Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vikið úr Háskóla Íslands en sýnir engin merki um iðrun: „Þér er nauðgað ef þú segir mér hvernig?“

Vikið úr Háskóla Íslands en sýnir engin merki um iðrun: „Þér er nauðgað ef þú segir mér hvernig?“

Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála úrskurð­aði að Háskóli Íslands hafi ekki gerst sekur um brot á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynj­anna þegar nem­enda við skól­ann var vikið úr skól­anum eftir að sá hafði sent sam­nem­anda ógn­andi tölvu­pósts­skila­boð, þetta kemur fram í frétt Vísis.

Í úrskurði áfrýj­un­ar­nefndar í kæru­málum háskóla­nema eru ummælin birt, en hinn brottrekni nem­andi sendi sam­nem­anda sínum þau í tölvu­póstum. „Í skeyta­send­ingum kær­anda eru notuð orð og orða­sam­bönd sem almennt kunna að telj­ast ógn­andi og lík­leg til að vekja ugg hjá mót­tak­anda, óháð kyni.“ Í póst­unum var meðal ann­ars að finna eft­ir­far­andi ummæli:

  • „Ég veit þú ert brjáluð, en ef þú hjálpar mér þá skal ég hjálpa þér“
  • „Ég skal hjálpa þér að læra fyrir prófið, ann­ars fellur þú. Ég er nokkuð góður í stærð­fræði. Ég skal ábyrgj­ast að þú nærð, annar [sic] mátt þú refsa mér eins og þér sýn­ist“
  • „Þær deyja“
  • „Þér er nauðgað ef þú segir mér hvernig?“
  • „Það er nauðg­un­ar­her á leið­inni til þín en þú verður að segja mér hvernig ég á að leysa heima­dæmi níu og fjórtán þess í stað. Sendu mér línu fyrir næsta miðvd.“

Ekkert hefur komið fram í mál­inu af hálfu kær­anda sem rétt­lætir eða afsakar þessa hátt­semi heldur virð­ist kær­andi ganga út frá því í mála­til­bún­aði sínum að hann hafi fullan rétt til þess að sví­virða og ógna sam­nem­endum sínum í skól­anum án þess að unnt sé að grípa til við­ur­laga af nokkru tagi af því til­efni,“ segir í nið­ur­stöðukafla úrskurð­ar­ins.

Í úrskurði nefnd­ar­innar sem birtur var í byrjun mars, taldi umræddur nem­andi að hann hefði ekki fengið sömu með­ferð og aðrir nem­endur skól­ans. Hann taldi það órétt­látt, sér­stak­lega ef horft væri til heild­ar­fjölda brott­felldra nem­enda með til­liti til kyns. Hafi hann því kært brott­vís­un­ina til nefnd­ar­innar.

Engin merki um iðrun eða eftirsjá

Sviðs­for­seti Heil­brigð­is­vís­inda­sviðs hafði boðað nem­and­ann á fund í októ­ber síð­ast­lið­inn vegna skeyta­send­ingar nemd­and­ans til sam­nem­anda síns fyrr í sama mán­uði. Í úrskurð­inum segir að af send­ing­unum mætti ráða að sam­skiptin hafi verið að frum­kvæði kær­and­ans og óvel­komin.

Nem­and­inn hafn­aði boði um fund hjá sviðs­for­seta, en sendi þó skrif­leg and­mæli síð­asta dag októ­ber­mán­aðar. Degi síðar var honum vísað úr skól­anum að fullu.

„Í bréf­inu kemur fram það mat sviðs­for­seta að kær­andi hefði sent tölvu­bréf sem væru til þess fallin að valda sam­nem­anda hans ótta. Ummæli sem þar hefðu verið við­höfð væru með öllu óboð­leg. Ekki væri að sjá nein merki um iðrun eða eft­ir­sjá í and­mælum kær­anda. Þá kæmi ekk­ert fram í and­mæl­unum sem útskýri eða afsaki ummæli kær­anda,“ segir í úrskurð­inum um mála­vexti.

Fordæmalaus staða

Nem­and­inn sagð­ist eftir bestu vit­und vera sak­laus af öllum ásök­unum og vís­aði hann til ákvæða stjórn­ar­skrár­innar um tján­ing­ar­frelsi og að það væri ekki hlut­verk háskóla að setja því skorður. Eingöngu dóm­stólar dæmi um rétt er varðar tján­ing­ar­frelsið, en auk þess vís­aði mað­ur­inn til ákvæðis stjórn­ar­skrár um jafn­rétti kynj­anna.

Í umsögn Háskóla Íslands til kæru­nefndar kemur fram að ákvörðun um brott­vikn­ingu hafi verið tekin til að tryggja öryggi nem­enda og kenn­ara og hafi ekki átt sér for­dæmi innan skól­ans.

„Af ákvörðun [Háskóla Íslands] og gögnum máls­ins verður ekki ráðið að kær­andi hafi fengið óhag­stæð­ari með­ferð vegna kyns en annar ein­stak­lingur myndi fá við sam­bæri­legar aðstæður eða að kyn­ferði hans hafi skipt máli er kærði tók ákvörðun um aga­við­ur­lög. Þá verður heldur ekki talið að ákvörð­unin sé almennt þess eðlis að hún með óheim­ilum hætti geti beinst að einu kyni frekar en öðru. Verður því ekki talið að sýnt hafi verið fram á eða gert lík­legt að kærði hafi brotið gegn ákvæðum laga [um jafna stöðu og jafnan rétt kynj­anna],“ segir í nið­ur­stöðukafla úrskurðar nefnd­ar­innar.

Telur sig hafa fullan rétt til að svívirða og ógna samnemendum

Að mati nefnd­ar­innar eru sam­skipti manns­ins við sam­nem­anda sinn í skól­anum honum til van­virðu og álits­hnekkis. Með sam­skipt­unum hafi mað­ur­inn vegið gegn rétt­indum nem­and­ans sem varin eru í stjórn­ar­skránni.

Ekki með ótakmarkað tjáningarfrelsi án afleiðinga

Áfram segir að nefndin bendi á að mað­ur­inn hafi ekki slíkt ótak­markað tján­ing­ar­frelsi án afleið­inga.

„Samkvæmt fram­an­greindu stefndi sú tak­mörkun á tján­ing­ar­frelsi kær­anda, sem fólst í því að víkja honum úr skóla, að lög­mætu mark­miði, þ.e. að vernda virð­ingu skól­ans og vernda rétt­indi ann­ars nem­anda. Við ákvörð­un­ina voru þannig upp­fyllt skil­yrði 3. mgr. 73. gr. stjórn­ar­skrár­innar um lög­mætt mark­mið, skerð­ingin var nauð­syn­leg og í sam­ræmi við lýð­ræð­is­hefðir. Í ljósi alvar­leika ummæl­anna er það nið­ur­staða nefnd­ar­innar að með­al­hófs hafi verið gætt enda hafi væg­ari úrræði ekki verið tæk til þess að ná því mark­miði sem stefnt var að,“ segir í nið­ur­stöðukafl­anum.

Maðurinn sak­aði sviðs­for­seta Heil­brigð­is­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands einnig um van­hæfi í mál­inu en áfrýj­un­ar­nefndin bendir á að það eigi ekki við í mál­inu enda sé Háskóli Íslands ekki dóm­stóll. Þá séu ekki til staðar tengsl eða aðstæður sem falli undir van­hæf­is­á­stæður stjórn­sýslu­laga.

„Ekkert hefur komið fram í mál­inu um að máls­með­ferð innan HÍ hafi verið ábóta­vant að öðru leyti. Verður hin kærða ákvörðun HÍ því stað­fest,“ segir í dómnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi