Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Við misstum tvo kvöldið sem föðurbróðir okkar myrti föður okkar

Við misstum tvo kvöldið sem föðurbróðir okkar myrti föður okkar

Ragn­ar var fædd­ur og upp­al­inn að Gýgjar­hóli í Bisk­upstung­um, á staðn­um þar sem hann lést eft­ir árás bróð­ur síns. Börn Ragn­ars lýsa því hvernig þeim varð smám sam­an ljóst að föð­ur­bróð­ir þeirra hefði ráð­ist að föð­ur þeirra með svo hrotta­leg­um hætti, hvernig hvert áfall­ið tók við af öðru eft­ir því sem rann­sókn máls­ins mið­aði fram.

„Þetta voru svo mik­il svik.“ Þau segja frá því hvernig griða­stað­ur þeirra varð skyndi­lega vett­vang­ur mar­trað­ar, áhrif­um þess á fjöl­skyld­una og bar­átt­unni fyr­ir rétt­læti.

Þann 31. mars árið 2018 fannst Ragnar lát­inn á bænum Gýgj­ar­hóli II í Árnes­sýslu. Þrír bræður voru á staðnum er atvik átti sér stað. Valur, bróðir Ragnars og ábú­andi á bænum til­kynnti um and­látið. Frásögn hans af hvernig á and­látið bar til þótti ótrú­verðug og í fram­hald­inu var hann grun­aður um mann­dráp. Þriðja bróð­urnum var sleppt að lok­inni skýrslu­töku, hann var sof­andi þegar umrædd átók áttu sér stað. Ummerki voru um átök á vett­vangi og bráða­birgða­krufn­ing leiddi í ljós að áverkar á lík­inu hafi orðið Ragnari að bana.

Sonur Ragnars heit­ins full­yrðir í löngu bréfi að bana­maður pabba síns sé sið­blindur ofbeld­is­maður og dýra­níð­ingur.

Hefði pabbi ekki fengið sér í glas með manni sem hann hefði ekki getað gert sér í hug­ar­lund að myndi slátra sér í sturlun­ar­kasti á leið út af heim­il­inu þessa nótt, þá væri hann lif­andi enn í dag.“ Þetta segir Ingi Rafn Ragn­ars­son, sonur Ragnars, sem lést af völdum áverka sem bróðir hans, Valur, veitti honum á Gýgj­ar­hóli í Bisk­ups­tungum 31. mars í fyrra. Valur var dæmdur í sjö ára fang­elsi í Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands en málið er nú til með­ferðar hjá Lands­rétti.

Í grein­inni, sem Stundin birtir, rekur Ingi Rafn í löngu máli kynni sín af Vali og segir meðal ann­ars að hann sé sið­blindur maður sem hafi ánægju af því að aflífa dýr. Hann ber að Valur sé þekktur af ofbeld­is­verkum og að skapofsa­köst hans séu öllum sem til þekkja kunn. Faðir hans, Ragnar, hafi verið sá eini sem hafi sýnt Vali umburð­ar­lyndi.

„Þakk­lætið er svo sýnt með því að móðga föður minn, drepa hann og síðan leggja sig allan fram um per­sónu­níð,“ skrifar Ingi Rafn.

Ingi Rafn rekur með nokkuð ítar­legum hætti nið­ur­stöðu rétt­ar­meina­fræð­ings­ins Sebast­ian Kunz, en sam­kvæmt bréfi Inga Rafns voru árás­irnar tvær, umrædda nótt og hrotta­fengnar.

Lýs­ing­arnar eru ekki fyrir við­kvæma.

Valur í dóm­sal ásamt verj­anda sínum.

Ingi Rafn er ósáttur við nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Suð­ur­lands. „Þrátt fyrir útlistun rétt­ar­meina­fræð­ings á áverkum pabba kemst Hér­aðs­dómur Suð­ur­lands að þeirri nið­ur­stöðu að ekki sé hægt að líta fram­hjá því að áfeng­is­magn föður míns hafi átt þátt í dauða hans og þar með gefur dóm­ur­inn sér for­sendur sem rétt­ar­meina­fræð­ingur neitar að stað­festa. Það er mjög sér­stakt að sitja undir því að Hér­aðs­dómur Suð­ur­lands kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þrátt fyrir ítrekað traðk á föður mínum, miklar blæð­ingar, inn­vortis og útvortis, mik­inn blóð­missi, háls­brot, brotin rif­bein sem sting­ast í gegnum lifur og valda ofsa­legum blæð­ingum og gati á lunga, þá væri pabbi í raun lífs í dag. Það var nið­ur­staða Hér­aðs­dóms. Hefði pabbi ekki fengið sér í glas með manni sem hann hefði ekki getað gert sér í hug­ar­lund að myndi slátra sér í sturlun­ar­kasti á leið út af heim­il­inu þessa nótt, þá væri hann lif­andi enn í dag. Ólíkt öllum öðrum sam­bæri­legum til­vikum þeirra sem hljóta slíka áverka er nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Suð­ur­lands þvert á vitn­is­burð rétt­ar­meina­fræð­ings.“

Ingi Rafn segir raunar að Valur hafi áður verið hárs­breidd frá því verða bróður sínum að bana; í eitt skipti af gáleysi en í tvígang af ásetn­ingi. „Hér­aðs­dómur gengur svo langt að meta það Val til refsi­lækk­unar að hann hafi ekki stungið eða skotið, ein­ungis traðkað hann til bana. Pabbi fékk versta dauð­daga sem hugs­ast getur og það er metið morð­ingj­anum til refsi­lækk­unar.“

Vali tókst, að sögn Inga Rafn að „fela sitt rétta eðli“ í gegn um alla máls­með­ferð­ina fyrir Hér­aðs­dómi. Hann hafi lagt sig allan fram við að bróður sínum með æru­meið­ingum. Honum gremst að fólk hafi trúað síbreyti­legum frá­sögnum Vals af atburðum næt­ur­innar. „Eins ótrú­legt og það kann að hljóma þá er sið­blindur ein­stak­lingur und­an­tekn­ingin á því að sjaldan veldur einn þá tveir deila. Þegar annar ein­stak­ling­ur­inn er sið­laus þá þurfa tveggja hliða deilur ekki að koma til. Heið­ar­legri og rétt­sýnni menn en pabbi eru vand­fundnir, þó hann hafi haft nóg af göllum eins og hver annar. Sann­leik­anum hafa ekki verið gerð næg skil opin­ber­lega og þrátt fyrir allt sem á undan er gengið þá get ég ekki látið síð­ustu orðin um föður minn vera nafn­lausan róg­burð frá Val  og fylgjum hans og því sett­ist ég við skriftir.“

Það var þann 24. sept­em­ber í fyrra sem Valur var dæmdur í sjö ára fang­elsi fyrir að bana bróður sínum. Kol­brún Bene­dikts­dótt­ir sak­sókn­ari fór fram á að Val­ur yrði dæmd­ur í 16 ára fang­elsi, en dóm­ari varð ekki við þeirri kröfu. Val­ur var sak­felld­ur fyr­ir mann­dráp af gá­leysi og varðar brot hans við 2. mgr. 218. gr. al­mennra hegn­ing­ar­laga.

Bréfið má lesa í heild hér.

Heim­ildir:

Baldur Guð­munds­son. 10. apríl 2019. „Pabbi fékk versta dauð­daga sem hugs­ast getur.“ Frétta­blaðið.

Erla Dóra Magn­ús­dóttir. 10. apríl 2019. Sann­leik­ur­inn um morðið að Gýgj­ar­hóli: „Þakk­lætið er svo sýnt með því að móðga föður minn og drepa hann.“ DV.

Magnús Hlynur Hreið­ars­son. 26. sept­em­ber 2018. Bróðir Ragnars og Vals segir dóm­inn fárán­legan. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi