Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Úr unglingalandsliðinu í ofbeldisglæpi: „Hann var bara ofboðslega blíður og góður strákur“

Úr unglingalandsliðinu í ofbeldisglæpi: „Hann var bara ofboðslega blíður og góður strákur“
Gabríel Douane Boama Mynd: Instagram-skjáskot

Gabríel Douane Boama hefur á baki sér langan ofbeld­is­feril þó hann sé ein­ung­ist tví­tugur að aldri. En áður en hann fet­aði grýttan veg ofbeld­is­glæpa var hann meðal efni­leg­ustu körfuknatt­leiks­mönnum Íslands og er óhætt að segja að flestir sem til hans þekkja eru í sjokki yfir þeirri stöðu sem hann hefur nú komið sér í. Mannlíf skoð­aði laus­lega sögu Gabríels.

Langur og ljótur afbrotaferill

DV fór nýlega yfir ofbeld­is­feril Gabríels. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Gabríel verið við­riðin fjölda ofbeld­is­brota en hann var ekki nema sextán ára er hann var ákærður fyrir sér­stak­lega hættu­lega lík­ams­árás í nóv­em­ber 2018, ásamt tveimur öðrum fyrir utan Hagkaup í Skeif­unni. Réðust þre­menn­ing­arnir að tveimur mönnum og lömdu þá hvað eftir annað í höfuð og búk auk þess að sparka í lík­ama þeirra eftir að þeir féllu í jörð­ina. Fórn­ar­lömbin hlutu ýmsa áverka, það á meðal úln­liðs­brot.

Gabríel var svo ákærður fyrir brot gegn vald­stjórn­inni þegar hann hót­aði ítrekað lög­reglu­mönnum við skyldu­störf lík­ams­meið­ingum og líf­láti við Hótel Apótek í Aust­ur­stæti. Var það í sept­em­ber 2019. Hótanir Gabríels héldu svo áfram á leið­inni á lög­reglu­stöð­ina við Hverf­is­götu og einnig inn­an­dyra á stöð­inni.

Blóðug árás Gabríels í Borg­ar­holts­skóla í jan­úar í fyrra vakti óhug hjá þjóð­inni enda ekki á hverjum degi sem slíkt ger­ist í fram­halds­skóla hér á landi en Gabríel not­aði bæði hafna­bolta­kylfu og hníf í árásinni. Fjórir nem­endur voru fluttir á slysa­deild eftir árás­ina en eng­inn var alvar­lega slas­aður.

Aðeins hálfu ári síðar var Gabríel kærður fyrir aðra lík­ams­árás í félagi við annan mann. Veittust þeir að öðrum manni og slógu hann í and­litið með kylfu og var hann einnig ákærður fyrir að hafa slegið annan mann í lærið með kylf­unni í kjöl­far hinnar árás­ar­innar.

Ljósmynd sem Gabríel birti af sér á Instagram á meðan hans var leitað af lög­regl­unni.

Þá birti DV mynd­band af hrotta­legri árás en þar réð­ist mik­ill fjöldi fólks, með Gabríel fremstan í flokki, að einum manni við Dalveg í Kópavogi í ágúst 2021. Var Gabríel ákærður fyrir að slá mann­inn í nokkur skipti í höfuð, taka hann háls­taki og fyrir að halda honum á meðan aðrir slógu í and­lit hans, fella hann í jörð­ina og slá og sparka nokkrum sinnum í höfuð manns­ins og búk. Fórn­ar­lambið hlaut af þessu inn­kýlt brot í nef­beinum, opið sár á vör og í munn­holi, sár og mar á eyra sem og mar í kringum auga.

Aukreitis var Gabríel ákærður fyrir að ráð­ast á 22 ára stúlku á Prikinu í októ­ber 2021 og slegið hana í and­litið. Þar að auki hefur hann verið ákærður fyrir vörslu á fíkni­efnum og fyrir að stela úr Vín­búð­inni.

Málið sem tekið var fyrir í Hér­aðs­dóm Reykja­víkur er Gabríel slapp úr haldi lög­reglu, snýr að ráni sem átti sér stað í júlí 2021 en þar þving­aði hann, ásamt fjórum öðrum, ein­stak­ling til að milla­færa tæp­lega 900.000 krónur af banka­reikn­ingi sínum með hót­unum um lík­ams­meið­ingar og líf­láti.

Ekki hefur Mannlíf heim­ildir fyrir því að dæmt hafi verið í fyrri málum Gabríels, enn sem komið er.

Einn efnilegast körfuboltamaður Íslands

Gabríel var af mörgum tal­inn einn allra efni­leg­asti körfu­bolta­maður lands­ins en upp­eld­is­fé­lag hans var Valur. Mannlíf tal­aði við Ágúst Björg­vins­son sem þjálf­aði Gabríel í um nokk­urra ára skeið og þekkir hann vel. Var Ágúst algjör­lega miður sín yfir því hvernig er komið fyrir honum. „Þegar ég kynn­ist honum er hann 10 ára gam­all sko, jafn­vel yngri. Ég hef sem sagt þekkt hann síðan hann var barn og hann var bara ofboðs­lega blíður og góður strákur. Hann var alveg extra blíður sko. Hann var það blíður að hann var að passa strák­ana mína og hann hafði gaman af því að vera með börnum. Hann var alveg ynd­is­legur drengur. Hann til dæmis faðmar mig enn þann dag í dag, í hvert skipti sem hann sér mig. Og hann gerir það sama við strák­ana mína þegar hann sér þá. En svo árin á eftir grunn­skóla villist hann eitt­hvað af leið en þá er ég hættur að þjálfa hann. Þá slitna tengslin svo­lítið við hann, ég var ekki í dag­legum sam­skiptum við hann. Og ég veit ekk­ert hvað ger­ist nákvæm­lega eftir það.“

Aðspurður hvort honum þyki þetta ekki sorg­legt játar Ágúst því: „Jú, þetta er mjög sorg­legt. Það er eig­in­lega ekki hægt að lýsa því hversu svaka­legt þetta er. Hann var nátt­úru­lega mjög efni­legur í körf­unni en það sem skiptir meira máli, þá var hann virki­lega góður drengur. Og er það í grunn­inn. En hefur villst af braut. Ég finn bara ofboðs­lega til með honum og hans for­eldrum, ég þekki þau mjög vel. Ég vona bara að hann fái þá hjálp sem hann þarf á að halda og nái að kom­ast á beinu braut­ina.“

Gabríel ásamt félögum úr ung­linga­lands­lið­inu.

Gabríel hætti hjá Val árið 2018 og fer þá yfir í ÍR en þaðan flosnar hann upp úr körf­unni. 2021 snéri Gabríel aftur í körfu­bolt­ann en þá hóf hann að æfa með Selfossi. Entist hann ekki nema í nokkrar vikur áður en hann hætti. Mannlíf ræddi við for­mann Körfuknatt­leiks­fé­lags Selfoss, Gylfa Þor­kels­son: „Hann kom í haust ein­hvern­tím­ann og við ákváðum að gefa honum tæki­færi og hann æfði hjá okkur í nokkrar vikur. En síðan skrapp hann í bæinn og kom ekki aftur og við höfum bara ekk­ert heyrt frá honum aftur. Hann ætl­aði sér að inn­rita sig í skól­ann á Selfossi eftir ára­mót og fara í Körfu­bolta­aka­dem­í­una hjá okkur. En það fór eins og það fór. Þessar fáu vikur sem hann var hjá okkur var hann bara til fyr­ir­myndar, ekk­ert vesen á honum eða neitt.“

Gabríel var einn efni­leg­asti körfuknatt­leiks­maður Íslands á sínum yngri árum en hann var í ung­linga­lands­lið­inu á tíma­bili. Þá var hann val­inn besti leik­maður Norð­ur­landa í sínum ald­urs­flokki í Scania Cup árið 2017 en það er óop­in­bert Norð­ur­landaa­mót félags­liða í körfuknatt­leik fyrir ungt körfuknatt­leiks­fólk. Meðal fyrri leik­manna sem hlotið hafa þann titil eru þau Jón Arnar Stef­áns­son og Helena Sverr­is­dóttir.

Ágúst Björg­vins­son þjálf­ari Gabríels á árum áður, sagði í lok sím­tals­ins við Mannlíf orð sem passa ágæt­lega sem loka­orð þess­arar yfir­ferðar: „Hann er ennþá bara tutt­ugu ára, hann getur ennþá snúið þessu við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi