Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Miðstöð fyrir fólk frá Úkraínu opnuð við KR völlinn: „Mér leið ekki vel í vinnunni þessa daga“

Miðstöð fyrir fólk frá Úkraínu opnuð við KR völlinn: „Mér leið ekki vel í vinnunni þessa daga“
Mynd. Skjáskot/Reykja­vík­ur­borg

Hentugt hús­næði var tryggt í byrjun vik­unnar og mætti starfs­fólkið næsta dag til að hefja und­ir­bún­ing. Allt hefur þurft að ger­ast hratt og allir í hópnum sáttir og ánægðir með að taka þátt í verk­efn­inu. Það gerir þeim kleift að ein­beita sér að því að hjálpa fólki frá sínu gamla heima­landi en mörg höfðu reynt að svara sím­tölum og skila­boðum sam­hliða sinni vinnu. Ein úr hópnum lýsir því hvernig hún mætti til dæmis eftir vinnu alla daga til að sinna hjálp­ar­starfi.

„Ég var að frá átta á morgn­ana til níu eða tíu á kvöldin. Á vinnu­tíma var ég með heilan bekk af börnum sem ég gat varla stjórnað og fannst frá­bært að geta ein­beitt mér að þessu,“ segir Oksana Shabatura í sam­tali við Hrund Þórs­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa Ráðhúss Reykja­víkur hjá Reykja­vík­ur­borg. Oksana er umsjón­ar­kenn­ari 2. bekkjar í Fella­skóla og hefur búið á Íslandi í 18 ár. Hún lýstir því hvað það hefur reynst erfitt að halda áfram með dag­legt líf á sama tíma og stríðs­á­stand er í heima­land­inu vegna inn­rásar Rússa.

„Mér leið ekki vel í vinn­unni þessa daga. Ég kom á kaffi­stof­una, þar var fólk að hlæja, tala, und­ir­búa árs­há­tíð og lifa eðli­legu lífi og ég var vön að vera alltaf með. Svo opna ég sím­ann og sé hús í rúst og börn drepin. Hjarta mitt springur en ég heyri hlátur í kringum mig. Þannig að ég er rosa­lega ánægð að fara í þetta og vera með fólki sem skilur mig og er í sama gír og ég. Við skipt­umst á upp­lýs­ingum og getum þannig hjálpað enn meira,“ segir Oksana.

Mik­il­vægi fjöl­breytts starfs­manna­hóps með ólíkan bak­grunn sann­ast nú við opnun Skóla- og fjöl­skyldu­mið­stöðvar fyrir úkra­ínsk börn og fjöl­skyldur þeirra. Mið­stöðin verður opnuð í dag, fimmtu­dag, í frí­stunda­mið­stöð­inni Tjörn­inni við KR völl­inn. Sex úkra­ínsku­mæl­andi starfs­menn úr skólum borg­ar­innar halda utan um starf­sem­ina þar sem þátt­taka for­eldra verður nauð­syn­legur þáttur.

Skóla- og fjölskyldumiðstöð fyrir flóttafólk frá Úkraínu opnuð

Fannst erfitt að taka þátt í gleðinni á kaffistofunni

Árni Valdason er sér­kenn­ari í Kletta­skóla og hefur búið á Íslandi í átta ár. „Ég var líka upp­tek­inn í vinn­unni því allir voru að hringja. Ég skrif­aði bréf til Helga [Gríms­sonar, sviðs­stjóra skóla- og frí­stunda­sviðs] og hann svar­aði og sagði að það væri hópur til að hjálpa flótta­mönnum og nú er ég í honum,“ segir Árni sem fór skömmu eftir inn­rás­ina ásamt manni sínum til Póllands til að sækja for­eldra hans sem þá voru að reyna að kom­ast að pólsku landa­mær­unum.

Bæði segja þau Oksana og Árni mik­il­vægt að úkra­ínsku for­eld­arnir taki þátt í starf­semi fjöl­skyldu­mið­stöðv­ar­innar og sjái um umönnun ungra barna. Þau von­ast til að í hópnum leyn­ist kannski mynd­listar- og tón­list­ar­fólk, og jafn­vel íþrótta­kenn­arar. Enn er óvíst hversu mörg börn og for­eldar munu sækja Skóla- og fjöl­skyldu­mið­stöð­ina og hvort opna þurfi á fleiri stöðum. Um 200 börn hafa komið til Reykja­víkur frá því inn­rásin hófst.

HÉR má lesa við­tal Reykja­vík­ur­borgar við Oksönu í heild sinni og fræð­ast um þetta nýja spenn­andi verk­efni.

Í þessu verk­efni sann­ast hversu mik­il­vægt það er fyrir vinnu­staði að hafa starfs­fólk með ólíkan bak­grunn í starfs­liði sínu. Ásamt þeim Árna og Oksönu munu starfa Luba frá leik­skól­anum Miðborg (22 ár á Íslandi), Alina sem vinnur í leik­skól­anum Björtu­hlíð (rúm 8 ár á Íslandi), Katarina sem vinnur á frí­stunda­heim­il­inu Guluhlíð við Kletta­skóla (5 ár á Íslandi) og Tetiana frá leik­skól­anum Hlíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi