Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögreglan tók sextán ára dreng í tvígang í misgripum fyrir strokufangann – Myndband í dreifingu

Lögreglan tók sextán ára dreng í tvígang í misgripum fyrir strokufangann – Myndband í dreifingu
Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd / Stundin.

Sextán ára drengur hefur í tvígang lent í því síð­ustu tvo daga að lög­reglan hefur afskipti af honum en hann er með sama lit­ar­haft og stroku­fang­inn Gabríel Douane Boama. Í gær var hann í sak­leysi sínu í stræt­is­vagni er tveir lög­reglu­bílar og sér­sveitin réð­ist inn og tóku dreng­inn til að ganga úr skugga um að hann væri sá sem þeir leit­uðu að. Í morgun gerð­ist það svo aftur að lög­reglan hafði aftur afskipti af honum þegar hann var staddur í bak­aríi ásamt móður sinni. Myndband náð­ist af atburð­inum.

Móðirin er afar ósátt við málið en hún hefur skrifað tvær færslur á sam­fé­lags­miðlum um málið en ekki gefið fjöl­miðlum leyfi til að vitna beint í orð sín. Mannlíf virðir það. Telur móð­irin þetta ekki vera lög­reglu­vanda­mál, heldur sam­fé­lags­legt vanda­mál.

Það lítur út fyrir að veg­far­andi hafi hringt í lög­regl­una í morgun og til­kynnt að stroku­fang­inn væri í bak­arí­inu. Í gær var lög­reglan harð­lega gagn­rýnd á sam­fé­lags­miðl­unum í gær eftir að dreng­ur­inn var tek­inn í stræt­is­vagn­inum af lög­regl­unni. Samkvæmt DV var vagn­inn stopp­aður af vopn­uðum sér­sveit­ar­mönnum eftir að ábend­ing hafði borist um að stroku­fang­ann væri þar að finna.

Móðir drengs­ins, sem er lög­maður, fór á fund lög­reglu í gær og krafð­ist afsök­unar en
lög­reglan gaf frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins í gær:

„Lögregla leitar nú ungs manns sem til­heyrir minni­hluta­hópi á Íslandi, en hann strauk frá lög­reglu og er tal­inn hættu­legur. Í dag var sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra kölluð til aðstoðar við lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem ábend­ing hafði borist um að sá eft­ir­lýsti væri í stræt­is­vagni í Reykja­vík. För vagns­ins var stöðvuð en þegar sér­sveit­ar­menn fóru inn í vagn­inn þá sáu þeir strax að ekki var um að ræða ein­stak­ling­inn sem var verið að leita að og yfir­gáfu þeir því vagn­inn.

Móðir drengs­ins hafði sam­band við rík­is­lög­reglu­stjóra í kjöl­farið og lýsti áhyggjum af þeirri stöðu sem komin væri upp, þar sem ung­menni í minni­hluta­hópi ótt­ist að vera tekin í mis­gripum vegna útlits. Í sam­tal­inu komu fram mik­il­vægar áherslur sem rík­is­lög­reglu­stjóri ætlar að bregð­ast við, þ.m.t. sam­tal við sam­fé­lagið um for­dóma.

Rík­is­lög­reglu­stjóra þykir leitt að dreng­ur­inn hafi í dag orðið hluti af þessum aðgerðum lög­reglu en ábend­ing barst um að hann væri sá sem var lýst eftir, sjálfur hafði dreng­ur­inn ekk­ert unnið sér til sakar.

Þá hvetur emb­ættið til var­kárni í sam­skiptum um þetta mál og önnur mál sem tengj­ast minni­hluta­hópum. Fordómar eiga aldrei rétt á sér. Leit að hættu­legu fólki má ekki verða til þess að minni­hluta­hópar í okkar sam­fé­lagi upp­lifi óör­yggi eða ótta við að sam­ferða­fólk þeirra til­kynni það til lög­reglu án til­efnis.

For­dóma­fullar athuga­semdir verða áfram fjar­lægðar af miðlum lög­regl­unnar um málið og lokað verður fyrir frek­ari athuga­semdir. Ábend­ingum sem tengj­ast mál­inu skulu eftir sem áður ber­ast Lög­regl­unni í síma 112.“

Myndband er nú í dreif­ingu á sam­fé­lags­miðl­unum en Mannlíf hefur séð það. Þar sést móð­irin standa við hlið sonar síns sem situr í bak­arí­inu og tveir lög­reglu­menn fyrir framan þau. Móðirin, sem er skilj­an­lega í upp­námi, segir: „Þetta er ekki hann! Þetta er barnið mitt!“ Hún bætir svo við að hún viti hver hafi hringt í lög­regl­una. „Ég sá mann­inn í Teslunni, ég veit að það var hann sem hringdi í ykkur.“ Hún bæti svo við að hún hafi komið úr vinn­unni til að róa strák­inn sinn niður eftir atvikið í stæt­is­vagn­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi