Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bjarni Ben um kaup föður síns í Íslandsbanka: „Var honum bannað að kaupa?“

Bjarni Ben um kaup föður síns í Íslandsbanka: „Var honum bannað að kaupa?“

Salan á hlut í Íslands­banka nýverið hefur valdið gríð­ar­lega miklum deilum í íslensku sam­fé­lagi, og afar mik­ill þrýst­ingur hefur verið á for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­syni, vegna kaupa föður hans á hlut í bank­anum. Bjarni var í við­tali við í útvarps­þætt­inum á Sprengisandi á Bylgj­unni í dag þar sem hann sagði meðal ann­ars þetta um banka­söl­una:„Ég held að það sé margt í upp­lifun okkar, sem eru á bak við þá ákvörðun að selja eign­ar­hluti í bank­anum, að það hafi skort á upp­lýs­inga­gjöf og gegn­sæi í aðdrag­anda og fram­kvæmd útboðs­ins; svona ákveðnir grund­vall­ar­þættir sem geta gert rík­is­stjórnum, og í þessu til­felli, kannski fyrst og fremst mér, erfitt fyrir. Og við viljum fara betur í það hvort að við getum ekki fundið annað fyr­ir­komu­lag sem betur getur tryggt þessa þætti. En við ætlum fyrst að fá úttekt sem er í gangi, og ég stend alveg með Banka­sýsl­unni; hef ekki komið auga á lög­brot, og við erum ekki heldur að halda því fram.“Bætir við:„Menn eru að gera ágrein­ing um það að mögu­lega hafi starfs­maður í ein­hverjum sjóði látið maka sinn kaupa: Segi þá bara, endi­lega skoðum það. Það er gott að Seðla­bank­inn fer ofan í það, en það verður að sjá skóg­inn fyrir trjánum. Við erum með eft­ir­lits­stofn­anir, fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans, sem ég vænti þess að séu að skoða hvort hæfir fjár­festar ein­göngu hafi tekið þátt, og önnur atriði sem þeir hafa fengið ábend­ingar um. Það verður skoðað.“Bjarni gefur lítið fyrir gagn­rýni stjórn­ar­and­stöð­unnar á mál­inu:„Rök­semda­færslur stjórn­ar­and­stöð­unnar eru komnar í hringi; fyrst var sagt að við hefðum hand­valið kaup­endur, en þegar það var hrakið þá koma aðilar og segja að fjár­mála­ráð­herra hefði átt að fara yfir list­ann og hand­velja kaup­endur. Menn eru komnir út í skurð með svona rök­semd­ar­færslur,” sagði Bjarni og bætti við að „það breytir ekki hinu að Banka­sýslan hefur ekki einu sinni heim­ildir til að kafa ofan í þessa hluti. En Fjár­mála­eft­ir­litið hefur það. Ég er í engum vafa að þeir munu fá að finna fyrir því sem hafa farið á svig við þessar reglur.”Hann ljær einnig máls á því að „Banka­sýslan hefur frum­kvæði að því að leggja til að við förum í þennan leið­angur sem endar í ráð­herra­nefnd: Í rík­is­stjórn, og fer svo fyrir tvær þing­nefndir. Þar mætir Banka­sýslan og útskýrir hvernig þetta muni ger­ast, og mjög aug­ljóst að þetta ger­ist snögg­lega, á einum degi frá því mark­aðir opna, á einum degi en margir þeirra sem sátu þessa fundi segja núna: „Ég kem af fjöllum, það sagði mér þetta eng­inn.“ Jafnvel fólk hér á Alþingi.”Spurður um kaup föður síns í bank­anum svar­aði Bjarni að bragði með spurn­ingu: „Var honum bannað að kaupa?”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi