Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stórsöngvarinn Geir Ólafsson af krafti út í stjórnmálin: „Ég er ofboðslega sjúkdómahræddur“

Stórsöngvarinn Geir Ólafsson af krafti út í stjórnmálin: „Ég er ofboðslega sjúkdómahræddur“
Geir Ólafsson

„Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að það skiptir engu máli í hvaða flokki maður er af því að ég vil per­sónu­kjör,“ segir Geir Ólafsson söngv­ari sem skipar annað sæti á lista Mið­flokks­ins og óháðra í Kópavogi. „Það er mikið af góðu fólki alls staðar.“

Hvers vegna ákvað Geir að gefa kost á sér?

„Ég fékk sím­tal fyrir nokkrum vikum sem ég taldi vera eitt af mörgum sím­tölum sem ég fæ á viku sem eru ákveðin grín; ég fæ sím­töl frá fólki sem líður illa og er virki­lega að leita eftir hjálp og ég fæ líka sím­töl frá fólki sem er að gera grín. Þegar ég fékk svo sím­tal frá Mið­flokknum þá hélt ég að þetta væri grín; af því að það eru að koma kosn­ingar þá hélt ég að það væri við hæfi að hringja aðeins í Geir og athuga hvort hann væri ekki til í að bjóða sig fram fyrir Mið­flokk­inn. Ég ákvað að taka þessu sím­tali létt eins og ég reyni að gera öllum stundum og lagði svo bara á og var ekk­ert að hugsa um þetta meira en svo var þetta í und­ir­með­vit­und­inni og ég varð dálítið hugsi. Ég fór að velta því fyrir mér þar sem ég bý í Kópavogi að þar er ýmis­legt sem ég vil ekki sjá í neinu bæj­ar­fé­lagi og maður veltir fram­tíð­inni fyrir sér af því að ég á litla stúlku sem er sex ára gömul. Ég hef áhuga á að hjálpa henni út í lífið og ég vil að hún búi í sam­fé­lagi sem ég vildi búa í. Þegar ég fékk svo annað sím­tal um að ég ætti að skrifa undir lista ef ég ætl­aði að taka sæti fyrir flokk­inn þá átt­aði ég mig á því að þetta var ekk­ert grín. Ég var í raun­inni búinn að und­ir­búa mig dálítið varð­andi það hvaða stefnu ég vildi.“

Og hver er stefna Geirs?

Ég ætla að ná því fram að það verði frítt í strætó.

„Ég ætla að koma Kópavogi aftur á kortið og ætla að hjálpa fólk­inu sem þar býr. Ég ætla að ná því fram að það verði frítt í strætó og ég ætla að láta laga strætó­skýlin þannig að þau taki vel á móti þeim sem þar bíða eftir strætó í þessu veðri sem við búum við á Íslandi. Skýlin eiga að vera aðlað­andi. Ég ætla að sjá til þess að það verði frítt kaffi fyrir fólkið sem fer í sund­laug­arnar og ég ætla að sjá til þess að bæta and­rúms­loftið á sumum sund­laug­ar­stöð­unum og krefj­ast þess að við séum að koma vel fram við hvert annað. Ég ætla að láta laga göt­urnar þannig að það verði ekki neinar holur í götum í Kópavogi. Og ég vil að reynsla leik­skóla­kenn­ara verði metin svo sem eftir ára­tuga reynslu sem hluti af menntun þannig að þeir fái hærri laun. Börnin eru fram­tíðin og ég hef margoft orðið vitni að því í leik­skóla dóttur minnar að það er alltaf ný og mý mann­eskja og í sjálfu sér var það allt í lagi; þetta er allt ynd­is­legt og gott fólk en af hverju helst fólkið ekki í stör­f­unum? Það er vegna þess að þetta er svo illa launað. Og þessu ætla ég að breyta. Og ég ætla að koma í veg fyrir að það sé verið að selja eit­ur­lyf í Hamra­borg­inni. Ég vil að það verði öruggt að ganga úti í Kópavogi og að for­eldrar geti treyst því að börn þeirra séu örugg úti. Ég ætla að láta banna að handa rusli í Kópavogi nema þar sem á að setja rusl og það á að banna reyk­ingar úti nema þar sé aðstaða fyrir reyk­inga­fólk þar sem það getur losað sig við sígar­ettu­stubbana á ákveðnum stöðum. Þetta eru hlutir sem auð­velt er að gera. Og með því að búa til svona prótókoll þá væri ég að fá marga til að taka þátt í þessu með mér þannig að hægt og bít­andi yrði sam­fé­lagið betra.

Ég ætla að syngja mikið fyrir eldri borg­ara en ég ætla að heim­sækja þá og spjalla við þá og spyrja hvað það er sem við getum gert til þess að bæta líðan þeirra og kjör. Ég ætla að fara í fyr­ir­tækin og láta lækka fast­eigna­gjöldin; það er fárán­legt að fyr­ir­tæki fari úr 70.000 krónum á mán­uði í 80.000-100.000 krónur. Fyr­ir­tæki má ganga ansi vel til þess að geta staðið undir þessu. Þetta þarf ekki að kosta svona mikið.“

Geir nefnir líka Fann­borg­ar­reit­inn þar sem á að fara að byggja. „Ég vil að það verði komið til móts við fólkið sem þar býr og því gef­inn kostur á að selja íbúðir sínar ekki á und­ir­verði heldur á því verði sem það myndi almennt fá ef það myndi ekki vilja búa við spreng­ingar og hávaða sem fylgir því þegar byggt verður á svæð­inu. Það er ekki hægt að bjóða fólki upp á svona vinnu­brögð. Það er bara ekki hægt. Þetta er fyrir neðan allar hellur og þetta er til mik­illar skammar.“

Geir seg­ist ætla að verða ákveð­inn fót­göngu­liði ef hann nær kjöri. „Ég ætla ekki að vera inni á skrif­stofu heldur heim­sækja fyr­ir­tæki og stofn­anir í Kópavogi og vera þeirra maður og þeirra rödd inni á bæj­ar­skrif­stof­unni til þess að koma sjón­ar­miðum þeirra á fram­færi.

Ef manni býðst tæki­færi til að láta rödd sína heyr­ast og koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi og er til­bú­inn að berj­ast fyrir því þá held ég að ég líti á þetta sem ákveðna skyldu mína til þess að opin­ber­lega hjálpa sam­fé­lag­inu til þess að verða betra.“

Þetta er dálítið popp. Latín popp.

Þeirra rödd. Geir er þekktur fyrir söng­rödd­ina. Í hverju er hann að vinna núna hvað tón­list­ina varðar?

„Ég er að taka upp plötu. Mitt eigið efni. Þetta er dálítið popp. Latín popp. Ég mun ekki hætta að syngja. Ég mun halda því áfram af því að ég get ekki hætt því sem Guð gaf mér. Þannig að ég vona að það verði engar breyt­ingar á því.“

Ótrúlega flott, menntuð og klár

Latín popp. Geir fílar suð­ræna músík og teng­ist það meðal ann­ars eig­in­konu hans, Adriana Patricia Sanchez Krieger, sem er frá Kólumbíu. Sex ára dóttir hjón­anna heitir Anna Rós.

Hjónin kynnt­ust árið 2009.

„Ég vann í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu Dún og fiðri og hringdi pabbi í mig á föstu­dags­kvöldi og bað mig um að búa til eina æðar­dúns­sæng og fara svo með hana til kaup­and­ans í Bláa lónið dag­inn eftir. Ég gerði þetta og þegar ég kom á hót­elið í Bláa lón­inu var fullt af stúlkum sem komu til mín og heimt­uðu að fá myndir með mér. Ég var til í það. Tvær glæsi­legar konur sátu við borð á svæð­inu og var önnur þeirra konan sem ég átti að hitta. Ég fór svo til þeirra og spurði vin­kona hennar hvers vegna stúlk­urnar hefðu verið að taka myndir af mér. Ég sagð­ist vera fræg­asti söngv­ari þessa lands. Hún sagði að ég skyldi sanna það og ég söng fyrir hana O Sole Mio. Eftir það urðum við miklir vinir.“

Það var núver­andi eig­in­kona Geirs, Adriana, sem vildi að hann syngi. Þau voru svo kunn­ingjar næstu þrjú árin. Það var svo árið 2012 sem Geir var að fara að syngja á tón­leikum í Los Angeles og þá bauð hann Adriana að koma þangað sem hún gerði og þá hófst sam­band þeirra og giftu þau sig fimm árum síðar.

fram­kvæmda­stjóri mark­aðs­mála hjá Visa í Bólivíu, Kólumbíu, Ekvador, Perú og Venes­ú­ela.

Adriana er efna­hags- og mark­aðs­fræð­ingur að mennt. Hún vann um ára­bil meðal ann­ars sem yfir­maður hjá Sant­ander-bank­anum á Spáni og er í dag fram­kvæmda­stjóri mark­aðs­mála hjá Visa í Bólivíu, Kólumbíu, Ekvador, Perú og Venes­ú­ela. Adriana reyndi um tíma að fá vinnu á Íslandi en kom að lok­uðum dyrum.

Þar fékk hún þær upp­lýs­ingar að fólk frá heima­landi hennar kæmi til Íslands til þess að skúra.

„Ég held að það sé kannski meira í höndum Alþingis að fara aðeins að breyta sínum hug­sjónum gagn­vart frá­bæru fólki sem kemur hingað til að búa og sem hefur frá­bæra menntun; að það sé ekki virt að vettugi heldur sé virt af gæðum þess og kær­leika eins og konan mín sem er ein­hver besta kona sem ég hef á ævi minni kynnst og ég þakka Guði fyrir að vera með henni og að hún vilji vera með mér. Það er mikil synd að það var ekki tekið vel á móti henni með alla sína menntun og þekk­ingu í fjár­mála­geir­anum. Það er til mik­illar skammar fyrir okkur Íslend­inga að þetta sé raunin. Hún er ótrú­lega flott, menntuð og klár og alls staðar þar sem hún kemur er hún dáð og elskuð. Svo fór hún að leita sér að vinnu í ákveðnum stofn­unum á Íslandi af því að hana lang­aði til þess að kynn­ast íslensku sam­fé­lagi og hún mætti oft og tíðum mjög miklum dónum. Hún sótti til dæmis um starf hjá ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki sem varð síðar gjald­þrota og þar fékk hún þær upp­lýs­ingar að fólk frá heima­landi hennar kæmi til Íslands til þess að skúra. Það er ömur­legt að vita til þess að svona við­van­ingar séu fengnir til þess að taka á móti svona frá­bæru fólki og eyði­leggja ímynd Íslend­inga því þetta er ekki það sem við stöndum fyrir. Við stöndum fyrir allt annað. Við stöndum fyrir það að vera dug­leg og hjálpa hvert öðru. Það er langt í frá að Íslend­ingar séu yfir heild­ina ras­istar. Við erum það alls ekki. Það kemur hins vegar fram í svona stofn­unum þar sem fólk er hrætt um stöðu sína.“

Geir segir að Adriana sé sterk kona og hún hafi orðið hissa á þeim mót­tökum sem hún fékk í atvinnu­leit­inni. „Hún átt­aði sig á því að við vorum bara ekki með rétta fólkið til þess að starfa í sumum fyr­ir­tækjum. Konan mín er með CV sem eng­inn á Íslandi hefur; hún ætti að vera banka­stjóri á Íslandi og hún myndi setja þessar stofn­anir á miklu betra level.“

Adriana hefur verið búsett á Íslandi und­an­farin ár og getað unnið í fjar­vinnu vegna heims­far­ald­urs­ins en hún mun snúa á vinnu­stað­inn í Kólumbíu í maí.

Hvað er ástin í augum Geirs Ólafs­sonar?

„Vinátta og traust er ótrú­lega mik­il­vægt. Það er svo mikið atriði að vera í góðu vin­áttu­sam­bandi. Ég og konan mín höfum aldrei rif­ist. Við höfum ekki alltaf verið sam­mála en við höfum aldrei rif­ist. Við höfum aldrei sagt ljótt orð við hvort annað. Aldrei nokkurn tím­ann. Við erum búin að vera saman í 10 ár og gift í fimm ár. Við höfum aldrei sagt styggð­ar­orð sem særir hvort annað. Aldrei nokkurn tím­ann. Þess vegna fannst mér svo skrýtið þegar dóttir okkar var farin að fara í skól­ann að hún fór að heyra alls konar hluti sem við þurftum svo að útskýra fyrir henni og segja að svona sé þetta hjá sumum fjöl­skyldum en að við töl­uðum ekki svona. Svo fór hún í skól­ann dag­inn eftir og sagði við krakk­ana „maður á ekki að tala svona“.

Sjúklegur kvíði

Lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum þótt Geir syngi oft svo fólk fjöl­mennir á dans­gólfið. Hann var sex ára þegar hann fór að finna fyrir kvíða og í dag er hann með grein­ingu: Sjúk­legur kvíði.

„Ég er búinn að berj­ast við þetta í mörg ár og ég ræð ekki við það. Þetta er ömur­legur sjúk­dómur. Ömur­legur. Og hann hefur oftar en ekki slegið mig niður. Með því að fara að vinna í sjálfum mér og fara til lækna sem hafa hjálpað mér og skrifað upp á lyf þá hef ég hægt og bít­andi náð að byggja mig upp. Það sem ég er að gera núna hefði ég kannski ekki getað fyrir fjórum árum síðan.

Þú getur rétt ímyndað þér; ég fer kannski út í bíl og treysti mér ekki til að keyra heim.“

Þögn.

„Þetta er svo sjúk­legt. En af því að maður hefur staðið í þessu þá hefur maður líka reynt að hjálpa sér með því að hugsa hvað ég geti gert til þess að mér líði betur. Jú, það er til dæmis að vera ekki upp á kant við neinn. Það er mikið atriði að vera ekki upp á kant við nokkurn mann. Það er bara grund­vall­ar­at­riði í líf­inu.“

Hvað er það erf­ið­asta sem Geir hefur gengið í gegnum varð­andi kvíð­ann?

„Það er akkúrat þetta; að treysta mér ekki til að gera ákveðna hluti. Þora það ekki. Þora ekki að fara út.“

Þetta er van­líðan og til­finn­ing sem maður getur ekki stjórnað.

Þögn.

„Þora ekki að fara út í bíl. Það er óþægi­legt. Og vita ekk­ert. Þetta er van­líðan og til­finn­ing sem maður getur ekki stjórnað. Maður verður bara að bíða þangað til þetta líður hjá. Það var til dæmis bara krafta­verk að geta farið einn í flug­vél. Ég er búinn að vinna í þessu í mörg ár og var greindur með sjúk­legan kvíða. Það sést ekk­ert á mér af því að ég er svona; ég drekk ekki og reyki ekki og ég er hepp­inn að eiga góða konu og fjöl­skyldu. Það eru ekki allir í slíkri stöðu þannig að ég er gríð­ar­lega þakk­látur fyrir það.“

Geir drakk áður fyrr. Meira en góðu hófi gegndi.

„Það eru orðin 22 ár síðan ég hætti því. Ég átt­aði mig á því að þetta var ekki að hjálpa og ég þakka Guði fyrir það á hverjum degi að vera laus við það; það get ég sagt þér. Ég væri ekki einu sinni að tala við þig í dag ef ég hefði haldið áfram að drekka.“

Hvaða áhrfi hafði drykkjan á kvíð­ann?

„Bara við­bjóður. Kannski deyfði drykkjan kvíð­ann í ein­hvern tíma og svo var það við­bjóður. Svo deyfð­ist það og svo var það bara við­bjóður. Það var bara ógeðs­legt. Hreint út sagt.“

Geir fór í með­ferð.

„Ég fór í ein­hverja smá­með­ferð. Það var voða gott að kom­ast þarna inn og vera í svona smá­bómul en svo átt­aði ég mig á því að það er eng­inn að fara að gera þetta fyrir mann nema maður sjálfur og maður verður að bera ábyrgð á þessu sjálfur. Það er þannig.“

Hef ég ekki nefnt eitt styggð­ar­yrði um aðra fram­bjóð­endur eða aðra flokka.

Geir segir að það sé meðal ann­ars vegna kvíð­ans sem hann leggur áherslu á góð sam­skipti við alla. „Ef þú ferð á netið þá sérðu hvergi nei­kvæðar athuga­semdir frá mér um aðra. Og í okkar við­tali í dag hef ég ekki nefnt eitt styggð­ar­yrði um aðra fram­bjóð­endur eða aðra flokka. Það er allt of mikið í okkar sam­fé­lagi að fólk sé að reyna að bæta ímynd sína með því að níða aðra. Það er ekki leiðin.“

Hann var lagður í ein­elti í æsku og hann seg­ist vera bar­áttu­maður; hann ætl­aði ekki að láta koma illa fram við sig og tekur fram að þeir sem leggja í ein­elti líður illa. Og kvíð­inn hefur gert hann enn sterk­ari.

Dauðinn

Fyrir utan kvíð­ann er dauði bróð­ur­sonar Geirs það erf­ið­asta sem hann hefur gengið í gegnum. Bróð­ur­sonur hans var 17 ára þegar hann lést í bílslysi árið 2011.

„Það er ekki hægt að fara í gegnum neitt erf­ið­ara heldur en það. Það var ógeðs­legt. Það var ömur­legt. Ömurleg til­finn­ing.“

Hvað er dauð­inn í huga söngv­ar­ans og fram­bjóð­and­ans?

„Ég er voða­lega líf­hræddur. Ég er ofboðs­lega sjúk­dóma­hræddur. Ég er dálítið flók­inn hvað þetta varðar en að öðru leyti er ég ekki flók­inn.“

Tekur eitt­hvað við eftir þetta líf?

„Já, ég trúi því að við eigum öll eftir að sjást aftur og koma aftur á jörð­ina og lifa góðu lífi.“

Það er alltaf sorg­legt að sjá á eftir fólki sem manni þykir vænt um.

Fyrr­ver­andi sam­býl­is­kona Geirs, Anne Kristine Magn­ús­dóttir Mikulcakova, lést fyrr á þessu ári.

„Það er alltaf sorg­legt að sjá á eftir fólki sem manni þykir vænt um. Við kynnt­umst árið 1999 og svo vorum við saman í fjögur ár og svo héldum við vin­skap alla tíð. Það er engin spurn­ing að Anna Kristine var einn af okkar allra bestu blaða­mönnum. Að hafa kynnst henni hafði ótrú­lega góð á hrif á mig og hún reynd­ist mér svaka­lega vel og ég er henni þakk­látur fyrir það. Og ég er þakk­látur dóttur hennar en það hefur alla tíð verið vin­skapur á milli okkar þótt við séum ekki í miklu sam­bandi en þá er alltaf þessi kær­leikur á milli okkar og það er rosa­lega gott. Anne Kristine var til dæmis svo hjálp­söm og góð kona og hún var svo mik­ill fag­maður. Þegar ég var með fyrstu þætt­ina mína á RÚV, en ég var með þætti um Sinatra, þá voru allir að þakka mér fyrir hvað þetta væru frá­bærir þættir. Þeir voru bara frá­bærir af því að Anna Kristine bjó þá til.“

Þögn.

„Ekki ég.“

Ein ást deyr.

Önnur kviknar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi