur­björns­son Mynd: Instagram-skjáskot

Kristján Einar Sig­ur­björns­son hefur verið á milli tann­anna á fólki síð­ustu daga eftir að fréttir bár­ust af hand­töku hans á Spáni en þar er hann enn í haldi. En hver er Kristján Einar sem stundum gengur undir nafn­inu Kleini?

Eruð þið að sjá þessar línur?

Rómantíski sjómaðurinn

Kristján Einar, 24 ára, er fæddur og upp­al­inn á Húsavík en býr nú í Hafn­ar­firði ásamt unn­ustu sinni, Svölu Björg­vins­dóttur söng­konu en sam­band þeirra hefur vakið athygli vegna 21 árs ald­urs­munar pars­ins. Á hann fimm ára dóttur úr fyrra sam­bandi. Auk þess að vera áhrifa­valdur, en hann heldur úti bæði Instagram-síðu og tiktok aðgangi, er hann sjó­maður. Í við­tali við Frétta­blaðið árið 2021, seg­ist Kristján una sér vel á sjónum: „Ég er upp­al­inn í miklum útgerð­arbæ og hef upp síðkastið starfað á því magn­aða skipi, Helgu Maríu í eigu Brims. Sjórinn herðir mann og þetta er erfið vinna, en hún gefur mikið og þarna getur maður kúp­lað sig út úr líf­inu í borg­inni og núll­stillt hug­ann, sem mér finnst nauð­syn­legt af og til. Ég er mjög ánægður með að vera sjó­maður eins og er, en hver veit nema lífið taki aðra stefnu einn dag­inn.“

Sjálfur lýsir hann sér sem „fyndnum, metn­að­ar­fullum, ein­lægum, hrein­skilnum og róm­an­tískum“. Þá sagð­ist hann einnig í við­tal­inu hafa stóra drauma. „Ég er ungur maður með stóra drauma, vinur vina minna og sem fylgir hjart­anu.“

Í við­tal­inu kemur fram að Kristján sé róm­an­tískur en hann bað Svölu á afar róm­an­tískan hátt. „Ég vil nú helst ekki segja frá bón­orð­inu í smá­at­riðum, en ég get vottað að þar var mikið af rósum, kertum og róm­an­tík upp á tíu.“ Algjör draumur sem sagt.

Kleini

Stundum gengur Kristján Einar undir nafn­inu Kleini en hvaðan kemur það? „Þegar ég var yngri átti ég það oft til að hjálpa ömmu Svönu að baka kleinur og segjum sem svo að ef við ætl­uðum að baka hund­rað kleinur varð hún alltaf jafn hissa þegar aðeins sjö­tíu kleinur skil­uðu sér úr bakstr­inum. Eftir að föð­ur­bróðir minn sá mig svo stela kleinum hægri, vinstri, ákvað hann að byrja að kalla mig Kleina og það bara fest­ist við mig,“ sagði Kristján í við­tal­inu við Frétta­blaðið sem áður var minnst á. Þar segir hann enn­fremur að hann hafi verið erf­iður krakki, með ADHD og því fyr­ir­ferða­mik­ill. Segist hann enn­fremur hafa lifað „rokk­ara­lífi“ sem hann hafi nú lokið.

Dómarnir

Þessi róm­an­tíski sjó­maður á sér sínar dökku hliðar. Hefur hann verið opinn um for­tíð sína sem hann segir ekki alveg upp­gerða: „Ég hef mark­visst unnið í sjálf­um mér og náð ár­angri. Ég er ekki kom­inn á leiðar­enda, tek aðeins einn dag í einu. Ég hlaut dóm á síð­asta ári. Ég undi ekki niður­stöðu þess dóms og hef áfrýjað hon­um til Lands­rétt­ar. Þeirr­ar niður­stöðu bíð ég. Af til­lits­semi við aðila læt ég vera að fjalla sér­stak­lega um málið. Þeir sem áhuga hafa á því geta kynnt sér málið og um leið varn­ir mín­ar,“ skrif­aði Kristján á Instagram síðu sinni en DV sagði frá því. Lands­réttur sýkn­aði síðar Kristján af lík­ams­árásinni en áður hafði hann verið dæmdur fyrir fíkni­efna- og vopna­laga­brot. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hóta lög­regl­unni líf­láti á Hótel Barón á Bar­ón­stíg, árið 2020. „Einn dag­inn mun ég drepa einn af ykkur,“ á hann að hafa sagt við þrjá lög­reglu­menn sem voru við skyldu­störf. Ekki hefur enn verið dæmt í mál­inu, sam­kvæmt bestu vit­und Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi