Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Már Gunnarsson: „Það á í rauninni að hundsa leiðsöguhunda og láta sem þeir séu ekki til“

Már Gunnarsson: „Það á í rauninni að hundsa leiðsöguhunda og láta sem þeir séu ekki til“

„Ég upp­lifi meira sjálf­stæði og öryggi og hlutir sem ég átti mun erf­ið­ara með eru bara ekk­ert mál í dag,“ segir Már Gunn­ar­son sem fékk í fyrra leið­sögu­hund­inn Max. „Það er biðlisti eftir hundum hjá Blindra­fé­lag­inu en félagið hefur verið að safna fyrir þessum hundum. Fólk getur stutt þetta með því að fara inn á heima­síðu félags­ins og kynnt sér þetta betur.“

Þannig að þetta er klár­lega mikil bót.

Már seg­ist hafa í gegnum tíð­ina fylgst með ein­stak­lingum með leið­sögu­hunda og að hann hafi oft hugsað með sér hvað það væri nú stór­kost­legt að eiga svona góðan vin sem hjálp­aði honum í dag­legu lífi við að gera hitt og þetta. „Ég beið alltaf mjög spenntur eftir því þangað til ég yrði nógu gam­all og á þannig stað að geta verið með leið­sögu­hund. Síðan þegar kom að því að ég sá fyrir mér að þetta gæti gengið þá sótti ég um hjá Þjónustu- og þekk­ing­ar­mið­stöð­inni, sem heitir Sjón­stöðin í dag, að fá svona leið­sögu­hund og þá þurfti maður að fara í gegnum smá­ferli og umsókn­ar­ferli. Ég fór á nám­skeið og síðan beið ég í rúmt ár áður en ég fékk Max. Hann aðstoðar mig í dag­legu lífi við að kom­ast örugg­lega á milli staða, hann þekkir helstu leiðir sem við förum og í óvæntum aðstæðum bregst hann við því og fer fram hjá hindr­unum. Hann finnur hluti fyrir mig sem ég bið hann um að finna og að fara inn í hús og út úr húsi sem og að finna tröppur eða lyftur. Ef ég missi eitt­hvað þá þarf ég ekki að beygja mig niður og setja fing­urna út um allt og þreifa til að finna það; hann bara finnur það fyrir mig. Þannig að þetta er klár­lega mikil bót. Svo er þetta ofsa­lega góður og fal­legur félags­skapur.“

Til í tuskið

Max er tveggja og hálfs árs labradorrakki frá Svíþjóð og segir Már að hann hafi verið sér­stak­lega rækt­aður til að sinna starfi leið­sögu­hunds.

„Fyrsta árið var hann hjá fóst­ur­fjöl­skyldu þar sem honum voru kenndir heim­il­is­siðir og síðan fór hann í eins árs leið­sögu­hunda­skóla þar sem hann lærði að verða bara full­mennt­aður leið­sögu­hundur. Að vísu verður hann aldrei full­mennt­aður vegna þess að þetta er ævi­löng þjálfun og ég þarf að sinna þjálfun hans á hverjum degi og passa upp á að hann geri allt rétt. Og ef hann gerir eitt­hvað vit­laust þá leið­rétti ég hann. Ef eitt­hvað nýtt kemur upp þá kenni ég honum þannig að þetta er ævi­löng þjálfun.“

Hann er mik­ill karakter og rosa­lega dríf­andi hundur.

Már segir að Max sé með mik­inn drif­kraft og að slíkur hundur hafi sér­stak­lega verið val­inn fyrir sig; hund sem væri til í tuskið og til í að fara með honum út um allt og gera með honum allt það sem hann gerir. „Hann er mik­ill karakter og rosa­lega dríf­andi hundur.“

Skuldbinding og hellings vinna

Enginn má veita Max athygli þegar hann er í vinnu sem leið­sögu­hundur. „Það má ekki klappa honum, beygja sig niður og brosa eða horfa í augun á honum. Það á í raun­inni að hundsa leið­sögu­hunda og láta sem þeir séu ekki til. Þetta er gert til að þeir haldi ein­beit­ingu í vinn­unni vegna þess að þeir eru bara með lít­inn hunda­heila og þeir geta ekki ein­beitt sér bæði að mér og síðan öllu áreit­inu sem er í kringum okkur.“

Þetta gerir mér lífið létt­ara á margan hátt.

Þegar Már er spurður hvað sé eft­ir­minni­leg­ast frá því að hann fékk Max segir hann að það sé hve margt sem þeir gera sé ótrú­lega „smooth“. „Þú getur rétt ímyndað þér hvernig það er fyrir mig að standa fyrir utan hús sem ég hef kannski aldrei komið inn í og leita að einni hurð inn í þetta hús. Max finnur þetta strax. Þetta gerir mér lífið létt­ara á margan hátt. En auð­vitað er þetta líka skuld­bind­ing og hell­ings vinna en ég sé ekki eftir því.“

Már segir að þegar Max er ekki í vinn­unni þá hlaupi hann út um allt og hoppi og skoppi. „Hann elskar að fá bein til að naga og þá kemur hann og knúsar mig og ég knúsa hann. Honum finnst gaman að fá knús, klapp og hrós og hann elskar að láta greiða sér. Hann dýrkar að fara út í móa og hlaupa sem ég leyfi honum að gera reglu­lega. Svo syngur hann alltaf með þegar ég spila á píanó.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi